FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Þórsmörk

by Halldór Hafdal Halldórsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Þórsmörk

This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Skúli Haukur Skúlason Skúli Haukur Skúlason 14 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 30.03.2011 at 19:49 #218266
    Profile photo of Halldór Hafdal Halldórsson
    Halldór Hafdal Halldórsson
    Participant

    Jæja félagar maður þorir nú varla að spyrja en hefur einhver farið íLangadal síðastliðna viku eða veit hvernig færðin er ég er að fara með bíl og rútu þarna uppeftir um helgina Þarf náttúrulega ekki að taka það fram að ég er Atvinnumaður 😉

  • Creator
    Topic
Viewing 14 replies - 1 through 14 (of 14 total)
  • Author
    Replies
  • 30.03.2011 at 23:15 #725387
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Hef reyndar ekki farið í Langadal nýlega, en það er ófært öllum venjulegum rútum inn úr nema leiðin hafi verið löguð nú í vikunni. Vegurinn var víða illa skorinn, við Langanes og á Hvannáraurum.
    Þess fyrir utan er Krossá nánast ófær í augnablikinu á móts við Engidal og neðan við Stakk, þar eð hún hefur flæmst gegnum varnargarð og að suðurhlíðunum, í töluðum orðum er hún ansi vatnsmikil.

    Ingi





    30.03.2011 at 23:30 #725389
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ertu ekki að meina að áin sé fyrir neðan Stak ? Eða hvort er rétt að segja Stakk eða Stak ?

    Góðar stundir





    31.03.2011 at 00:35 #725391
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Venjulega talað um Stakk. Stakkholtið og Stakkholtsgjá draga nafn sitt væntanlega af honum. Hvort Stakur hafi einhvern tíma verið notað þekki ég ekki.

    Kv. Árni Alf.





    31.03.2011 at 06:50 #725393
    Profile photo of Halldór Hafdal Halldórsson
    Halldór Hafdal Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 122

    Rútan er öflug Trölli frá Trex gott væri að heyra ef einhver hefur verið á ferðinni í vikunni





    31.03.2011 at 10:35 #725395
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Var að heyra að nokkrir 38 tommu bílar hafi snúið við á Þórsmerkurvegi og í gær átti 44 tommu Liner í erfiðleikum með að komast. Ofan á skorninga og brölt er komin sandbleyta og svoleiðis skemmtilegheit. Í augnablikinu er því færðin hábölvuð.
    Kv – Skúli





    31.03.2011 at 12:05 #725397
    Profile photo of Bragi Þór Jónsson
    Bragi Þór Jónsson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 1030

    Ég var búinn að svara þér á Jeppaspjallinu en hér eru þegar komnar miklu betri og nákvæmari upplýsingar.

    Það er spurning að maður skreppi nú aftur og skoði aðstæður og í þetta skiptið á mínum eigin fjallabíl :)
    Ef einhverjir ætla um helgina, þá væri gaman að vita af því.

    kv. Bragi – ekki atvinnubílstjóri :)





    31.03.2011 at 19:17 #725399
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ef ég þekki Trölla rétt þá man ég ekki eftir því að Þórsmörk hafi staðið í vegi fyrir honum hingað til og fór ég margar ferðir á honum þangað innúr,bara að skoða aðstæður vel áður en anað er útí eitthvað þá held ég að þetta ætti að ganga með skynsamum bílstjóra.
    KV:Matti





    31.03.2011 at 20:41 #725401
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þegar 46" Ecolinerar eru að sleikja með afturendanum og að reka hann niður, þá er ekki rútufæri. Seinast þegar fór í Mörkina var ekki rútufæri, hvorki fyrir dverga eða tröll..





    31.03.2011 at 21:17 #725403
    Profile photo of Halldór Hafdal Halldórsson
    Halldór Hafdal Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 122

    Læt vita annað kvöld ef þetta er ekki hægt en ef vel tekst til skrifa ég ekki orð fyrr en eftir helgi.
    Kveðja Dóri





    03.04.2011 at 10:36 #725405
    Profile photo of Bragi Þór Jónsson
    Bragi Þór Jónsson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 1030

    Ég fór í gær í Þórsmörk og hitti Trölla í Langadal. Hann komst innúr kvöldið áður, ekki mikil vandræði enda vanur bílstjóri sem þekkir þennan trukk vel. Það er sumstaðar sandbleyta og þverár-farvegirnir verulega skornir, aðallega Stakkholtsáin og Hvanngilið.
    Færið var ekkert svakalega erfitt en er það líklega fyrir 35" bíla, sérstaklega í lægri kantinum.

    Við fengum frábært veður, eins og alltaf í Mörkinni, sól, andvari og logn á köflum og ca. 5-7°C. Var best um og upp úr hádegi.





    03.04.2011 at 17:02 #725407
    Profile photo of Halldór Hafdal Halldórsson
    Halldór Hafdal Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 122

    Ég hefði nú boðið ykkur uppá kaffi en ég fór með hópinn í göngu og var rétt ókominn þegar þið rennduð við.





    04.04.2011 at 08:40 #725409
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    46" Econolinerar eru greinilega stórkostlega ofmetnir :)
    Álíka getumiklir og 35" slyddujeppar samkvæmt ofangreindu…





    04.04.2011 at 10:03 #725411
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Enda var ég búinn að segja það að Trölli hafi ekki snúið frá Mörkinni áður og með vanan mann undir stýri yrði þetta ekkert mál.Og þó að menn hafi stór orð um að það sé ekki rútufært þá þýðir ekki að taka mið af malbikstrukkum eða 46" Ford.Allavega voru það mín kynni af Trölla og oft fóru ekki aðrir á eftir honum þegar það var ófært í mörkina……
    Kv Matti





    04.04.2011 at 22:30 #725413
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Það fór 35 tommu patti inneftir á sunnudaginn án vandræða. Hjálpar til að vatn hefur minnkað talsvert síðan á miðvikudag.
    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 14 replies - 1 through 14 (of 14 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.