FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Þórsmörk með fellhýsi

by Hinrik Pétursson

Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › Þórsmörk með fellhýsi

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Theódor Norðkvist Theódor Norðkvist 17 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.06.2008 at 01:24 #202563
    Profile photo of Hinrik Pétursson
    Hinrik Pétursson
    Participant

    Sælar,

    Var að hugleiða að fara í Þórsmörk með óbreytt fellhýsi í eftirdragi – er sjálfur á óbreyttum krúser – hvað segja menn um slíkt? er þetta rennifæri eða á maður frekar að fara að dusta af gamla hústjaldinu.
    Öll góð ráð þegin.

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 18.06.2008 at 08:38 #624580
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Sæll

    ég hef nú ekki farið þangað í ár, en ég hef séð menn drösla óbreyttu hjólhýsi þarna inneftir, svo fellihýsið ætti að fara með smá varkárni.

    Ekki vera einn á ferð, farðu varlega og ekki fara uppí lónið við jökulinn, taktu neðri leiðina og fylgdu brotinu í ánni þegar þú ferð yfir vaðið þar.

    Ég geri fastlega ráð fyrir að þú ætlir -ekki- yfir Krossá.

    happy camping





    18.06.2008 at 09:25 #624582
    Profile photo of Friðrik Hreinsson
    Friðrik Hreinsson
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 858

    Var þar um helgina og þar voru menn með Tjaldvagna og HJÓLHYSI .
    Það var að visu buið að hækka hjólhysið og setja á loftpuða en það er sama.
    Þar voru lika óbreyttir suzuki jimmy.
    Veiddi að visu upp einn sem var upp á ruðu og dautt á öllu.
    Vatn inn á vel og vel upp á sæti.
    Kv
    F.H





    18.06.2008 at 11:12 #624584
    Profile photo of Guðbjartur Magnússon
    Guðbjartur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 368

    Mætti einum í fyrra sem var búinn að pakka sínu inní pökkunarplast.





    18.06.2008 at 11:37 #624586
    Profile photo of Unnar Már Sigurbjörnsson
    Unnar Már Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 193

    fóru nokkrir úr 4×4 inn í mörk, það var ekkert í ánum og auðvelt að komast inneftir. Krossánna skaltu hins vegar láta vera þó svo að það sé freistandi að fara yfir hana. Betra að koma landleiðina heim með fellihýsið. 😉





    18.06.2008 at 16:08 #624588
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    einn galli með fellihýsin er að sleðarnir sem renna rúmunum út (vængjunum) geta skekkst þegar ekið er á grófum vegum svo er alltaf möguleiki á að ef yfir ár er farið að leki inn með hurð og lokum (t,d fyrir gasleiðslur út til að hafa eldavél utaná og þessháttar lok) vegna þessa hafa sumir brugðið á það’ ráð að pakka þeim bara inn í byggingarplast t,d við seljalandsfoss, en margir mjög margir hafa farið með fellihýsin beint inneftir og ekkert mál, en sumir hafa skemmt sín fellihýsi svo mitt ráð er að keyra rólega (sleðanna vegna) og plasta (eða eitthvað álíka þéttingu) fyrir árnar (svo kannski ekkert vera að drolla yfir árnar:D og láta lónið vera (getur farið þangað þegar þú ert búinn að koma húsinu inneftir og tjalda og þá á bílnum einum saman. svo náttla skoða vöðin vel og hafa jafnvel óbreyttann á undan þér til að mála ca dýpt. Taktu svo með í reikninginn að ef t,d segjum steinholtsáin sé straumhörð þann dag þá getur fellihýsið farið að fljóta með straum niður og því betra að taka vöðin á jöfnum hraða.

    Kv Davíð K





    18.06.2008 at 18:05 #624590
    Profile photo of Hafliði Jónsson
    Hafliði Jónsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 410

    Um að gera að fara rólega með pappakassann í eftirdragi inneftir.

    En þó að fellihýsafólkið fari hægt vil ég minna það á að vera duglegt og samviskusamt að víkja fyrir þeim sem nenna ekki að keyra inneftir á 15-30 km hraða.

    Það er ofsalega leiðinlega algengt að fellihýsaliðið hleypi ekki framúr og reyni jafnvel að koma í veg fyrir að bílar komist framúr þeim. Þetta á því miður jafnt við á leiðinni í Mörkina og á öðrum ógreiðfærari vegum.





    22.06.2008 at 22:02 #624592
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Var að koma úr Mörkinni í dag. Tókum framúr mörgum vagnadrögurum á leiðinni inneftir og til baka, en aðeins fáir viku að fyrra bragði þegar við nálguðumst.
    Einn vildi alls ekki gefa sig, þó ég blikkaði ljósunum á hann í gríð og erg, og það var ekki fyrr en á breiðu vaði sem ég komst loksins framúr.
    Þetta þykir mér mikill dónaskapur, og ég er feginn að sem betur fer er enn til fólk með attanítossa sem kann kurteisi.
    kv.
    EE





    23.06.2008 at 11:23 #624594
    Profile photo of Theódor Norðkvist
    Theódor Norðkvist
    Member
    • Umræður: 8
    • Svör: 50

    Eru skuldahalarnir að þvælast fyrir ykkur í Mörkinni? :)





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.