Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › TIL STJÓRNAR
This topic contains 19 replies, has 1 voice, and was last updated by Sigurður Freyr Árnason 18 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
22.02.2006 at 19:53 #197386
ég var að spá afhverju var ekki sett af stað söfnun fyrir mig þegar ég velti jeppanum mínum í nýliðaferðinni og eyðilagði hann??? svo veltir einhver patti og þá er allt sett í gang að safna pening fyrir hann, það er enginn munur VIÐ VELTUM BÁÐIR.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.02.2006 at 20:01 #544012
ég er búin að bíða spenntur eftir þessum þræði síðan söfnunin fór í gang.
22.02.2006 at 20:03 #544014segjum tveir…..
22.02.2006 at 20:13 #544016Það datt þetta nú bara engum fyrr í hug, en Kalli Kafteinn fór að minnast á þetta og því hleypti ég þessu úr vör. PS ég á ekki Patta og hefði verið nokk sama hvað tegun hefði staðið þarna á toppnum.
Mætti nú bæta við að þú er ekki sá eini sem hefur velt það eru nú tugir félagsmanna sem hafa velt og allavega tveir þarna í nágrenniu við hann Gísla
22.02.2006 at 20:19 #544018Söfnunin fyrir Gísla var ekki á vegum stjórnar á neinn hátt þó svo stjórnarmeðlimur hafi sett hana af stað (sem einstaklingur í klúbbnum en ekki stjórnarmaður). Það voru ferðafélagar Gísla í þessum tiltekna túr sem setja þetta af stað. Eina sem stjórnin sem slík kemur að þessu máli var að lána reikningsnúmer fyrir peningana.
Kv – Skúli
22.02.2006 at 20:59 #544020Það er alltaf slæmt að velta bíl. Og ég skil vel að mönnum finnist einhv mismunun í gangi. En frá minni sjónarhlið
þar sem ég þekki engan persónulega sem var í umræddri ferð. Vil ég benda á að jeppi er ekki sama og jeppi. Það er mun verra að missa bíl sem eigandi er búin að eyða tugum og jafnvel hundruðum klukkustunda í að dekra við til að gera eins og hann vill hafa hann. Þetta meta tryggingafélög einskins og í flestum tilfellum fæst aðeins örlítið brot af þessu til baka við sölu á bíl. Ég met það svo, og hef séð þennan bíl, og þar má sjá að hafa farið nokkuð margir tímar í vinnu. Þessi patrol er að mínu mati ónýtur. Þeas ég met body ónýtt eftir myndum, og var ekki grindin skökk líka. auðvitað má nota hluti úr honum til að búa til nýjan….
Enn það er eitt að velta og ´skemma´ bíl. Það er annað að velta og ´eyðileggja´ bíl.
En það er frábært hvað menn standa saman í klúbbnum og aðdáunarvert.
Ef þú lendir í því að eyðileggja bílinn þinn á fjöllum vinur
þá skal ég líka rétta þér hjálparhönd.
ekki málið.
bjarki
22.02.2006 at 21:02 #544022Segjum tveir.
kv:Kalli ríki
22.02.2006 at 21:18 #544024hvar var þessi hjálparhönd þín þegar ég velti.
ég er EKKI að fara frammá aðstoð eða neitt svoleiðis,
ég var búinn að leggja mikla vinnu og pening í bílinn fyrir þessa ferð(allt til einskins). ég er bara að lýsa yfir óánægju minni á þessu öllu saman og finnst þetta óréttlátt. En svona er bara lífið.
22.02.2006 at 21:30 #544026kv
bjarki
22.02.2006 at 22:12 #544028Þó að þetta sé frábært framtak hjá öllum sem lögðu hönd á plóg við söfnunina hjá Gísla þá finnst mér það algjör vitleysa að blanda Ferðaklúbbnum í þetta að nokkru leiti. Þó svo að það sé ekki nema bankareikningur.
Rétta leiðin hefði verið að fá reikningsnúmer hjá Gísla sjálfum og læsa svo þræðinum. Allir sem hafa lent í einhverju í ferðum á vegum félagsins hafa eflaust spurt sig sömu spurningar og var kastað fram hérna efst. Þó svo hún eigi ekki rétt á sér.
22.02.2006 at 22:33 #544030hérna ég er aðeins að pæla hvort að þú sért löggyldur tjónaskoðunarmaður og hafir þá einhver réttindi til að dæma eithvað um það ég skal alveg vera samála því að þessi patrol er ílla farinn en ég skoðaði bílin hjá honum reyni eftir veltuna og hann var einnig mjög illa farinn eftir veltuna. ég get nú ekkert séð á þessum myndum af þessum patrol að hann sé grindar skakkur. en hvað veit ég ekki er ég skoðunarmaður og hvað þá get ég dæmt bíla út frá einhverji mynd af tjóni. það sem ég held að það sé verið að tala um á þessum þræði að það greinilega skiptir máli hvort að maður sé bara venjulegur jón eða séra jón. og eitt annað er rétt hjá þér einnig að jeppi er ekki jeppi en það verður bara að standa jeep á honum svo að hann flokkist undir þá skylgreiningu hjá mér en það er nú bara mín einka skoðunn. ég get ekki verið samála því að góður jeppi fyrir einhvern þurfi endilega að vera með fleirri fleirri tíma á bakvið sig smekkur sumra er misjafn sumir þurfa ekki allan þennan dóta stuðul eins og margir en það er alltaf gott að menn eru að leggja hálparhönd á plóginn þegar svona leiðilegir hlutir eru að gerast
22.02.2006 at 22:42 #544032Jæja er ekki komið nóg óþarfi að fara að ráðast á aðra félaga.
