This topic contains 60 replies, has 1 voice, and was last updated by Helena Sigurbergsdóttir 17 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
08.02.2008 at 11:18 #201822
Ég var að tala við Óskar og Þorgeir núna rétt í þessu. Fyrstu bílar sem lögðu af stað í morgun eru að verða komnir í Hrauneyjar.
Þar eru Gísli og Teddi á patrol 44″ , Óskar og Einar á Patrol 44″, Sterbbi á pajeró á 38″ og 38″ Tacoma sem ég man ekki hver keyrir, en maturinn er víst í þeim bíl. Svo eru Þorgeir og Lella á puttanum þarna einhverstaðar líka.
Benni
P.S.
Þorgeir er með Tetra stöðina opna og því hægt að ná fínu sambandi við hann þá leiðina – Tetra er Gargandi snilld !!!
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
08.02.2008 at 20:15 #613378
Núna var hópurinn að ljúka við að renna niður lambasteik í Hrauneyjum og er þar í góðu yfirlæti en töluvert hvasst er orðið þar.
Þau ætla að leggja af stað kl 10 á morgun og því geta þeir sem ætla að fara á morgun bæst í hópinn þá.
Hlynur – þetta er góð hugmynd hjá þér…. En þú skalt samt ekki treysta á að við Sæmi getum alltaf verið búnir að gera för fyrir þig þegar þú ætlar yfir heiðina…. Reyndar duga förin greinilega ekki alltaf því að síðast fundum við einn svona 44" patta fastann í förunum eftir Ford, en það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem það gerist – og á líklega eftir að gerast aftur…
Benni
08.02.2008 at 20:16 #613380Kvennaferðin er á næsta leiti, er ekki rétt að sameina þetta ?
Maturinn skemmist allavegana ekki.
einnsemlangaríkvennaferðina.
08.02.2008 at 21:06 #613382Benni ég vill minna á að hér á þessu heimili eru til sannanir þess efnis þegar 2 Patrolar á 44" spiluðu upp 1 Ford á 49" fyrir framan aðalhurðina á Setrinu ekki alls fyrir löngu 😉
kv. Axel
Þegar stórt festist…. þá festist það…
08.02.2008 at 22:01 #613384Hvað er í gangi eiginlega ??? Ég trúi þessu ekki ?? Varstu að lenda í 1 festunni Benni minn eða er þetta einhver þvæla ??? Kanski Photoshop ??
P.S í þessum töluðu orðum er Fordinn að verja útidyrnar á heimilinu fyrir þessu skítaveðri þess á milli sem hjólhýsið
hangir aftan í honum svo það takist ekki á loft þrátt fyrir
að vera 2,5 tonn :))
Það er sem ég segi það ættu allir að eiga einn :)))
Algerlega ómissandi þessi elska.Kveðja Sæmi
08.02.2008 at 22:10 #613386Axel áttu ekki mynd af því þegar Toyotan dró ykkur báða Patrolana upp úr festunni samtimis.
kv DANNI
08.02.2008 at 23:01 #613388Danni, þetta bull er ekki svaravert… hi hi hi en jú þetta er allt til á videoi og er aðgengilegt inná síðunni hjá mér, kíkir á það við tækifæri.
kv. Axel Sig…
09.02.2008 at 01:48 #613390. [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/176/48378:18j81tnr][b:18j81tnr]hvenær kemur helgin eiginlega?[/b:18j81tnr][/url:18j81tnr]
09.02.2008 at 13:42 #613392Jæja þá er maður loksins kominn á vaktina aftur.
Var að heyra í Þorgeiri í Tetra – Hann er með handstöð inni í bíl án loftnets úti. Sú stöð hefur haldist inni nánast alla þessa leið
Hópurinn (10 bílar) átti um 1 – 2 km í Setrið og gekk mjög vel. Kvíslárveituvegur var auður og færi fram að þessu gott en var að þyngjst mjög verulega.
