FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Þorrablótið næstu helgi

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Þorrablótið næstu helgi

This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 22 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.02.2003 at 13:59 #192135
    Profile photo of
    Anonymous

    Við erum hér tveir á einum bíl sem erum á leiðinni á þorrablótið næstu helgi en komumst ekki af stað úr bænum fyrr en á laugardagsmorgni. Það væri vel þegið að fá að heyra í fleirum sem ætla af stað á laugardeginum og jafnvel vera samferða.

    kv
    Sveinn

  • Creator
    Topic
Viewing 16 replies - 1 through 16 (of 16 total)
  • Author
    Replies
  • 06.02.2003 at 14:51 #468022
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Sæll Sveinn

    þegar þið leggið af stað verðum við komnir í Setrið
    (vonandi:)

    Endilega hringið í okkur á Laugardeginum í Setrið og leyfið
    okkur að fylgjast með, einnig ættum við þá að geta upplýst
    ykkur um veður og færð.

    síminn í Setrinu er 855-5565.

    ferðakveðjur Lúther





    06.02.2003 at 15:34 #468024
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir Lúther
    Hvernig er það ætla menn að fara erfiðu leiðina þ.e fara Klakksleiðina eða ætlið þið að fara Sóleyjarhöfðavaðið. Hvernig er það annars er Vaðið ekki "lang fljótfarnasta" leiðin þangað og hvernig er að fara þá leið fyrir þá sem ekki þekkja hana?

    Kv
    Sveinn





    06.02.2003 at 16:34 #468026
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Við förum Sóleyjarhöðavaðið, já það er virkilega erfitt
    að sega það.
    en það er fljótlegasta leiðin ekki nema 17 km eftir að
    vegi sleppir.

    vaðið er hættulegt fyrir þá sem ekki þekkja það, mig grunar
    nú reyndar að það hafi hlýnað þarna uppfrá frá því um
    síðustu helgi og ekki er það þá betra.
    En það væri fínn Laugardagsrúntur að koma á móti ykkur.

    kv. Lúther





    06.02.2003 at 17:01 #468028
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Vaðið er ekki hættulegt á þessum árstíma (yfirleitt ekki allavega!). Það er búið að vera það mikið frost þarna og það lengi að áin er algjörlega gaddfreðin. Myndi ekki hika við að keyra fulllestuðum 18-hjóla vörubíl með trailer þarna yfir núna. (Reyndar ekki nema nokkrar vikur síðan að ég keyrði yfir bæði Markarfljót og nokkrar aðrar sprænur inn á fjallabak á ís, á 10 tonna sæluhúsi)

    Varúð skal samt alltaf viðhöfð þegar ekið er yfir ís, og trakkinu skal fylgt hið ýtrasta þarna yfir. Áin undir er tiltölulega grunn (hefur verið ekin á fullvaxta jeppum á sumrin)

    Vestar á leiðinni er frekari hættur, eins og Hnífa (bergvatnsá), óvænt gil sem við félagarnir "rákumst á" (bókstaflega) um síðustu helgi, og botn á holu sem vinur Begga keyrði á. Sem sagt, bara eins og flestar aðrar leiðir á hálendinu :)

    Sjáumst í Setrinu.
    R2018
    ps. Tímamet mitt á þessari leið eru ca 12 tímar :)





    06.02.2003 at 17:05 #468030
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    eru í myndaalbúminu undir Matti. Ekið í október minnir mig, og óvenjulítið vatn í.

    R2018





    06.02.2003 at 18:05 #468032
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Hafa menn prófað að fylgja farvegi Blautuvíslar frá Sóleyjarhöfðavaði langleiðina upp í Setur? Með því móti ætti menn að vera lausir við brekkur, gil og gjótur, að ekki sé talað um Hnífána. Ég hef nokkrum sinnum ekið frá Setri að Nautöldu, síðast 19 janúar síðastliðinn. Þá urðum við ekkert varir við Blautukísl, þó hún sé þarna eitthversstaðar.





    06.02.2003 at 18:12 #468034
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    af gefnu tiefni frá síðustu helgi þar sem gagnrýni kom fram að ekki næðist í neinn úr þorrablótsnefdinni,og á sú
    gagnrýni líklegast við einhver rök að styðjast þá
    gef ég upp númerið hjá mér í bílnum.

    Bílasími 855-4301
    Setursími 855-5565

    p.s. þetta 12 tíma met verður EKKI slegið.
    kv.Lúther





    06.02.2003 at 19:06 #468036
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Sveinn þú er allavega á rétta bílnum til þess að fara þessa leið einn. En svona án grýns þá á maður nú ekki að vera að þvælast einn, það fékk hann Gústi að læra á síðustu helgi þegar hann lenti í læknum vestan Þjórsár.
    Einar benti á að hægt væri að aka Blautukvíslareyrarnar og er ég honum samála um að það sé góð leið þegar allt er frosið.Einnig er ég samála þeirri fullirðingu þess að hægt væri að aka 18 hjóla trukk yfir vaðið og mætti hann vera með skriðdreka á pallinum. Þetta með aksturstíman þá vorum við 6-7 tíma síðustu helgi þrátt fyrir heimsókn í gil í um 1 tíma.Í góðu færi er þetta ekki nema 1-2 tíma akstur.

