FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

T-MAX vs. Warn

by Haraldur Mímir Bjarnason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › T-MAX vs. Warn

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Haraldur Mímir Bjarnason Haraldur Mímir Bjarnason 14 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.12.2010 at 21:17 #216273
    Profile photo of Haraldur Mímir Bjarnason
    Haraldur Mímir Bjarnason
    Participant

    er eitthver með reynslu af T-MAX spilum og warn spilum, þarf að láta panta fyrir mig 24 V spil, helst um 12000 lbs
    og þeir í Benna eiga til T-MAX spil sem kosta þriðjung af verðinu af warn.??
    getur eitthver veitt mér svona fagráð?

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 06.12.2010 at 21:27 #712842
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Það er þó nokkur munur á þessum spilum hvað gæði og endingu varðar – en það er samt ekki nægjanlegur munur til að réttlæta þennan verðmun – ætli hann skýrist ekki frekar á því að Benni er ekki lengur með umboð fyrir Warn (var mér sagt) en er með umboð fyrir T-MAX.

    Hefurðu tékkað á því hvað Warn spil kostar ef þú kaupir það í USA og flytur heim sjálfur ? Ég flutti inn 10 Warn spil fyrir um 3 árum og þá var ég að fá þau heim á um 70 % af útsöluverði hér.

    En ég er sjálfur með 16,5 Ti spil frá Warn sem hefur ekki farið framan af bílnum hjá mér í fimm ár. Í fyrra lét ég hreinsa upp spólur og fara yfir spilið en annars hefur það verið til friðs – og hefur verið mjög mikið notað.
    Félagi minn sem er með T-max er mjög sáttur við það spil, það er þó eitthvað farið að sýna merki um að skoða þurfi rafmagnsdótið í því eftir ársnotkun eða svo. En þrátt fyrir það þá réttlætir ekkert þennan verðmun hjá BB.

    Svo eru til fleiri kínaspil hér á landi heldur en T-max og ég er viss um að þau eru ekkert síðri og jafnvel ódýrari – einhver auglýsti töluvert af svoleiðis hér á vefnum – prófaðu að leita.

    Benni





    06.12.2010 at 22:04 #712844
    Profile photo of Haraldur Mímir Bjarnason
    Haraldur Mímir Bjarnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 128

    já ég er bara í vandræðum að finna 24 V spil, ég er með 60 cruiser og allt í honum er 24 V, hvaða stærð á maður að fara í? ég veit nefnilega að warnspilinn hafa alltaf staðið við sitt. og já benni átti ekki eitt warn spil á lager og ég hef aldrei haft mikin áhuga á dóti frá kína.





    06.12.2010 at 22:37 #712846
    Profile photo of Hrannar Jón Emilsson
    Hrannar Jón Emilsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 178

    ef þú tengir spilið bara inná annan rafgeymirinn þ.e.a.s. bæði plús og mínus kapalinn þá þarftu bara 12V spil
    það eru 2x12V rafgeymar í bínum en annar þeirra gefur frá sér 12V
    Kv. Hrannar





    06.12.2010 at 22:45 #712848
    Profile photo of Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Tómas Þröstur Rögnvaldsson
    Member
    • Umræður: 35
    • Svör: 308

    Var í þessum sömu sporum fyrir ca þremur árum. Ætti ég að kaupa eitthvað annað en Warn ? Gerði það reyndar og keypti einhverja tegund hjá Arctic trucks sem ég man ekki alminnilega hvað hét- kannski Come Up eða eitthvað svoleiðins. Þegar ég tók spilið úr kassanum var það svona svipaður fílingur og að taka eitthvað upp úr kassanum keypt í Rúmfatalagernum. Svo ég skilaði spilinu og pantaði Warn 6000 spil hjá Benna. Á þessum tíma var hægt að fá tvö Arctic Trucks spil fyrir eitt Warn spil en frágangur virkar allur annar á mig á Warn spilunum og ég myndi gera þetta sama aftur þ.e. að kaupa Warn. Hef reyndar ekkert notað spilið svo ég hef svo sem ekki hugmynd um hvernig það kemur út.





    06.12.2010 at 22:59 #712850
    Profile photo of Haraldur Mímir Bjarnason
    Haraldur Mímir Bjarnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 128

    jááaá,, við eigum eitt sem er reyndar enn í kassanum og er 12 V en ef maður tekur 12 V af öðrum geyminum þá fær hinn geymirinn spennufall og getur þetta valdið því að annar geymirinn eyðilegst, 12000 lbs.12V spil frá warn þarf 440 amp undir fullum þrístingi en samskonar 24V þarf bara 220 amp.. þannig að ég nenni ekki að vera að eyðileggja geymana útaf notkunar á spilinu, planið er náttúrulega alltaf svoleiðis að maður dregur upp alla því maður festir sig ekki? ég íhugaði að setja 12 volta aukarafkerfi í bílinn, s.s. auka altanitor og geymi, taka air con í burtu og setja altanitorinn þar, setja svo finidælur og eitthvað í hann, er bara farinn að halda að það taki sig ekki..





    06.12.2010 at 23:02 #712852
    Profile photo of Bergur Kristinn Guðnason
    Bergur Kristinn Guðnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 371

    Hvað sem þú kaupir þá skaltu aldrei undir nokkrum kringumstæðum fara eftir ráðleggingum Hrannars um að taka 12v straum af öðrum geyminum, það þýðir bara ónýtan geymi hjá þér í hvert skipti sem þú þarft að nota spilið.
    Kv Beggi





    06.12.2010 at 23:05 #712854
    Profile photo of Bergur Kristinn Guðnason
    Bergur Kristinn Guðnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 371

    Greinilegt að þú veist það, enda erum við sem eigum þessa bíla fljótir að koamst að þessu ef við vitum þetta ekki fyrir 😉
    Kv Beggi





    07.12.2010 at 00:01 #712856
    Profile photo of Haraldur Mímir Bjarnason
    Haraldur Mímir Bjarnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 128

    jáá en beggi hefur þú eitthverja skoðun á warn eða öðrum spilum?





    07.12.2010 at 17:59 #712858
    Profile photo of Bergur Kristinn Guðnason
    Bergur Kristinn Guðnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 371

    svosem ekki neina sérstaka, en mitt spil er frá Warn og hefur dugað vel, þekki þau líka úr björgunarsveitum sem ég hef verið í og þau hafa reynst vel þar það best ég veit. Kínaspilin eru kannski ekkert slæm heldur en mér finnst ég aldrei vita hvað maður er að kaupa samt, þetta heitir allt eitthvað óskiljanlegt og lítil reynsla sem fylgir þessu eðlilega þar sem þetta er nú ekkert fyrir löngu farið að fást hérna 😉
    Kv Beggi





    07.12.2010 at 20:18 #712860
    Profile photo of Haraldur Mímir Bjarnason
    Haraldur Mímir Bjarnason
    Participant
    • Umræður: 42
    • Svör: 128

    jáá warn hefur verið síðan ég var barn held ég,, og ég held að ég panti mér bara 15000 lb warn spil á ebay, kostar ekki nema 110 þúsund plús flutning og svo er bara vsk. sem maður þarf að borga af í tollinum, það kostar nefnilega 350 þúsund. í Benna.





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.