ég er búinn að styrkja hann Gísla og vona að hann komist af stað fljótlega.
22.02.2006 at 22:49 #544034….og vonum að þrýstingurinn á ofsanum sé að komast niður fyrir sprengimörk.
22.02.2006 at 22:54 #544036MMC: semsagt ef jeppinn hans gísla hefði ekki komið svona illa útúr veltunni þá hefði engin söfnun verið??
22.02.2006 at 22:56 #544038ég held að niðurstaðan úr þessu öllu sé að það ættu allir félagar að hafa bílanna sína tryggða fyrir öllum mögulegum tjónum á fjöllum, og svo ætti klúbburinn að sjá til þess að tryggingarfélögin greiði þegar tjón verður. Klúbburinn á nú einu sinni að vera hagsmunafélag jeppamanna.
Ef allir væru tryggðir og tryggingarfélögin myndu borga, þá þyftri ekki að hafa svona söfnun. Lærum bara af þessu!
baráttukveðja,
Baldur
sem er með gamla jeppahræið sitt tryggt í bak og fyrir og vonar að tyggingarfélögin borgi ef hann eyðilegur bílinn á fjöllum
22.02.2006 at 23:05 #544040
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ég verð nú bara að segja að mér finnst mjög kjánalegt að vera að fetta fingur út í söfnunina.
Þessi söfnun er ný af nálinni, ekki satt?
Ég held að þú Reynir, hafi bara verið óheppinn að það var enginn svona hugmyndaríkur að finna upp á þessu, með í för þegar þú veltir þínum bíl!Mér finnst það til háborinnar skammar að láta svona! Og svo skiptir það engu máli hvaða bankareikningur er notaður, þetta eru allt sömu peningarnir…
Ég er nokkuð viss um að næst þegar einhver félagsmaður verður fyrir álíka óhappi, hvort sem það verður þú eða ég eða einhver annar, þá munu jeppamenn standa saman og sjá af nokkrum þúsundköllum…..
22.02.2006 at 23:43 #544042Mikið ofboðslega er ég sammála síðasta pistli…..
En þetta er svo sem ekki fyrsta söfnunin sem félagar einhvers sem lendir í óhappi er sett af stað hér. Í fyrra var söfnun til handa fjölskyldu Stefáns sem lést í slysi í Vonarskarði.
Sú söfnun var sett af stað af félögum hans líkt og hér er en kom klúbbnum ekkert við….
Þetta er einfaldlega frábært framtak hjá Ofsa og Kalla Kaftein að koma þessu af stað – en hitt er svo allt annað mál hvort söfnun fyrir einhvern annan en Gísla hefði fengið jafn góðar undirtektir – Það þekkja mjög margir Gísla og hann hefur unnið mjög óeigingjarnt starf fyrir klúbbinn í skálanefnd og því á hann að mínu mati góða innistæðu fyrir þessum stuðningi félaganna sem hefur sýnt sig núna….
Benni
23.02.2006 at 00:33 #544044Eru menn farnir að fetta fingur út í söfnunina vegna þess aðþeir fengu ekki neitt,svei og aftur svei
Stjórn kemur ekki að þessu máli heldur er þetta einstaklingsframtak og reikn klúbbsins fengin til að taka við því sem kemur inn en kemur ekki að ráðstöfun fjársins og nógu erfitt verður það fyrir Gísla að taka við þó að það sé ekki undir svona skrifum.
Klakinn
23.02.2006 at 10:32 #544046Jóhannes – veistu það að ég bara veit það ekki, enda hef ég aldrei upplifað þá stöðu – ég hef hins vegar sjálfur látið fé í safnanir til handa fólki sem ég þekki ekkert… en en og aftur ég bara veit ekkert um það þó svo ég telji nú líklegt að menn fengju stuðning ef þannig bæri undir.
En hitt veit ég þó að menn uppskera yfirleitt eins og þeir sá – það er eitthvað sem sumir ættu að hafa bak við eyrað.
Kveðja
Benni
23.02.2006 at 10:37 #544048Menn í félaginu eru komnir á villigötur með því hvort safnað sé eða ekki!
Mér finnst þetta vera spurning um Tryggingar !
Utanvegakaskó tryggir aðeins akstur á vegslóðum.
Eru vegslóðar á jöklum?
Þurfum að standa saman með að fá bílana okkar tryggða allstaðar!e.s. Þessi söfnun var mjög góð – þó svo að ég hafi sjálfur ekki komið nálægt henni.
Samt kemur nú upp í huga minn "þú tryggir ekki eftir á"
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.