FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Þorrablótsförum miðar hægt

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Þorrablótsförum miðar hægt

This topic contains 63 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Kjartan Gunnsteinsson Kjartan Gunnsteinsson 22 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 31.01.2003 at 22:03 #192089
    Profile photo of
    Anonymous

    Nýjustu fréttir af þorrablótsförum eru þær að Skemmtinefndin í 5 bíla hóp er nýkominn yfir Rauðá sem er rétt fyrir innan Svíná. Einhvað bras var á Lúter í Svíná en símasamband rofnaði áður en ég fékk nánari fréttir af því. En Lúrer ætti að vera í góðum málum því Magni Magnaði suðumaður er með í för. Eru þeir því skammt frá afleggjaranum inn á Klakksleið og eiga bara eftir að fara yfir Innri Rauðá áður en komið er inn að gatnamótum. Síðast staðsetning var 6428796-1940356. Með þessum ferðahraða er metið í nýliðaferðinni 2001 í fallhættu. Reynt verður að fylgjas með fram vindun mála hjá þeim ferðafélögum einsog kostur verður. Þeir ættu allavega að hafa nóg að éta enda með fulla bíla af úldnum mat.

    Jón Snæland.

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 63 total)
← 1 2 3 4 →
  • Author
    Replies
  • 02.02.2003 at 00:51 #467432
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Hey….

    Það hefur ekkert verið skrifað núna í 40 mín, ekki drepa mann alveg úr spenningi!!! Segið eitthvað….

    Annars baráttukveðja að norðan
    Benni





    02.02.2003 at 01:01 #467434
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Núna er "bara" 550 metrar eftir og gengur rólega en menn vona að þetta hafist á næsta klukkutíma





    02.02.2003 at 07:59 #467436
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Nýjustu fréttir eru þær að kl 12,30 eftir miðnætti var hópurinn 1,7 km frá Setrinu og höfðu þá farið 300 metra síðasa klukkutíman svo þeir eru nú ekki aldeilis stopp.
    Framdrifið er farið hjá Kjartani og hann kominn í spotta,
    Reinir orðin bremsulaus og er það ekkert grín á þessum hraða, Danni skröltir áfram með ónýta felgu og felgubolta og eru nokkur dekk illa farin eftir átök við grjót og hraun.
    Ég var að velta fyrir mér hvað það væri eiginlega sem fengi fólk til þess að aka í 33-34 tíma og vera vakandi í 41-42 tíma. Er það virkilega þessi ýldu kokteill sem búinn er að veltast um á pallinum hjá honum Lúter. Og þá afhverju að flýja til fjalla með kostinn. Ég get skilið að kvenfólkið vilji fá að vera áfsíðis með sína punga, en þá karlarnir ??????????? hvað með þá.

    PS Enginn afsláttur er veittur af skálagjöldum þótt hópurinn hafi verið að slugsa og draga lappirnar á leiðinni og ekki komið fyrr en eftir míðnætti.

    Skálanefndinn.

    Auka PS Leigan á koju plássi í skálavarðaríbúð hækkaði frá og með 1 febtúar 2003 í krónur 3900 per nótt, ef keyptur er morgunmatur kostar nóttin 4900. Hægt er að fá einhvern afslátt ef samið er til lengri tíma en þó minnst í 3 mánuði.
    Skálanefndin.

    Á meðan eg var að pára niður þennan pistil fékk ég nýja fréttir. Hjólið er brotið undan bílnum hjá Danna og þurfti því að skilja hann eftir. Hópurinn var komin í Setrið kl 14, 30 í nótt.
    Jón Snæland.





    02.02.2003 at 08:09 #467438
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Hvort var það klukkan 02:30 eða 04:30 sem þeir komu í skála?
    Hvað gerir það í klukkutímum?





    02.02.2003 at 10:59 #467440
    Profile photo of Eyþór Guðnason
    Eyþór Guðnason
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 459

    Þetta er búið að vera gaman að fylgjast með þessum ævintírum. Ég er til í björgun ef með þarf ég get tekið begga með mér svo við losnum við þetta troppalínu dót(bara grínast granni). Kveðja Eyþór P.S hver verður á vakt næstu helgi.





