This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Benedikt Magnússon 17 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
07.03.2007 at 12:45 #199866
Var að frétta af einni slíkri næstu helgi upp í setur það væri gaman að heyra hvaða þingmenn ætla með upp í okkar góða Setur.
GÞÞ -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
07.03.2007 at 13:30 #583668
Sæll
Jú það er rétt að um næstu helgi ætlar stjórn með nokkra boðsgesti upp í Setur.
Til ferðarinnar var boðið nokkrum af þeim aðilum sem fara með mál er okkur tengjast og eins nokkrum af helstu samstarfsaðilum Boðið var:
Umhverfisráðherra og aðstoðarmanni
Samgönguráðherra og aðstoðarmanni
Heilbrigðisráðherra
Umhverfisnefnd alþingis
Forstjóra umhverfisstofu
Sýslumanninum á Selfossi
Sveitarstjóranum í Hrunamannahrepp
Sveitarstjóranum í Bláskógabyggð
Byggingafulltrúa uppsveita Árnessýslu
Forstjóra o.fl frá Landmælingum
Tengiliðum okkar hjá Shell
Tengiliðum okkar hjá Landsbankanum
Forseta og framkvæmdastjóra Ferðafélags Íslands
Fulltrúa frá Útivist
Fulltrúa frá Landvernd
Fulltrúa frá VÍKÁ þessari sundu er ekki alveg ljóst hverjir munu koma – en það skýrist á morgun. En þó er þegar orðið mikið um að fólk sé upptekið.
Benni
07.03.2007 at 15:20 #583670Er það nú ekki samt deginum ljósara að sýsli verði með yfirlitsflug og komi á henni Siv… ég meina Sif til fjalla.
Spurning um að biðja hann að ferla nokkra slóða í leiðinni.
Nei nú er ég kannski búin að segja of mikið og dreg mig í hlé.
kv. stef. hin hlédræga ;->
08.03.2007 at 09:57 #583672Hefur komið í ljós hverjir fara í ferðina?
Kveðja Þorsteinn
10.03.2007 at 13:55 #583674Er eitthvað að frétta af þessari ferð ? var hún ekki farin ? Hverjir þáðu boðið ?
Bubbi
10.03.2007 at 19:59 #583676Umhverfisráðherraferðin.
Ég var að heyra í Setursferðalöngunum. Og voru þeir í þungu færi skammt frá Setrinu.
Skyggni nánast ekkert, skafrenningur og ofankoma, sem sagt skemmtilegt.
38 tommu jepparnir áttu í miklu basli og undir samtalinu festi einmitt viðmælandi minn sig. Hann Bjarni í stjórninni, Helga trúð gekk einnig mjög illa og hafði Lella það á orði að hann fengi ekki nafnið Fastur, því það væri upptekið, þó svo að Helgi væri alltaf fastur. Benni formaður var rekinn á brott og mátti hvorki vera í förum né ryðja. Þau sögðu hin að hann, gerði handónýt för og skemmdi þau sem fyrir eru. Hann er því utan slóðar með Jónínu Bjartmaz umhverfisráðherra humm hu
10.03.2007 at 21:23 #583678Hvaða leið fóru þeir ?
10.03.2007 at 21:26 #583680var það.
10.03.2007 at 21:29 #583682ég fór þar innúr um síðustu helgi og suður gnúpvrjaafrétt þá var eiginlega engin snjór á þessari leið fyrr en á hlaðinu í Setrinu. ætli þeir séu fastir þar. : ) gott að það sé farið að snjóa þarna.
11.03.2007 at 11:42 #583684Eru einhverjar fréttir af ferðalöngum?
11.03.2007 at 11:48 #583686Þeir eru að gera sig klára á planinu utan við Setrið. skyggni er lítið, og reikna þeir með að verða lengi niður að Sóleyjarhöfða. einnig er orðinn töluverður snjór í kringum Setrið.
11.03.2007 at 14:43 #583688Væri ekki nær að bjóða blaðamönnum með í ferð? Alveg hugsanlegt að þeir hefðu jákvæðari sýn á jeppa, breytingar og ferðalög ef þeir hefðu bara þekkingu á málefnunum sem þeir eru að skrifa um. Sýnist stundum vanta talsvert uppá það í þeirra skrifum…..Þessir þingmenn eru hvort sem er að hætta eftir örfáa daga 😉
12.03.2007 at 10:15 #583690Fáum við einhverja ferðasögu? Hverjir fóru með og hvernig gekk? Þið hafið örugglega staðið ykkur með sóma og verið til fyrirmyndar.
12.03.2007 at 10:24 #583692Setti ferðasögu og myndir á vefinn
12.03.2007 at 10:53 #583694Flottar myndir og ferðasaga hjá þér Barbara. Þetta framtak, að bjóða ráðherra o.fl. með í ferð er til fyrirmyndar og hefur vonandi mjög góð áhrif á okkar baráttu.
Það verður líka að segjast að Jónína sýnir mikinn áhuga með því að takast þessa ferð á hendur. Hvar eru allir hinir sem boðið var með?
Þið eigið hrós skilið
Þorsteinn
12.03.2007 at 13:15 #583696Ferðin heppnaðist í alla staði frábærlega og voru gestir okkar í sjöunda himni eftir ferðina.
Við fengum í raun sýnishorn af flestu því sem getur komið upp í hefðbundnum jeppaferðum, gott færi og afleitt færi, frábært veður og skygni og svo algera andstæðu þar sem ekið var eftir tækjum. Upp komu minniháttar bilanir og aðrar óvæntar uppákomur…. Og svo var að sjálfsögðu stórkostleg máltíð framreidd af Agnesi og hennar aðstoðarkokkum…. Sem sagt frábær ferð.
Hvað alla þá sem boðið var varðar þá voru menn ýmist uppteknir eða veikir. En flestir voru þó harðir á því að reyna að komast í næstu ferð. Og þessar tvær ferðir sem þegar hafa verið farnar eru það vel heppnaðar, þrátt fyrir misjafna mætingu, að það er öruggt að þetta verður að verða að árvissum atburði.
Benni
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.