This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Valdimar Nielsen 19 years, 9 months ago.
-
Topic
-
Vil byrja á að segja að mér finnst að það ætti að koma upp nýjum flokk hér í ætt við eina af öftustu síðunum í Four Wheeler sem fjallar um ódýr ráð sem menn geta leyst ýmis vandamál með.
Í þeim anda vil ég koma með smá uppfinningu sem ég hef ekki séð hjá öðrum hér. Það er þegar menn lenda í að affelga ofan í vatni eða krapa og fá þennan leiðinda vökva inn í dekkið. Það getur verið leiðingjarnt að keyra í bæinn með nokkra lítra af vatni inní túttunni og því fundum við ferðafélagarnir lausn á því.
Takið plasthettu af ventli og gerið lítið gat á hana að ofanverðu. Afeinangrið rafmagnsvír og troðið plastinu utan af vírnum í gatið á hettunni. Plastið af vírnum verður að vera nógu langt til að ná niður í banann á dekkinu. Skrúfið svo hettuna á pílulausan ventilinn. Svo bara hreyfir maður plastið þangað til vatn fer að sprautast upp og bíður þangað til allt vatnið er farið úr dekkinu. Gætir þurft að laga plastið til nokkrum sinnum þangað til fullkominn árangur næst.
Hér er mynd af gjörningnum:
…og önnur:
Kveðja,
Valdi
You must be logged in to reply to this topic.