Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Tacomu druslur
This topic contains 18 replies, has 1 voice, and was last updated by Eiður Ragnarsson 15 years, 3 months ago.
-
CreatorTopic
-
16.04.2010 at 21:55 #212161
Hvernig er það,
eru þessar Tacomu druslur bara druslur eða hvað er málið??
Það er annar hver þráður um bilaða Tacomu, eða Tacomu sem er alveg að fara að bila, eða Tacomu sem er biluð en ekki biluð…
Hverjum datt í hug að flytja þetta drasl inn….
Eða eru þetta allt bara sögusagnir til að koma óorði á Tacomuna svo hún lækki í verði og þessir öfundsjúku geti nælt sér í eina til að geta prófað og séð máttinn og dýrðina.
Kv, Kristján
Sem er alltaf fyrstur -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
16.04.2010 at 22:42 #690930
Já Kristján þú sást máttinn og fékkst þér Hondu það er eiginlega öll dýrðin í þessu:)
Þú hefur verið rasskelltur af sjálfum þér (hvernig sem það nú er gert)
ps Fáðu þér Patrol og byrjaðu að drífa og sjá ljósið ég held að bróðir þinn sé að gera nákvæmlega það:)
kv Gísli
17.04.2010 at 08:38 #690932Er nú farið að gæta á Íslandi áhrifa frá áróðursherferð bandarískra bílaverksmiðja og stjórnvalda til að koma óorði áToyota.
17.04.2010 at 12:20 #690934Án ábyrgðar þá heyrði ég einhverstaðar að Tacoma væri að mestu leyti Landcruiser 120.
Hef keyrt Tacoma og var gríðalega hrifinn af þeim bíl.
Kv. SHM
17.04.2010 at 13:49 #690936hehehe
Já er alltaf að segja þetta, Patrol er það eina sem virkar. Bjarki er ekki farinn að trúa því ennþá…
Já þetta er sama ruslið og 120 cruiser enda er þetta sama druslan. Cruiserinn er þó öllu verri….
Annars halda menn kannski að því að Toyota World eru farnir að viðurkenna vandamál í bílum af Toyotu tegund þá eigum við ekki að gera það, Toyota er mátturinn og dýrðin og bilar aldrei, bara ómerkilegt viðhald.
Það er bara eigendum að kenna að vera alltaf með stífann fót á bensínsgjöfini og hinn á bremsuni og öfundsjúkir aðrir eigendur sé að skera skarð í afturdrifið svo það brotni, eða setjast framan á þá svo nöfin bogni eða haldi framdekkinu þannig frammdrifið brotni eða hella sjó yfir þá svo þeir ryðgi eða dragi þá á öryggisbeltunum þannig það teygist á þeim eða……..
Kv, Kristján
Tacoma er eina vitið
17.04.2010 at 21:18 #690938Skrapp aðeins austur fyrir fjall í dag, til að horfa á fretið úr Eyjólfi. Mætti vörubíl með 38" breytta Tacomu á pallinum, svo þessar sögur er líklega allar sannar. Tacoma er ruslahruga á hjólum.
Góðar stundir
17.04.2010 at 21:20 #690940Held frekað að jeppalausi lúðinn ( lesist sem Kristján ) sé bara að gera á sig af jeppaleysinu, enda hefur hann ekkert annað að gera en að skrifa hér á netið.

Kv Bjarki
18.04.2010 at 16:20 #690942Já það virðast vera fjórir staðir sem menn geyma þessar Tacomur, á vörubílspalli, inní skúr, fyrir utan Breyti eða Artic.
Kv, Kristján
Sem segir að Cruiser eigendur geti ekki sagt að þeir eigi jeppa.
18.04.2010 at 19:37 #690944Hey, Kristján! My Musso eat´s Tacomas for breakfest, that´s why it´s so damn slow. (You should never eat junk in the morning) Kveðjur kallinn minn, Logi Már.
18.04.2010 at 23:09 #690946Hehe flottur Logi. Þetta er allavega næstum því "satt".
