This topic contains 102 replies, has 1 voice, and was last updated by Birkir Jónsson 11 years, 9 months ago.
-
Topic
-
Laugardaginn 2. febrúar 2013 verður haldið Þorrablót F4x4 í setrinu.
Fastur og félagar munu sjá um að troða öllum þorramatnum í minnsta bílinn og draga hann upp eftir.Verður hver að koma sjálfum sér uppeftir á eigin vegum. Gott er að menn rotti sig saman í hópa til að vera samferða uppeftir.
Ekki nein skipulögð dagskrá önnur er áta og ólæti.
Í fyrra var mikið kapp í mönnum. Kepptu menn í greinum eins og:
Hver getur keyrt á stærsta steinninn og eyðilgat bílinn sinn mest – keppnin.
Hver getur fest dýpst og hraðast á hlaðinu í Setrinu.
Flest eyðilögð dekk í sömu brekkunni.
Flestir tappar í dekki.
Beyglaðasta felgan.
Flest lánuð dekk.
Mest brotna drifið.
Besta lýgin í talstöð.
Beyglaðasta spirnan.
Að vera hann.Var keppnin í fyrra geysi spennandi.
Verðið er ekki komið á hreint (ca.5-50þús) en borga verður fyrir 14. janúar 2013 til að halda plássinu.
Aðeins 45 gistirými eru í boði og ekkert prútt með það.Skráning berist á netfangið: thorrablot.f4x4@gmail.com
Aðeins verður leyft að panta fyrir 4 á hverja kennitölu og verðu að vera staðfest nöfn á bakvið hverja pöntun.
Þeir sem panta fyrstir eru efstir á lista og þeir sem panta síðast eruð síðastir á lista.
You must be logged in to reply to this topic.