Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Þverstífa
This topic contains 24 replies, has 1 voice, and was last updated by Svavar Þ Lárusson 17 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
31.01.2007 at 23:47 #199560
Jæja
Hvaða fóðringar hafa reynst mönnum best í þverstífum að framan. Mig langar að gera þetta almennilega strax og sleppa helst við allt jeppaveikibull! Er það annars ekki rétt pæling hjá mér að fóðringarnar ættu að vera nokkuð stífar til að það sé sem minnst hliðarhreyfing á stífunni sjálfri?
kv. Kiddi og Wranglerinn sem fer að fara úr skúrnum… einhverntímann -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
31.01.2007 at 23:56 #578386
Stál og Stansar eru með mjög stífar þverstífufóðringar sem eru ætlaðar fyri lc80 og ættu að henta mjög vel, eru appelsínugular á lit.
31.01.2007 at 23:58 #578388Eru það ekki plastfóðringar… virkar það eitthvað, verður ekki að vera gúmmí í þessu svo þetta sé til friðs? Er þetta ekki bara farið að vera ooooof stíft með svona plasti
kv. Kiddi
01.02.2007 at 07:11 #578390ég setti þetta í minn 60 cruser að framan sem var á 44, og var hann alveg til friðs. svo geturu líka fenigð þverstífugummi úr orginal 80 lc hja toyota
01.02.2007 at 08:54 #57839280-cruiser fóðringar. Ekki málið. Góðar, endast vel og eru ódýrar (allavega i umboðinu).
kv
Rúnar.
01.02.2007 at 08:59 #578394Já láttu mig þekkja hana.. hún var alveg ódauðleg í mínum jeppa þangað til ég breytti um stýrisgang.
Ég tók original stýrisstangirnar eins og eru í wranglerunum okkar. þ.e.a.s. bein stífa á milli og síðan úr henni í stýrismaskínuna.
í staðinn setti ég úr Cherokee XJ þar sem stífan frá stýrismaskínunni fer beint út í hjól. Eða klofið stýri.
Jeppaveiki hráir aðallega jeppa með beina stöng á milli. En aldrei hef ég heyrt um jeppaveiki í jeppum með klofið stýri.
Þessi stýrisgangur smellpassar á milli, þarf bara aðeins að skrúfa eina stillinguna nærri því alveg saman, en þetta er mun betra stýri eftir á.
Með stífu fóðringar, þá nota ég Rod enda öðru megin og síðan original úr okkar bíl, þetta er mjög gott setup og ekki er til nein merki um jeppaveiki eða neitt annað. Rod endinn er smyrjanlegur þannig að þetta endist lengi. Nota amerískt , nei nei ekkert endilega en ef þú átt original hliðarstífuna geturðu einfaldlega bara skorið þá stífu og notað annan endann á henni, það gerði ég allavega.
kv
Gunnar sem er laus við alla jeppaveiki
01.02.2007 at 10:04 #578396þú getur teki stífu úr xj bíl, skorið efri endan af henni og skorið neðri endann af annarri stöng og búið til eina sem er með fóðringu báðu megin. gerði þetta í mínum og virkaði vel. Hér er mynd af stífunni https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 4181/28185
Freyr
01.02.2007 at 10:19 #578398þá er samt eitthvað undarlegt í gangi þegar bíll á 38" dekkjum er með jeppaveiki.
kv
Rúnar.
