Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Togari ársins
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Stefán Stefánsson 22 years, 4 months ago.
-
CreatorTopic
-
12.12.2002 at 17:38 #191891
Það er nokkuð ljóst hvaða lýsibrennslumótor fer efst á jólagjafaóskalistann minn
Kv.
Bjarni G. -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
12.12.2002 at 19:50 #465356
Skemmtilegar prófanir. Ótrúlega lítill munur á merkjum.
Þó koma sjálfskiptu bílarnir alltaf betur út en þeir beinskiptu. Kunna þessir gæjar bara nokkuð á beinskipta bíla ?Wolf
12.12.2002 at 20:53 #465358
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég held að það væri nú ráð fyrir þig Ýktur að fá þér 2,8 Nissan Turbo Diesel í bílinn þinn og selja hina relluna hæstbjóðenda. Skrítið að þeir sem gera þessa prófun skuli ekki vera með Patrol í samanburði, líklega þora þeir því ekki. Annars hef ég heyrt að Ýktur vinni álíka vel og bíllinn hans Emils, er það rétt.
Jamm.
12.12.2002 at 20:57 #465360Sæll Bjarni G.
Gaman að þessum link. Mig grunaði alltaf að það leyndist í þér díeselkall… allavega er ljóst að þú ert að stelast í svona grútarbrennaraupplýsingar á netinu
TD. kveðja,
BÞV
12.12.2002 at 23:32 #465362Þessar tilhneigingar Bjarna koma ekki á óvart þegar litið er til þess að hann byrjaði sinn jeppaferil á grútarbrennara, en Bjarni átti í den IH Traveler með Bens hreyfli í.
Kv Helgi
13.12.2002 at 09:33 #465364Já ætli ég verði ekki að bera við stundarbrjálæði… skoða grútarbrennara… uss hvílík vitleysa :þ
Kv.
Bjarni G.
p.s. gamli grútarbrennarinn minn hér International Harvester TravelAll ekki Traveller
13.12.2002 at 10:35 #465366Mig grunar að þessi grútarlykt af Bjarna hafi fest við hann hérna um árið þegar hann reyndi árangurslaust að klífa Lang og Snæ. það var einn sem náði toppnum á Snæ og hann hafði grútarlampa sér til halds og trausts. Og á Lang birtist hann aftur með lampan og hangikjét.
13.12.2002 at 10:42 #465368Biðst afsökunar á að hafa farið rangt með.
Kv. Helgi
13.12.2002 at 10:59 #465370Ég held að þessar árangurslausu klifurtilraunir hafi meira með klaufaskap að gera en skort á lýsi 😉
Kv.
Bjarni G.
13.12.2002 at 11:54 #465372Sælir.
það er nú ekki nema von að Bjarni vinur minn kíki aðeins á lýsisbrennarana, bæði vegna uppruna síns, en hann talar enn um Nallann sinn með glampa í augum.
Svo er alltaf gaman þegar við förum saman að kaupa eldsneyti. Ég keyri heila helgi fyrir það sem fer á rúðupissið hjá honum. (eða lekur út um götin á tönkunum)En það má hann eiga, að í "vetrarhörkunum" undanfarið hefur hann verið örlítið liprari í gang. Mínum hefur þótt lýsið heldur þykkt á tímum. Og það er gott frá honum dekkjaloftið.
En Teddi. Þurfum við nokkuð að vera að nudda honum meira uppúr þessu með Lang og Snæ? Æ, jú. Því ekki.
Emil.
13.12.2002 at 12:25 #465374
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Vaka ehf björgunarfélag Eldshöfða 6 110 Reykjavík 5676700
– Fax 5673099
– Netfang vakaehf@simnet.is
– Dráttarbílar 5676700
– Varahlutasala 5676860
– Hjólbarðaverkstæði 5677850
– Farsímar 6968252
6968253
6968254
6968255
6968256
6968257
6968258
6968259
8522560
– Bjarni Ingólfsson heima 5532987
– Steinar Már Gunnsteinsson heima 5675951
13.12.2002 at 12:33 #465376Mottóið er sko smiles/gallon ekki miles/gallon…
Það var að vísu ekkert mikið um "smiles" í þessu Lang og Snæ veseni 😛Kv.
Bjarni G.p.s. þið þarna Emil og Theodor lýsispabbar skuluð bara vera stilltir ef þið viljið halda áfram að fá loft í dekkin frá mér… það er ekki víst að ég nenni að bíða eftir ykkur næst eins og ég hef gert hingað til.
p.p.s. afhverju læðist að mér grunur um að Patrolman og Theodor séu náskyldir… hmmm.
13.12.2002 at 12:40 #465378
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Vertu ekki að móðga mig og líkja mér við akfeita Toyotalúða með hor.
Jamm.
13.12.2002 at 16:00 #465380Bjarni ég var að velta þessu fyrir mér líka.
það er ansi svipaður ritstíllin þeirra Patrolmanns og Tedda.
Þeir gætu verið frændur, eða kanski búa þeir báðir í sömu sveitinni.Kanski er sami GM púkinn í þeim báðum.
En ef svo ólíklega vildi til að þetta sé "sami maðurinn", bendir það ekki til klofins persónuleika? Að kasta skít í sjálfan sig, er það ekki viss bilun?
Reynum að finna út úr þessu eftir nokkra bjóra annaðkvöld.
Emil.
13.12.2002 at 16:08 #465382Furðulegt hvað þessi Patrolman er með öll símanúmer og netföng í Vöku á hreinu. Manni gæti dottið það í hug að hann hafi þurft að nýta sér þjónustu þeirra nokkuð oft.
Og svo eru ekki til Toyotalúðar. Þetta eru allt saman toppmenn sem aka um á góðum bílum.
Trog er ekki bara trog heldur [b:7o9nwupf]PATROLTROG[/b:7o9nwupf]
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.