    6432093-1839780 Kvíslaveituvegur
    6431980-1843379 VP
    6432459-1845060 VP
    Komið er að smá brekku austan Þjórsár þar sem er ekið í einhverskonar farveg, þar þarf að fara varlega þar voru menn að festa sig síðustu helgi
    6432940-1846019 Austurbakki Þjórsár
    Taktu stefnuna á miðja eynna og yfir hana, stefnan yfir vestari álinn er hægra meginn torfkofans á vesturbakkanum
    Ath neyðarskýlið á vestur bakkanum er brunnið hefur sennilega brunnið seint í haust.
    6433120-1846319 Vestari bakki Þjórsár
    6433181-1846556 Lækur þar þarf að fara varlega því hann er djúpur en hægt er að fara yfir hann á snjóbrú
    6434744-1850430 VP leiðin að þessum punkt liggur um mjög þýft svæði þar sem auðvelt er að sitja fastur milli þúfnana.
    6435951-1855626 VP
    6435625-1859418 VP
    6436239-1901292 VP
    6436727-1901675 Sléttan
    6436906-1901159 Setrið
    Ef notaðir eru þessir punkta er ekið á milli Hnífár og Blautukvíslar en farið er yfir Hvífá á eyrum þar sem hún er pikk frosin.

    Jón Snæland.
    Góða ferð.





    06.02.2003 at 19:12 #468038
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Fyrirgefið gleymdi vegalengdinni 20,4 km frá Kvíslaveituveg
    Jón Snæland.

    PS Hlynur verður kominn í Setrið hann er svona 10-15 mínútur að skuttlast niður að vað ef hann er í stuði.





    06.02.2003 at 19:38 #468040
    Profile photo of Eiríkur Þór Eiríksson
    Eiríkur Þór Eiríksson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 354

    Á heimasíðu klúbbsins undir GPS grunnur er hægt að ná sér í punkta af þessari leið. Einnig hægt að skoða mynd af korti með leiðinni. Síðan eru punktarninr í Excel skrá, Nobeltec skrá og Garmin skrá ef ég man rétt.

    kv.
    Eiríkur





    06.02.2003 at 23:23 #468042
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Hvernig er það

    Þorir enginn að reyna við Kerlingafjallaleiðina?

    Og fer bara einn bíll á laugardeginum upp eftir?

    Ég er enþá að velja leið og dag.

    Kveðja Fastur





    07.02.2003 at 09:50 #468044
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Við erum búnir að safna saman litlum hópi upp á 3-4 bíla sem leggur af stað á laugardagsmorgni kl 9.00 frá Select á Vesturlandsvegi og ef fleiri eru að hugsa um að slást í hópinn bíð ég þá bara velkomna.
    Sjáumst í Setrinu

    kv
    Sveinn
    898-8383





    07.02.2003 at 17:57 #468046
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Eru allir í f4x4 búnir að setja skottið á milli lappanna ..

    Ég held að þið teljist ragir allir sem ein heild.

    Ég ætla allavegana ásamt ferðafélögum mína að reyna við Hveravelli og fara síðan Kerlingfjallaleiðina.

    Ég hringdi í Hveravallabóndann og hann sagði mér að það hefði ringt og fryst aftur .. þannig að það væri hart með púðri í sköflum. Mesti snjór vetrarins væri mættur þar.

    Við leggjum af stað fyrir 8 og vonumst til þessa að hitta einhverjar hetjur á þessari leið.

    Kveðja Fastur

    ps. endilega takið þetta til ykkar … og ég sendi ykkur mnt símann hjá mér á eftir





    07.02.2003 at 18:29 #468048
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Þið sem eruð í bænum og fylgist með þá vildum við gjarna fá fréttir af gangi mála og allt er í óefni.

    Arnór er í hópnum hjá okkur og er með símann: 8532016

    Ferðatilhögun:

    Við Förum í kvöld á Hveravelli um Kjöl.

    Gista þar og leggja síðan árla morguns í Setur um Kerlingafjöll.

    Ef færi er vont þá munum við snúa við af Kyli og fara sóleyjarhöfðavaðið ásamt allri hersingunni.

    Kveðja Fastur





    07.02.2003 at 19:22 #468050
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir félagar!
    Ég er í hinum mestu vandræðum með að komast í Setrið þessa helgina. Ég er bíllaus eða þannig! Toyota rav ekki alveg að meika það þarna uppeftir og bílstjórinn sem ég ættlaði með að klikka á því á seinustu stundu… ef einhver er til í að taka með sér aukamann þá er ég tilbúinn að taka þátt í kostnaði við að komast þarna uppeftir. Jeppalaus er eins og að vera eistnalaus.. :-)

    Ferðakveðja Davíð





    07.02.2003 at 19:24 #468052
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Úppss gleymdi símanúmerinu! 697-3080 …með krosslagða putta Davíð





  • Author
    Replies
Viewing 16 replies - 1 through 16 (of 16 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.