Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › „ÞORRABLÓT“ hið fyrra
This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Lúther Gestsson 21 years ago.
-
CreatorTopic
-
06.01.2004 at 12:35 #193397
ég er eitthvað áttaviltur þessa stundina enda búinn að steinliggja með flensu undanfarið, en hvar er
HÓLASKÓGUR ?kv
js -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
06.01.2004 at 12:43 #483508
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
[img:2o0pi8f2]http://notendur.centrum.is/~bergleif/holasand.jpg[/img:2o0pi8f2]
Hólaskógur er skóglaust svæði á sunnanverðum Gnúpverjaafrétti á svokölluðu Hafi milli virkjananna í Búrfelli og Sultartanga. Þangað liggur slóði frá aðalveginum og áfram um línuveg ofan Háafoss, alla leið að Tungufelli í Hrunamannahreppi. Einnig er hægt að komast í Hólaskóg um Þjórsárdal, ef ekið er upp með Gjánni (grófur vegur). Þarna er gangnamannakofi og vinsæl gistiaðstaða.
tekið af http://www.nat.is
ÓE
06.01.2004 at 13:13 #483510Þakka þér Óskar
06.01.2004 at 13:51 #483512
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Átti ekki "þorrablót hið fyrra" að vera Í BYGGÐ ???
Bara spyr…
06.01.2004 at 14:08 #483514Ef þetta er ekki í byggð þá er ekki hægt að hafa þorrablótið upp í Árbæ
Kveðja SIGGI
06.01.2004 at 16:27 #483516Sælir
Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að "Í byggð" þýddi að maður gæti tekið leigubíl heim að blóti loknu en þyrfti ekki að gista.
Er ekki nóg að Seinna blótið taki heila helgi ?
BM
06.01.2004 at 16:37 #483518
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Er þetta ferðaklúbbur eða er þetta ekki ferðaklúbbur. Bara svona að velta því fyrir mér! Ferðalög með leigubílum eru að mínu viti utan við svið Ferðaklúbbsins 4×4, nema ef verið sé að tala um MountainTaxi.
Kv – Skúli
06.01.2004 at 17:11 #483520Hó.
Eruð þið virkilega að tala um það að Ferðaklúbburinn 4×4 þurfi að standa fyrir þorrablóti hér í borginni ? Þá lítur þetta þannig út, 35 – 44 tommur í Setrinu, 33 og minna í Hólaskóg og framdrifnir í hádeginu á fimmtudaginn í Múlakaffi.
Kv
Palli
06.01.2004 at 17:35 #483522Hingað til hafa öll bjórkvöld og einnig Árshátíð 4×4 verið haldin í henni fögru Rvk, svo það er nú í lagi að þorrablót í byggð verði ekki í Rvk enda ef þið eigið edrú kóara þurfið þið ekki að gista
Kv.Lúther
06.01.2004 at 17:42 #483524góðir Palli-Skúli-Lúther
flott að geta boðið upp á mismunandi in-land-blót-staði, hver segir að færið í Hólaskóg verði fært 33" bílum 31 jan 2004 ??? munið jákvæða ferðaskapið og að lítil þúfa veltir þúngu hlassiEr einhver trygging fyrir því að það verði yfirleitt fært inn í Setur 7 feb. 2004 ? þó svo maður voni nú allt og öllum hið bezta !!
er ekki verið að reyna að koma til móts við alla í 4X4
finally haha líka þá sem nenna ekki neinu hmmmkv
js
06.01.2004 at 17:50 #483526Sælir
Ég var alls ekki að meina að 4×4 ætti að standa fyrir blóti í bænum. Ég stóð hins vegar í þeirri meiningu að fyrra þorrablótið væri þannig – minn misskilningur.
Hitt er annað mál að það væri örugglega ekkert vitlaust þar sem að það eru ekki allir sem geta tekið tvo daga í þorrablót en væru samt til í að vera með….
BM
06.01.2004 at 18:26 #483528Sannleikurinn er sá að Lúther ætlar að komast á blótið og það er ástæðan fyrir því að blótið verður í Hólaskóg. Þrátt fyrir að blótið verið haldið við malbikaða hraðbraut, hef ég heimildir fyrir því að restin í skemmtinefnd hafi skipað honum að leggja á stað þremur dögum fyrir blót, til að komast örugglega tímalega í hús. Þrátt fyrir þetta eru menn farnir að rotta sig saman, til að standa að enn einni hetjulegri Lúthers björgun í viðbót, en það stefnir í að þetta verði 117 skiptið sem Lúdda verður bjargað.
újéééé
Hlynur
06.01.2004 at 23:17 #483530Nú jæja það er þessi pakkinn, hamast á mér daginn út og inn, ferð svo og gerir alla snarvitlausa í kringum þig í gærkveldi á Loftleiðum, samt ótrulegt hvað þú sast hljóður þegar þú starðir hugfanginn á myndbandið þar sem Toyotur voru í öllum hlutverkum (náðir ekki að ropa).
Enn eitt get ég sagt þér Hlynur að ef ég kemst ekki á blótið í Febrúar þá er ófært.
Best að ég renni til þín í vinnuna á Föstudag og sýni þér nýja bílinn hann ætti að verða kominn af lyftunni þá.það er bara svoleiðis núna Hlynur minn að ef ÞÚ kemst það kemst ÉG það.
Ekki samt ólíklegt að ég verði bara 3 daga á helvítis blótið
enda verður örugglega erfitt að stöðva Pattann og ég renni líklega á Grímsfjallið rétt áður enn ég kem með matinn í Setrið.P.S. Ef þetta einelti í minn garð heldur mikið meira áfram finnst mér að Klúbburinn ætti að gefa mér bol og húfu frá Regnbogabörnum.
KV. Lúther
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.