    02.02.2003 at 11:44 #467442
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það eru farnir menn úr bænum og eru í Þjórsárdal núna og vitiði hvað Beggi er farþegi hjá Lúffa það þýðir ekki ízuzu færi





    02.02.2003 at 11:45 #467444
    Profile photo of Guðmundur Jóhannsson
    Guðmundur Jóhannsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 131

    Það er á svona stundum sem gott er að hafa þorramat, forfeður okkar lifðu á þessum mat yfir verstu vetrarmánuðina og er það geymsluþolið sem gerðir hann svona sérstkakan. Þorramaturinn skemmist ekki þó svo að menn þurfi að dvelja nokkra daga í Setrinu, ég vona bara að það sé nógar birgðir á pallinum hjá Lúter.

    Þorrablótsferðir hafa verið með ýmsu tagi hjá okkur í Eyjafjarðardeild gegnum árin, oftast hafa menn komist á blótið, stundum bísna hraktir en alltaf heilir á geði. Það er eftir lestur svona pisla að ég skil af hverju þorrablótið okkar er komið til ?byggða? ef Mývatnssveit telst til byggða.

    Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með þessu ferðalagi hér á spjallinu, vona að fréttaflutningur verði með svipuðu sniði þangað til menn koma til byggða.

    Gert í snjókomu á degi bílskúrs, Akureyri 2. febrúar,
    Mundi ritari Ungra vegfarenda.





    02.02.2003 at 12:04 #467446
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Núna er skálanefndin og nokkrir hjálparkokkar á leiðinni inn í Setur með varahluti og óskemmdan mat. þeir eru staddir við hrauneyjar núna og ætla að fara Sóleyjarhöfðann. Fréttaritari hefur það fyrir satt að Beggi hafi ekki treyst Troopernum í ferðina þannig að hann fékk far í DATSUN með lúffa. Og að sjálfsögðu drattast Hlynur yfir DATSUN maður einhverstaðar á eftir hópnum.





    02.02.2003 at 12:14 #467448
    Profile photo of Soffía Eydís Björgvinsdóttir
    Soffía Eydís Björgvinsdóttir
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 296

    …ég þarf að nota hann sjálf í dag til að komast í Smáralindina…

    Annars var ég að tala við Begga og þeir voru nýbúnir að snæða íslenska kjötsúpu í Hrauneyjum. Voru að bíða eftir Hlyni, hann var eitthvað seinn af stað úr bænum, líklega Pattinn að mótmæla því að vera dreginn á fjöll..
    Það er skafrenningur og og skyggni stundum lítið á köflum. Þorrablótsfarar eru lagðir af stað úr Setrinu, þeir skildu víst bílinn hans Kjartans eftir, voru eitthvað að reyna að laga þetta felguboltavesen hjá Patrolnum og það eru einhver dekkjavandræði en Hrauneyjahópurinn er víst með aukadekk handa þeim.

    Fjallakveðja,
    Soffía





    02.02.2003 at 12:54 #467450
    Profile photo of Eyþór Guðnason
    Eyþór Guðnason
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 459

    Veit einhver hvernig eldsneytisbyrgðir hjá þeim þorrablóts förum? Hvað komust margir í setrið? Þetta er eins og spennandi sagamála saga.

    Eyþór.





    02.02.2003 at 13:56 #467452
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Nýjustu fréttir af björgunarleiðangrinum Hlynur er kominn úr tefunum það þýðir þúngt fyrir ofur Datsun en hann var kominn með Toysu í spotta.Þeir eru að fara yfir Sóleyjarhöfða núna í góðu veðri og bláum himni……..
    Matti R1625





    02.02.2003 at 14:39 #467454
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Skálanefnd og DATSUNFÉLAGIÐ eru komnir yfir Sóleyjarhöfðann og gengur ágætlega það gengur á með éljum en bjart þess á milli. Ekki mjög mikill snjór en þó erfiðir púðurskaflar sem tefja för, en formaður DATSUN klúbbsins öslar áfram og treður brautina fyrir bíííííííb.





