Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Þorrablót
This topic contains 27 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 20 years ago.
-
CreatorTopic
-
03.02.2006 at 00:10 #197224
Þetta lofar góðu! Undanfararnir sem eru Benni Pajero „44, Vals „38 Pajero og Einar „38 stuttum LC
og síðastur og ekki sístur Lúther á „136 BLEIKU GAY BANDI sem fer reyndar fyrir hópnum í þessum orðum og reynir ALLT sem hann getur og er honum einum lagið til að koma þeim í vandræði, en semsagt þeir eru farnir að nálgast Sóleyjarhöfðann og allt gengur glymrandi vel.
Kveðja Lella -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
03.02.2006 at 00:58 #541272
….að gerast
2,9 km eftir að vaðinu
03.02.2006 at 01:39 #541274jæja þá er fyrsti bíl kominn á eyjuna á sólheimavaðinnu ( toyota ) hinnir eru að feta sig yfir talaði við benna og það virðist sem að þetta sé ekki eins slæmt of það var hjá okkur í fyrira
ps. svo er skrufan sem ég lánaði benna að rótvirka
03.02.2006 at 01:57 #541276Talaði við Benna á meðan hann keyrði yfir vaðið 15 cm. krapi og malbik undir sagði hann, lítið vatn í ánni og engin vandamál enn sem komið er.
Kveðja Þorgeir
03.02.2006 at 02:14 #541278og þetta er ekkért mál enda engin patrola með í ferð.
allir komnir á fart og krapa pitinir teknir á ferðinni.verum í bandi
skari
03.02.2006 at 02:30 #541280Kapparnir voru að læðast yfir Hnífá, trúi því varla að þetta gangi svona vel hjá þeim. Ef fram heldur sem horfir þá mun þetta vera í fyrsta sinn í nokkuð mörg ár sem maturinn kemst í Setrið fyrir blót.
03.02.2006 at 07:35 #541282nei nei Ella þeir eru ekki með matinn. Það er kannski þessvegna sem þetta hefur gengið svona vel hjá þeim.
Kveðja Lella
03.02.2006 at 09:32 #541284Ok, Takið þið Þorgeir matinn? Hef nú trú á að þið skilið honum af ykkur innan tímamarka 😉 En skynsamlegt af Lúther að fara á sleða, miklu auðveldara að draga sleða úr krapa heldur en Patrol.
03.02.2006 at 09:59 #541286Það er líklega ekki mikil hætta á að Lella eti allan þorramatinn á leiðinni, en er víst að hún missi hann ekki "óvart" í eitthvern krapapyttinn?
-Einar
03.02.2006 at 10:03 #541288Takk fyrir hugmyndina Einar, alveg snilld og svo geta þessi rammíslensku hraustmenni stungið sér í pyttinn og hámað í sig ógeðið meðan þeir svamla.
Góð hugmynd
Kveðja Lella
03.02.2006 at 10:36 #541290Var að heyra í þeim upp í Setri komu þangað kl. 07:00. Það tók langan tíma að finna færa leið frammhjá krapapollunum en tókst allt í rólegheitunum, ætla að vera búnir að skoða svæðið og finna betri leið í kvöld þegar við komum uppeftir. Nægur snjór á staðnum, svo bara gera sig klára og af stað, engar afsakanir teknar gildar.
Kveðja Þorgeir
03.02.2006 at 13:18 #541292Þeir eru nú hálf þreyttir félagar okkar uppi í setri
en þó er komið kaffi á könnuna samkvæmt Tedda. það ætti að vera hægt að elta förin þeirra uppeftir án vandræða.
Veðrið er gott hjá þeim og eru þeir að næra sig á kaffi og með því það er búið að vera frost í nótt en hitastigið í mælinum uppfrá er 0°
Þannig bara allir að drífa sig af stað.
kveðja
Gísli Þór
03.02.2006 at 14:40 #541294Morgunstund gefur gull í mund.
Við svilarnir reiknum með að leggja af stað í fyrramálið upp úr 9 frá Select.
…við getum þá hjálpað næturbrölturum ef þannig stendur á….
Ef fleiri eru á þessum buxunum, þá skulum við endilega hittast í fyrramálið. Gott væri ef viðkomandi sendi mér línu í tölvupósti.kv. Siggi
siggi @ tmd.is
03.02.2006 at 18:31 #541296Eru ekki einhverjar sögur að verða til. Eru ekki einhver vandræði að fara í gang !!!!
Góðar stundir
03.02.2006 at 18:45 #541298ég er til í björgun. ég fyrirgef ykkur seint ef ég verð skilinn eftir heima.
Keðja Kalli bjargvættur
03.02.2006 at 23:52 #541300af ferðalöngum ?
Siggi
04.02.2006 at 00:23 #541302Maturinn er strand í biluðum flutningabíl 100 metrum frá Setrinu. Gott ef lærið hennar Lellu er ekki einmitt líka í þeim sama bíl, spurning hvort að það þurfi að fá Lúther á Hommableiku reiminni til að selflytja vistirnar í Setrið…
04.02.2006 at 01:14 #541304Ég trúi ekki á öðru enn að Valur frændi reddi þessu smáræði,
enda við Víkingar að Vestan, Það er ekki hægt að týna matnum á leiðinni,bilað hvað, uss ekki láta það fréttast.
Hvernig er annars færðin, er ekki blautt,,,,,,,, !kv.ö-1235
04.02.2006 at 08:21 #541306Er ekkert að frétta?
Við erum að fara að leggja af stað í fríðum hópi.
Arnór
Atli
Fastur
Magnús
Einar
og einhver sem við þekkjum ekki neitt en er búinn að nauða út að verða samferða.Verðum í Hrauneyjum klukkan 10 og síðan ekki slegið af fyrr en í Setrinu eða fyrsta krapapytti.
Kveðja Fastur
04.02.2006 at 08:42 #541308Brottför okkar Einars H. mun seinka um 1-2 klst. vegna innbrotstilraunar í jeppann hans.
Svo heppilega vill til að það virðist sem engu hafi verið stolið, en Einar þarf að hreinsa upp glerbrot og ganga frá einhverri vindhlíf í stað rúðunnar sem brotin var.
Fall er fararheill?
Siggi
04.02.2006 at 15:14 #541310Erum búnir að koma við í Setrinu. Erum á leiðinni í pottinn við Nautöldu.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
