Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Sýning…
This topic contains 16 replies, has 13 voices, and was last updated by Gunnar Sigurfinnsson 11 years, 3 months ago.
-
CreatorTopic
-
12.09.2013 at 21:39 #226526
Hvernig er með það, ég sé hvergi opnunartíma á sýningunni auglýstann á heimasíðunni…
Ætti að vera inn á auglýsingunni á forsíðunni.Just saying…
Mbk Ingi Bjöss.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
13.09.2013 at 11:46 #378931
HÆ varðandi þessa sýningu finnst mér vanta AUGLÝSINGU bæði fyrir vefmidla sem og blaðamiðla !
hef ekki fundið neitt um þetta !
13.09.2013 at 14:37 #378932Það rúllar mynd með upplýsingum á forsíðunni en er sammála, það mætti vera Toppfrétt með mynd
13.09.2013 at 20:56 #378933Sem starfsmaður Suðurlandsdeildar, þá vantar mig upplýsingar um hvernig ég kemst inn á sýninguna og hvort klúbburinn útvegi einkennisfatnað eins og á sýningunni 2008?
13.09.2013 at 21:29 #378934Já og hvernig er það, er rukkað eitthvað inn?
13.09.2013 at 21:37 #378935það eru allar upplýsingar um sýninguna hérna á síðuni og ekkert mál að finna þetta helgar passi 1500 kr annars 1000kr
14.09.2013 at 00:06 #378936Það ætti bara ekki að þurfa að finna þetta, þetta á að blasa við manni þegar maður kemur inn á síðunna.
En það er bara mín skoðun…
Mbk Ingi Bjöss…
14.09.2013 at 21:18 #378937Góðan daginn,
það er búið að vera svo gaman þarna í Fífunni og svo mikið að sjá. Maður lifandi, menn hafa sko ekki verið með hendur í skauti sér í skúrunum. Ég væri sko til í svona sýningu á hverju ári !!!! Þarna er margt konfektið !!!
Kveðja Hjörtur og JAKINN:is
14.09.2013 at 22:17 #378938Meigum við hinir sem missum af dýrðinni, eiga von á myndum?
Það væri gaman að sjá myndir af bílunum og kanski einhverjar uppl. líka.
Kveðja frá Flórens
14.09.2013 at 23:22 #378939Þeir sjást ekki svona flottir bílarnir í Florens.
Kv. SBS.
[attachment=3:2ylc8mge]_MG_8106.jpg[/attachment:2ylc8mge]
[attachment=2:2ylc8mge]_MG_7979.jpg[/attachment:2ylc8mge]
[attachment=1:2ylc8mge]_MG_7983.jpg[/attachment:2ylc8mge]
[attachment=0:2ylc8mge]_MG_8021.jpg[/attachment:2ylc8mge]
15.09.2013 at 12:48 #378940Það er satt, hér eru mestmegnis Pútur en þó einn og einn sportbíll.
15.09.2013 at 19:45 #378941Rendi suður í morgun á sýninguna og þetta var alveg mögnuð sýning hún fær alveg 10 í einkun,stoppaði samt ekki nema í um 2tíma til að sleppa norður aftur áður en að veðriðversnaði
15.09.2013 at 23:21 #378942Sæl.
Nú er sýningin sjálf búin og bara eftir að ganga endanlega frá. Fljótleg talning á seldum miðum bendir til að seldir hafi verið um 3700 miðar. Áætlað er að um 6 – 7 þúsund gestir hafi farið um sýnigarsvæðið ef börn sem fengu frýtt inn eru talin með. Sýningin var í alla staði glæsileg og var valið á bílum hjá bílavalsnefndinni frábært. Kynningarhorn Ferðaklúbbsins var stórskemmtilegt og frábært að sjá hve margir gestir sóttu kynningarnar. Allt starfsfólk stóð sig frábærlega en því miður vorum við að keyra á mjög fáum starfsmönnum. Allar nefndirnar voru á fullu í kynningum og var góð mæting hjá þeim. Sjoppuliðið var mjög fámennt og þurfti að kalla út vinkonur til að manna stöður í sjoppunni. En þrátt fyrir það þá tókst þessi sýning frábærlega og vill ég þakka öllum starfsmönnum, nefndum, deildum og bíleigendum fyrir frábært starf og allt sem þeir lögðu á sig til að þetta tækist. Ég veit að það verða margir sem leggjast á koddann í kvöld og verða sofnaðir áður en þeir loka augunum….Kveðja
Sveinbjörn Halldórsson
formaður Ferðaklúbbsins 4×4
15.09.2013 at 23:39 #378943Takk fyrir flotta sýningu
ég fór í dag til að skoða dýrðina, það sem ég var hrifnastur af hvað það var lítið af stöðluðum bílum þarna, þarna voru margir sérvisku snillingar á ferð með mjög frumleg og skemmtileg verkefni í bland við alls kyns ofurtrukka.
ég held að allir hafi fengið eitthvað fyrir sinn snúð, og dásamlegt hvað menn voru óhræddir við að sýna þarna hálfkláruð verkefni sem vöktu mikla eftirtekt.ég þakka öllum þeim sem komu að þessu fyrir frábært starf fyrir hönd minnar fjölskyldu sem skemmti sér vel þarna jafnt börn sem fullorðnir.
m.b.k.
Ólafur Ragnarsson
16.09.2013 at 04:01 #378944Við félagar úr Eyjafjarðardeild vorum að koma til Akureyrar nú fyrir stundu, vorum í slæmu veðri alla leið mikið rok , rigning snjór og hálka, Vatnskarð lokað þannig að við fórum þverárfjall. Frábær sýning, takk fyrir okkur.
Gunnar Rúnarsson
4X4 Eyjafjarðardeild
16.09.2013 at 09:18 #37894513.10.2013 at 14:10 #378946SBS wrote:Þeir sjást ekki svona flottir bílarnir í Florens.Kv. SBS.
Fallegt af þér að senda mynd af bílnum mínum, takk.
Hann hefur aldrei glansað svona flott.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.