Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Til hamingju Ofsi
This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Jón Snæbjörnsson 20 years, 3 months ago.
-
CreatorTopic
-
27.06.2005 at 21:58 #196063
Vildi bara óska félaga okkar Jón ofsa Snæland til hamingju með nýju bókina, „Utan alfaraleiða“. Við fyrstu sýn virðist þessi ekki síðri en fyrri bókin og ómissandi í bílinn á ferðalögum.
Kv – Skúli
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
27.06.2005 at 22:25 #524490
Ef bókin er komin í búðir, þá veit ég hvað ég þarf að gera á morgun.
Kveðja Steini.
27.06.2005 at 22:59 #524492Til hamingu með að vera búinn að koma bókinni í búðir, ég er orðinn spenntur að glugga í hana.
Kem svo og tek í drulluspaðann á þér í útgáfuteiti ársins.
27.06.2005 at 23:48 #524494Kæri Jón Ofsi Slóðríkur Snæland
Til hamingju með númer tvö af fimm eða var það sex?
Sjáumst á fimmtudaginn
kveðja gundur
28.06.2005 at 01:02 #524496Þessi bók og ég vildi gjarnan taka undir með strákunum og óska þér til hamingju gott framtak
Klakinn
28.06.2005 at 16:27 #524498
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
með [url=http://this.is/rotta/?p=bokin:32116syu]nýju bókina[/url:32116syu] Jón, bíð spenntur við "Dægurmálaútvarpið" á Rás 2 nú á eftir, til að heyra meira um bókina.
ÓE
29.06.2005 at 12:15 #524500til hamingju með að vera búin að koma þessu út loksins, svo nú tekur annað stress bara við og það er að byrja á bók númer 3. Mæli með að við félagsmenn verðum dugleigir að senda kallinum slóðalýsingar og punkta í sumar því að ég frétti nefnilega að hann sé orðin sjóndapur og gæti það haft í för með sér að hann brunaði framhjá merkilegum slóðum.
29.06.2005 at 14:10 #524502Til hamingju með nýju bókina, frábært framtak hjá þér.
Kveðja
Ella
29.06.2005 at 14:59 #524504…með bókina, vonandi að hún eigi eftir að koma alþingismönnum að góðum notum þegar við skiljum þá eftir uppá hálendi í komandi alþingisjeppaferð!
kv, Geiri Gúrka
29.06.2005 at 19:07 #524506með bókina. Hlakka til að hitta þig og kreista á þér spaðann og sjá skrudduna.
01.07.2005 at 00:10 #524508Þú skalt hafa hjartans þökk fyrir veglegar veitingar og skemmtilegt kvöld,það er ekki laust við að það bráðnaði smábrot af Klakanum en það var sennilega bara hitanum að kenna en samt þessar 2 bækur þínar eru gersemar sem verða verðmætari með aldrinum og sterkt vopn í þágu okkar jeppamanna í baráttunni við að halda fengnum hlut og ferðast um land okkar.
Svo þökk sé þér Ofsi og eins og Björn Þorri sagði hvenær verður næsta útgáfupartí
Kveðja Klakinn
01.07.2005 at 01:26 #524510Var að hluta á viðtalið, bráðskemmtilegt. Ekki spurning að ég kaupi bókina, á lika þá fyrri.
-haffi
01.07.2005 at 01:32 #524512Þökkum kærlega fyrir góðar veitingar og frábæran félagsskap í útgáfuteitinu. Nú erum við komin heim í hreiðrið okkar í Borgarnesinu ánægð og sæl eftir góða kvöldstund.
Takk fyrir okkur, Keli og Inga.
01.07.2005 at 16:17 #524514Okkar bestu hamingju óskir með bókina hún er glæsileg og bestu þekkir fyrir höfðinglegt boð í gærkveldi. Mjöðurinn sem í boði var vikar mjög vel á heilastarfsemina svona daginn eftir

Býðum spennt eftir næsta útgáfu-partýi að ári
Þorgeir og Lella
03.07.2005 at 23:26 #524516Til hamingju með bókina. Kveðja að austan.
Þórir (Hrollur)
04.07.2005 at 21:46 #524518Takk fyrir að koma með nýja bók fyrir okkur !
Bestu þakkir fyrir frábært útgáfuteiti. Er samt ekki viss um að ég hafi séð alla þá sem hafa þakkað fyrir hér ???
Þrándur
[url=http://4x4offroads.com:1nb03ht0]4x4offroads.com[/url:1nb03ht0]
06.07.2005 at 11:08 #524520Til hamingju með bókina Jón.
Ég fjárfesti í þessum eðalgrip í gær og lá svo yfir henni langt fram á nótt – frábær bók í alla staði og er alls ekki síðri en sú fyrri.
Það eina sem mér finnst að mætti bæta við næstu bók er er að láta allar þessar gps rútur fylgja með á geisladisk – ég væri allavega til í að borga einhverjum krónum meira og fá slíkt með – ég er svo latur að ég nenni ekki að slá þetta allt inn….
En stórglæsileg bók og verður staðalbúnaður í mínum jeppa líkt og sú fyrri – er þegar farinn að leggja drög að smíðum á bókahillu í bílinn….
Benni
08.07.2005 at 15:06 #524522til lukke gamle
þú gleymir honum Skrattakoll, kanski í næsta heftimbkv
Jón
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