01.02.2007 at 10:26 #578400Í LC80 eru til tvær tegundir af þverstífufóðringum, þeas. þær eru með mis stóran bolta, svo sú sem er með stærri boltanum hefur minna gummí
01.02.2007 at 13:31 #578402Ef þú vilt vera alveg laus við jeppaveiki er eina lausnin held ég að gera eins og Gunnar I sagði hér ofar og þá getur þú líka sleppt stýrisdemparanum . Ef þú notar áfram millibilstöngina þá er um að gera að vara með stíf gúmmí og helst stangarenda í að minnsta öðru meginn eins þarf að passa upp á að stýrisdemparinn sé slaglaus og á stífum gúmmíum. Athugaðu að bíllin þinn er léttari en til dæmis hilux og er því viðkvæmari fyrir jeppaveiki. En klofna stýrið mun örugglega spar þér pening í balanseringum og dekkjum því með því er einfaldlega hægt að nota mikklu verri dekk
guðmundur
01.02.2007 at 13:31 #578404Ég er nýbúinn eltast við skástífufóðringar og endaði í original LC80 fóðringum sem taka 16mm bolta. Barki hefur átt rör sem passa utan um þær (40mm innanmál) en þau voru uppseld í síðustu viku. Keypti 50mm rör með 6mm veggþykkt hjá Landvélum og lét renna innan úr þeim hjá Stáli og Stönsum. Mér áskotnaðist skástífa úr Dodge (þykk með góðum hlykk yfir kúlu) með ónýtum endum sem ég ætla að sjóða hólkana á.
–
Bjarni G.
01.02.2007 at 16:33 #578406afhverju beygir bíllin minn alltaf aðeins til hægri sona öðruhverju? og verður svona leiðinlegur, hann er á fjöðrum.
01.02.2007 at 16:34 #578408Klofinn stýrisgangur úr Cherokee er alveg út úr myndinni hjá mér, ég er að setja 44 hásingu að framan. Togstöngin verður alveg lárétt og kemur ofan á liðhúsið hægra megin þannig að þetta er heldur ekki eins og orginal Wrangler stýrisgangur. Dauðaslagið í honum fór alltaf í taugarnar á mér og ég ætla að vera laus við það núna.
.
En hvernig eru þessir stangaendar, eru það einhvers konar kúluliðir? Hvar fást svoleiðis?
.
kv. Kiddi
01.02.2007 at 17:31 #578410Ég hef notað 20 mm tjakkenda með GE legu sem er svona þrítengislega á sveitamáli, þeir fást til dæmis í Barka á góðu verði. Svo hef ég smíðað hólka með brjósti svo hægt sé að nota 12mm eða ½ tommu bolta en það má líka bara nota 20mm bolta. Ef maður man að smyrja í þetta þá endist þetta ágætlega og er slaglaust.
guðmundur
02.02.2007 at 09:14 #578412Væri ekki sniðugt að nota bara stóran sýrisenda í þetta? Svona fyrirbæri eins og er t.d. á A stífunni á Land-Rover?
Pattinn kemur reyndar með svona "rod-end" (eða "þrítengisenda" grindarmegin að framan. Þeir endar eru reyndar ekkert að endast of vel.
Notaði pattastöng að framan hjá mér (er svo skemmtileg kúrfa á henni fyrir kúluna). Skar af henni endana og setti Toyota fóðringar í. Kom mér töluvert á óvart að stöngin í pattanum er massív, er ekki rör.
Kv
Rúnar.
13.02.2007 at 15:17 #578414Er ekki komin tími til að smella myndum af framkvæmdunum hingað á vefinn?????????
Freyr
13.02.2007 at 18:11 #578416hvað lengdir þú stífuna mikið?
13.02.2007 at 19:11 #578418Við að hækka hann um 10 cm fékk ég út að það þyrfti að lengja hana um 2 cm.
Freyr
13.02.2007 at 19:15 #578420Það er miklu auðveldara að koma hásingunni undir miðjan bíl, með því að bora ný göt fyrir festingu á þverstífu við hásinguna, heldur en að lengja stífuna.
-Einar
13.02.2007 at 21:01 #578422Þá situr þú áfram uppi með kúluna á efri endanum, af hverju ekki að slá tvær flugur í einu höggi og betrumbæta stöngina í leiðinni????
Freyr
13.02.2007 at 22:44 #578424Jæja þá eru einhverjar myndir komnar inn fyrir þá sem hafa áhuga…
kv. Kiddi
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.