Kv, Kristján
Sem skaut kannski fullharkalega á Cruiser lúðana
19.04.2010 at 11:21 #690948Þetta er ekki gott mál….. ber ábyrgð á því að hafa flutt inn nokkur eintök og á einn sjálfur :-/ Er búin að sitja uppi með hann í ein 7 ár og veit bara ekki hvernig ég get losnað við þetta. En ég geymi hann inni núna ef kæmi öskufall þá er allvega lakkið í lagi ef einhver sýnir honum áhuga. Það er samt stór kostur við Tacomuna mína að hún eyðir nánast engu bensíni á meðan hún er inni…bara smá leki af aukatanknum.
kv
HG
19.04.2010 at 14:38 #690950Örvæntið ekki kæru félagar. Hér er brilliant síða sem inniheldur allnokkrar leiðbeiningar um hvernig á að gera Tacomurnar okkar aftur eins og nýjar! Kannski er þetta old news en allavega, hér er linkurinn.
http://www.customtacos.com/tech/files/05FSM/repair.html
19.04.2010 at 19:02 #690952
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hvernig hafa þessir 2006, 4.OL V6 mótorar komið út, er togið ekki allt hátt á rpm-inu? Bætir sjálfskiptingin það upp að einhverju leyti? Leiðindar prump hljóð alltaf í v6, er einhver leið að ná því úr án þessa að bæta við tveim strokkum? Er það rétt að kertið sé í miðju borinu?
ÓE
19.04.2010 at 19:37 #690954Gleymdu þessum 6 cyl pælingum – heldur þig við upphaflega planið þ.e. 8 cyl og engann afslátt. Notar margföldunartöfluna 2xhálfátta = átta og þá fer Rockon-inn á flug, passar þig bara á gosmekkinum svo hreyfillinn gefi sig ekki :-/
19.04.2010 at 20:29 #690956Mér illa við að beina athygli að einhverri sérstakri gerð bíla en:
Toyota, stærsti bílaframleiðandi Japans, hefur ákveðið að innkalla rúmlega 600 þúsund sendiferðabíla í Bandaríkjunum af gerðinni Sienna vegna galla í hjólabúnaði. Í síðustu viku ákvað fyrirtækið að taka lúxusjeppa af gerðinni Lexus GX460 tímabundið úr sölu um allan heim.
Er seinni gerðin sú sama og LC 200?
Skil samt ekki af hverju framdrif hafa ekki verið innkölluð í LC 80, LC90, LC100 og LC120.
Þetta er orðið svolítið pínlegt hvað Patrol þarf oft að draga Cruser oft til byggða undanfarið.Kveðja.
Elli.P.S. 2,8 lítra Patrolmótorinn hefur ekki kvartað ennþá yfir að draga 4,2 lítra Cruser til byggða.
19.04.2010 at 20:36 #690958Sælir.
Vantaði aðeins fjölda bílanna:
Samkv. Toyota: Að undanförnu hefur Toyota neyðst til að innkalla á níundu milljón bifreiða.
Ætli einhverjir séu á Mýrdalsjökli?Kveðja.
Elli.
19.04.2010 at 21:26 #690960Sælir.
Eftirfarandi er haft eftir fréttatilkynningu:
Toyota bifreiðarumboðið á Íslandi ætlar að innakalla 26 Land Cruiser bifreiðar sem komnar eru í notkun hér á landi. Þar að auki eru um tuttugu Land Cruiser bifreiðar væntanlegar til landsins sem þarf að gera við áður en þær fara í sölu.[color=#FF4040:26h2d2g1] (Hver treystir því?)[/color:26h2d2g1]
Hvernig væri að umboðin (ekki bara Toyota lækkuðu aðeins álagningu á varahhluti) svona aðeins til að sýna smá virðingu við kúnnan.
kveðja.
Elli.
20.04.2010 at 16:21 #690962
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Já líklega rétt að halda sig við upphaflegt plan og fá sér bara v-áttu, ef maður fer í vélarskipti á annað borð.
Annars virkar 2.5L hemi bærilega með voljúmið hátt stillt í græjunum
ÓE
04.08.2010 at 13:35 #690964Það er aðeins eitt hægt að segja um þann eðalvagn Toyotu Tacomu, að þeirra sé mátturinn og dýrðin…..
Skrapp á mínum óbreytta (33") inn á fjöll um páskana síðustu og dró upp eitt stykki Patrol fastan í eigin förum, keyrði svo einn hring í kringum hann og sagði bless og hvarf út í buskan….. Og Patrollan sat eftir í eigin sóti….
Mátturinn og dýrðin að eilífu….
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