Veðrið var bærillegt, nokkur vindur og lágrenningur með honum og 7 stiga frost.
Benni
09.02.2008 at 14:04 #613394Það er frábært fyrir okkur sófariddarana að geta setið heima og fylgst með gangi mála í Tetra stöðinni.
Tetra rúlar!
09.02.2008 at 15:43 #613396Eru menn komnir í Setrið??? Meiri fréttir.
kv:Kalli tetralausi.ps: hvar er best að fá sér TETRA stöð ????
09.02.2008 at 16:19 #613398Fyrstu bílar komu í setrið rétt fyrir kl 3 í dag og gekk bara nokkuð vel nema síðustu 2 km en þar var færið orðið töluvert þyngra
Heyrði í Ægi en hann var að leggja af stað við annan mann frá Selfossi og reiknað með því að reka lestina og sjá til þess að allir kæmust uppeftir
Tetra samband hélst uppeftir um 99 % af leiðinni með handstöð og er glimrandi gott samband inni í húsi uppfrá.
Benni
P.S.
Það er líka komið Vodafone gsm samband á hlaðinu.
09.02.2008 at 16:41 #613400eru síðustu bílar að fara núna?
09.02.2008 at 16:43 #613402Já ég talaði við Ægi núna fyrir um hálftíma og þá var hann að leggja af stað frá Selfossi og taldi sig vera með síðustu bílum uppúr.
Eitthvað hafði hann þó haft fréttir af hópum sem voru að snúa við en taldi þó að þar væri einhver misskilningur á ferðinni og við voru sammála um að dagur viðsnúninga hefði verið í gær….
Benni
09.02.2008 at 16:55 #613404veistu hvort þeir eru farnir af stað ég er ekki með sorglegt gps tæki og treysti mér ekki einn
09.02.2008 at 18:29 #613406Var að spjalla við Þorgeir – í Setrinu er verið að undirbúa mat og fjörið rétt að komast af stað. Lítilega hefur fjölgað og standa nú 14 bílar á hlaðinu.
Fastur og félagar eiga um 10 km eftir í hús og Ægir er væntanlega dálítið fyrir aftan þá.
Benni
09.02.2008 at 21:23 #613408Hvernig er það var ekkert farið að panta varahluti inní setur ? komust allir inneftir án þess að brjóta neitt ?
Kv Bubbi
09.02.2008 at 22:39 #613410‘Eg heiri að tetra er að virka bara vell svo að það kerfi er að sanna sig sem er gott mál. Það er það sem koma skall, hvað eru margir þarna núna hver veit það.
kv,,, MHN
10.02.2008 at 23:07 #613412Við vorum að þvælast inná kili í dag og heyrðum ekki í neinum sem voru að koma úr setrinu. Spurning hvort allir hafi farið Sóleyjarhöfðann,eða hvort það séu einhverjir ennþá að brasa á leiðinni ? [url=http://http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5911/48387:3vo18ueb][b:3vo18ueb]Kalli kafteinn[/b:3vo18ueb][/url:3vo18ueb]
10.02.2008 at 23:08 #613414Við vorum að þvælast inná kili í dag og heyrðum ekki í neinum sem voru að koma úr setrinu. Spurning hvort allir hafi farið Sóleyjarhöfðann,eða hvort það séu einhverjir ennþá að brasa á leiðinni ? [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5911/48387:3mdla3cm][b:3mdla3cm]Kalli kafteinn[/b:3mdla3cm][/url:3mdla3cm]
10.02.2008 at 23:48 #613416Held að flesir séu komnir í hús. Síðustu bílar komu í Hrauneyjar um 20 eftir fjöruga helgi en við fórum Sóleyjarhörfðan heim.
Held að allir bílar hafi komist án skakkafalla þessa ferð. Meira að segja matarbíllinn greinilega málið að senda ónýtamatinn með ERTAÐKOMA.
Kveðja Lella
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
