Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Til Hamingju…..
This topic contains 33 replies, has 1 voice, and was last updated by Hrönn Sigurðardóttir 17 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
02.03.2007 at 18:54 #199829
Patrolman, til hamingju með drauminn. Gott að sjá að þú ert kominn vestur um haf… Verður það núna Fordman…. Og pattinn notaður sem safnhaugur í garðinum hjá þér.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
02.03.2007 at 18:55 #583054
Ertu kominn í samband við Giorgi, Rússann sem var að selja 50" dekkin ?
02.03.2007 at 19:51 #583056Leyfa öllum að vera með ekki feluleik. Er Patrolmann loksins að eignast jeppa eða??????
Og þá jeppa sem hægt er að fara á fjöll á.
Kv Bjarki jeppakall
02.03.2007 at 19:55 #583058Hann fékk sér FORD og á því ekki eftir að sjást meira á fjöllum þess má geta að hann fékk ríflega borgað á milli pattans og F.O.R.D blessuð sé síðasta ferðin hanns
ég reyndi mikið að fá hann ofan af þessu því eins og allir vita er Patrol mátturinn og dýrðin
Amen
GÞÞ
02.03.2007 at 19:58 #583060Einhvern tíma sá ég fyrir hvað þessi skammstöfun stóð… get ekki alveg munað það í augnablikinu, einhver sem hefur betra minni en ég í kvöld?
02.03.2007 at 20:04 #583062Fúsk Og Reddingar Daglega
02.03.2007 at 20:05 #583064Thats it . the truth
02.03.2007 at 20:07 #583066Mitt uppáhalds… Found On Road Dead.
02.03.2007 at 20:08 #583068Hlaut að vera! Í minni "sveit" var reyndar til eilítið klámfengnari útgáfa af þessu sem ég vil ekki setja á netið, enda yrði mér aldrei hleypt aftur inn á Hótel Sögu eftir það! Sem er slæmt því bankaútibúið mitt er einmitt þar.
02.03.2007 at 20:15 #583070Það er ekki víst að hann hafi skilið þetta hjá þér Gísli, Ég hefði bent honum á að þetta væri eins og að skjóta besta graðfolan og fá sér 20 vetra geldan klár í staðinn og þykjast vera ánægður en ég er alveg sammála þér Gísli með að Patrol ER er mátturinn og dýrðinn . Enn samt til hamingju Teddi .
P.S.
Teddi þú getur alltaf fengið far með mér ef þú villt ég sel ekki vin minn á næstunni.Kári
02.03.2007 at 20:27 #583072Þar sem ég á nú Ford líka læt ég þetta flakka.
Fyrir
Ofboslega
Ríðilega
DrengiGóðar stundir
02.03.2007 at 20:32 #583074Gísli minn hvað ert þú að setja út á Ford ?? Minn hefur ekki bilað enþá á fjöllum en hvað er þinn búinn að bila oft á fjöllum þennan stutta tíma sem þú ert búinn að eiga hann ??? og að óska manni til hamingju með að hafa keypt sér Patrol ?? Maður er nánast orðlaus
Ford kveðja Sæmi
02.03.2007 at 20:35 #583076Mér varð svo mikið um að ég gleymdi að svara henni Stefaníu En hún er greinilega búin að gleyma því úr Seturferðinni hvaða jeppa tegund var Mátturinn og dýrðinn amen Held þú ættir aðeins að renna yfir þessi videó sem þú tókst
En og aftur Hrikalegar Ford kveðjur Sæmi
02.03.2007 at 21:19 #583078Já rétt hjá þér Sæmi… ég þurfti aðeins að renna yfir videoið til að rifja upp… Fann bút af þessum stórkostlega fjallabíl með hálfan annan helling af hestöflum við mjög krefjandi aðstæður… Var að velta samt fyrir mér hinni klassísku spurningu… hvað eyðir bíllinn í svona aðgerðum.
[url=http://picasaweb.google.com/stefgud/:3tzq32hz][b:3tzq32hz]Hestoflin hennar Hrannar[/b:3tzq32hz][/url:3tzq32hz]
kv. stef. ;->
02.03.2007 at 21:24 #583080Hvar í andsk… finnuru þessa *beeep* tónlist?!?!?!?!?!?!?!
02.03.2007 at 21:32 #583082Hehe konan er snillingur En annars voru þetta það Krefjandi aðstæður að ég gat bara ekki fylgst með eyðslunni en heyrði því fleygt að Fordinn hefði eytt mun minna en nýr polaris vélsleði sem náði samt varla að keyra aðra leiðina upp í Setur og fékk far heim
Sæmi
02.03.2007 at 21:39 #583084Mr. DNA strumpur
Ég verð að svara þessu eins og einn mætur viðmælandi minn kenndi mér… þegar fátt er um svör eða þau eru vandræðaleg á einhvern hátt: "þetta var mjög góð spurning hjá þér".
Þar sem ég er haldin valkvíða þá á ég bara 3 geisladiska til að velja tónlist af…. og er farin að rúlla hringinn … aftur… en Mr. Genastrumpur þú hefur nú hlaupið undir bagga og sent mér lög í pósti þannig að ég vísa nú hluta af þessari spurningu til föðurhúsana DNA..
kv. stef. ;->
02.03.2007 at 21:42 #583086Jamm mér skilst að Þessi Polaris hafi náð að eyða 50 lítrum á 20 km…. Hvað er það nú aftur á hundraðið….
Benni
02.03.2007 at 21:44 #583088Stefanía… þú verður bara að syngja sjálf….. Eða spila á gítar…. Ég á video af svoleiðis….
Benni
02.03.2007 at 21:54 #583090Djöf er ekki hægt að snara því á netið Benni :))
02.03.2007 at 21:56 #583092Ég vil nú fyrst þakka fyrir þann heiður sem að mér er sýndur með að kalla þennan gjörning söng og spila á gítar… Það er illt ef satt er að þetta sé til á (ó)hljóð og hreyfimyndaformi…. skil ekki hvernig þetta slapp fram hjá mér…
Held þó að illu heilli þá séu nú spaðarnir með obb bobbobboob (ruglaðist aðeins) skárri en söng-konan.
—
Sæmi hver þarf óvini þegar hann á vini eins og þig…;->
Ég legg til í fyrsta lagi: að það verði sett lögbann á þetta. Í öðru lagi: að þetta verði döbbað með lélegri tónlist eins og ég hef greinilega gert í mínum bútum.kv. stef ;-0
p.s. Er ekki öllum frjálst að mæta í áfallahjálpina???
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.