FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Terrano

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Terrano

This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Pétur Viðar Elínarson Pétur Viðar Elínarson 20 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.01.2005 at 22:53 #195244
    Profile photo of
    Anonymous

    Sælir félagar,

    hvernig reynslu hafa menn af Terrano, 99 árgerð og uppúr. Bæði mikið breytta eða lítið breytta, Hvernig hafa þessir bílar verið að koma út, drífur þetta eitthvað, er eitthvað að bila sérstaklega eitthvað.

    Hef heyrt þetta með hjólabúnaðinn að framan að hann sé eitthvað að gefa eftir.

    Er að pæla, hvernig er með vélarnar, 2,4 bensín og 2,7 dísel, eru þetta fínir mótorarr, að gefa eitthvað frá sér sem hægt er að nýta.

    Er að pæla í 38″ eða bara kannski 33″, endilega lát heyr

    Jónas

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)
  • Author
    Replies
  • 16.01.2005 at 23:43 #513476
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Enginn sem veit neitt um þessa bíla, er búinn að vera grennslast aðeins um þetta, en kannast ekki við neinn sem þekkir til þannig að gaman væri að fá punkta frá ykkur ef þið hafið einhverja hugmynd hvernig þessir kaggar eru að standa sig.

    Jónas

    Það er að snjóa núna





    17.01.2005 at 02:52 #513478
    Profile photo of Pétur Steinn Pétursson
    Pétur Steinn Pétursson
    Participant
    • Umræður: 5
    • Svör: 24

    Hvað ertu að meina með "hjólabúnaðinn að framan"? Hvað er að gefa sig og hvernig kemur það fram?





    17.01.2005 at 07:08 #513480
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Mér skilst á þeim sem eru að breyta þessu bílum að það þurfi hreinlega að skera frambrettin inní hurð til að setja 38" undir, sama mál með nýja pickupinn sem þarf að færa boddýið aftar á grindinni til að þetta gangi. Svo eru eflaust til menn sem hafa gert þetta heima í skúr með sleggju og slípirokk og segja þér allt annað.

    Hringdu í Jeppaþjónustuna Breyti og spurðu þá, þeir hafa breytt haug af þessum bílum.





    17.01.2005 at 08:22 #513482
    Profile photo of Pétur Viðar Elínarson
    Pétur Viðar Elínarson
    Member
    • Umræður: 83
    • Svör: 275

    Góðan dag.

    Á Terrano á 33" og líkar vel við hann. Þetta er rétt sem komið er fram að það þurfi að skéra ansi mikið úr honum til að koma stærra en 33" undir hann og skilst mér að þá sé skorið mjög nálægt lömum og þurfi þá að styrkja þetta vel á eftir. En það eru til 38" Terrar og virka vel. Spurning um vinnubrögð. Erum vér Íslendingar ekki frægir fyrir að geta allt í þessum málum, spurning um réttu vinnubrögðin.
    Varðandi framhjólabúnaðinn að þá er hann örugglega ekki sá hentugasti til breytinga. Finn það á mínum að það þarf að hjólastilla hann reglulega því að hann virðist "detta" úr stillingu við minnsta högg. Er t.d nýbúinn að láta stilla hann og hann er aftur kominn í sama farið og hann var kominn í. Verður allur mjúkur og rásar mikið og hundleiðinlegur svoleiðis.
    Dísil bíllinn er að virka ágætlega hvað varðar afl og tog. Langar að setja í hann 2,5" púst, er með k&n og hann breyttist nokkuð við það sérstaklega þegar fellihýsið er með.
    Yfir heildina er ég mjög ánægður með þennan bíl og myndi hiklaust fá mér annan ef ég væri að leita.

    Kv
    Peve





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.