FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

tappasett í dekk

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › tappasett í dekk

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 20 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 30.12.2004 at 14:12 #195136
    Profile photo of
    Anonymous

    jæja þá strákar og stelpur, gleðilega hátíð!

    Hvaða tappasett er best á markaðnum?
    Og hvar fást þau?

    Var með tappasett frá Tech, svona í rauðum blikkkassa, það var lím, tappar, síll og tappatogari, og líkaði það helvíti vel, en nú eru tapparnir búnír, verkfærin týnd og límið harðnað… ég bara finn þetta hvergi aftur, Esso var að selja þetta fyrir nokkrum árum, en eru hættir með þetta og ég stend á gati sem lappalaus kona…

    … Kveðja Ein(n á flötu)ar AK

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 30.12.2004 at 14:32 #512036
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég hef farið þá leið, að frekar en að kaupa verkfærasett, að kaupa sjálflímandi tappa, sem ég held að séu ætlaðir til að fylla inn í sett, og nota skrúfjárn til þess að troða töppunum í eftir þörfum. Kostar minna og tekur minna pláss í bílnum.

    -Einar





    30.12.2004 at 14:34 #512038
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Issss, það er ekki neitt.

    Hann Einar, frændi minn, býr til gúmmí á staðnum úr dísilolíunni sem hann er með á tanknum.

    -haffi





    30.12.2004 at 15:00 #512040
    Profile photo of Hjalti Guðmundsson
    Hjalti Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 292

    Þú færð tappasett frá Tech ábyggilega í Ísdekk (Michelin umboðinu) upp á Tunguhálsi.

    Jólakveðja Hjalti





    30.12.2004 at 15:37 #512042
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég skoðaði Tech tappasett hjá Sólningu núna í haust, hvort þeir flytja þau inn það veit ég ekki en allavegana ætti að vera hægt að nálgast þau þar.
    Kveðja Gunnar Már





    30.12.2004 at 15:54 #512044
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    Ég keypti tappa og lím í gúmmivinnustofunni ekki fyrir svo löngu.





    30.12.2004 at 16:00 #512046
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Ég mæli eindreigið með rauða plast settunum sem fást í fjalla sport. Þau eru með græju sem hjálpar manni að skilja tappann eftir. Það er svona hringur upp á tólinu sem maður notar til að ýta sem heldur við tappann svo hann komi ekki til baka. Þar að auki eru þau úr málmi og eru bara mjög verkleg á alla kanta.

    Ef þú vilt nota lím á fjöllum er það fínnt ef það heitt og gott veður. Ég mæli með sjálflímandi töppum. Það að vera sulla einhverju lúða lími á þetta sem þornar á 3 mín við 20 stiga hita virkar mjög ílla í 10 stiga frosti.

    Hmphph Kveðja fastur





    30.12.2004 at 19:56 #512048
    Profile photo of Ásgrímur Stefán Reisenhus
    Ásgrímur Stefán Reisenhus
    Participant
    • Umræður: 16
    • Svör: 390

    þetta á allt að vera til hjá okkur í Gúmmívinnustofunni að réttarhálsi 2 ásamt hinum frábæru super swamper dekkjum.

    kveðja Ási og gleðilegt nýtt ár





    30.12.2004 at 23:03 #512050
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Eins og minntist á áðan skoðaði ég Tech settin í haust og leist ekki nógu vel á þau þannig að ég fór í Bílanaust og keypti mér sett þar sem samanstendur af 50 sjálflímandi töppum og mjög öflugri nál með þessu plast áhaldi sem minnst er á hér að ofan til að hjálpa við að skilja tappann eftir, ég bætti við þetta sett öflugum síl eða hvað sem áhaldið heitir til að reka inn á undann tappanum, allt þetta kostaði 5500kr með afslættinum frá 4×4. Ég hef reyndar enga reynslu af þessum sjálflímandi töppum en hef aðeins prófað hitt þannig að samanburðinn hef ég ekki.
    Kveðja Gunnar Már





    31.12.2004 at 11:21 #512052
    Profile photo of Bergur Kristinn Guðnason
    Bergur Kristinn Guðnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 371

    Helvíti gott sett sem ég keypti hjá Degi í Bæjardekk (besta dekkjaverkstæðið í bænum) með sjálflímandi töppum og lími líka ef maður vill nota það. ‘I litlum plastkassa sem fer á bak við spjald aftur í cruisernum mínum svo það er ekki plássfrekt. Dagur á líka TECH sett en mér leyst mun betur á þetta super seal sett.
    kv.Beggi





    31.12.2004 at 14:02 #512054
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þakka svörin, ætla að tjekka á þessu sjálflímandi setti í bílanaust, gott verð spilar þar sterkan þátt.
    Svona líka úr því minnst var á þetta með fljótandi lím og frostið og bleytuna, ekki gott saman þósvo að ég hafi mjög góða reynslu af þeim í hlýju, hvort sem við dekkjavélina á dekkjaverkstæðinu eða útá plani…

    Takk, og gleðilegt ár
    -Einar AK





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.