    02.02.2003 at 15:56 #467456
    Profile photo of Soffía Eydís Björgvinsdóttir
    Soffía Eydís Björgvinsdóttir
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 296

    Þeir eiga um 1.7 km eftir í Setrið og allt orðið blint. Kjartan og Co virðast vera búnir að laga felguboltavesenið (þeir skildu bílinn hans Danna eftir í nótt)og voru á leið aftur upp í Setur. Ferðin hefur gengið vel hjá Jóni Snæland og Co, einhverjar festur og varð Beggi að slíta samtalinu við mig rétt í þessu því það þurfti að spila einhvern Patrol upp úr festu. Það hefur sem sagt eitthvað verið um spottavesen á leiðinni þótt þetta hafi almennt gengið vel.





    02.02.2003 at 16:40 #467458
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það styttist núna eru "bara" 1,3 km eftir inn í setur hjá DATSUNKLÚBBI ÍSLANDS og skálanefnd, glórulaus skafrenningur og þungt færi. Það eru 10 bílar inn í Setri og þeir sem þar eru eru búnir að gera við Datsuninn með slitnu felguboltana, það skal tekið fram að hann er á toyota hásingum. Núna vantar bara öxulinn í toytrooperinn hjá formanninum. Aðspurðir hvenær þeir ætlaði að leggja í hann til baka sögðust þessar fjallahetjur fyrst reyna að koma sér alla leið áður þeir færu að leiða hugann að heimferð.
    PS. síminn í Setrinu virðist vera bilaður, það vantar einhvern viðgerðarmann frá SÍMANUM til að gera við.





    02.02.2003 at 16:59 #467460
    Profile photo of Árni Baldvinsson
    Árni Baldvinsson
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 61

    Við fórum nokkrir félagar Kaldadalinn upp að Langjökli. Það var allt í lagi færi að jökli en rosalega þungt á jöklinum sjálfum. Við klifruðum í 11oo metra en það tók okkur 2 tíma. Bara kúludráttur í ótrúlega þungum snjó. Það voru nokkrir bílar þarna að reyna við jökulinn en það fór einginn upp þarna. Ég held að við höfum farið hæst af þeim sem voru að reyna. Ef eihverjir fóru á jökulinn í gær til að komast á blótið þá vona ég að þeir hafi haft með sér mikið af skemdum mat. Þeir koma ekki til manna í bráð.

    kv
    Árni Bald





    02.02.2003 at 17:17 #467462
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Björgunarleiðangurinn geysist nú áfram á ógnarhraða, núna eru eftir 1,0 km í Setur einsgott að löggan sé ekki að mæla. veðurlýsing í Setrinu 20 m/s -14 gráður C.





    02.02.2003 at 17:44 #467464
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    æi, alltaf missir maður af mesta fjörinu. Ef Matti er að segja satt að það sé ekki lengur tefufært er ég eflaust að missa af góðu tækifæri að ná í myndir í myndaalbúmið "ofurdaddinn fastur"!! :)

    Kv. Inga





    02.02.2003 at 18:11 #467466
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þeir eru komnir að veðurstöðinni og sirka 800 metrar eftir þannig að þeir ættu að ná þessu fyrir miðnætti miðað við Datsun færi……..
    Matti R1625





    02.02.2003 at 18:21 #467468
    Profile photo of Soffía Eydís Björgvinsdóttir
    Soffía Eydís Björgvinsdóttir
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 296

    …ferðalangarnir eru komnir í Setrið (kl. 18:09:35) og eru að snæða hrútspunga. Munu leggja af stað heim á leið von bráðar, þurfa að koma við í einni gjótu á bakaleiðinni og hirða upp eitt stykki Toyotu sem situr þar föst. Þessi Toyota hafði mikla ofurtrú á sjálfri sér og fylgdi í humátt á eftir "björgunarmönnunum". Og svo fór sem fór.





    02.02.2003 at 18:24 #467470
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Björgunarleiðangurinn ógurlegi var að lenda á hlaðinu við Setrið, skyggnið er heldur að lagast og nú ætla allir að leggjast á eitt við að borða skemmdan mat til að létta bílana og síðan á að "bruna" í borgina.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 21 through 40 (of 63 total)
← 1 2 3 4 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.