FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Sýn á gösstöðvar

by Bergur Pálsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Sýn á gösstöðvar

This topic contains 7 replies, has 5 voices, and was last updated by Profile photo of Jón G. Guðmundsson Jón G. Guðmundsson 10 years, 9 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 01.09.2014 at 10:17 #771287
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant

    Heilir og sælir félagar,
    Það er búið að loka miklu af svæðinu norður af Vatnajökli af öryggisástæðum. Það ber að virða. En hvar eru helst möguleikar á að sjá til gosstöðvanna? …annarstaðar en í sjónvarpi og fjölmiðlum.
    kv,
    Bergur Pálsson

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 01.09.2014 at 12:24 #771290
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Þú sérð þetta hvergi.
    Askja skyggir á úr norðri, Kverkfjöll úr austri og Trölladyngja og Dyngjuháls úr vestri.





    02.09.2014 at 10:54 #771375
    Profile photo of Sturla Þengilsson
    Sturla Þengilsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 7

    Ekki alveg að fatta þetta.

    Almannavarnir, lögregla og hjálparsveitir eru að passa svæðið og hleypa inn á það vísindamönnum og fréttamönnum sem miðla síðan upplýsingum til okkar og þetta er allt hið besta mál og við skattgreiðendur borgum eðlilega.

    Þegar síðan fyrirtækjum eins og True North er hleypt inn á svæðið með kvikmyndatökufólk frá BBC þá fer ég aðeins að pæla. Hver er til þess hæfur að forgangsraða öðrum en þeim sem ég nefndi fyrst inn á svæðið og hafið í huga að þeir sem forgangsraða eru fjármagnaðir af skattfé þ.e. mér og þér.
    Er alls ekki að agnúast út í að fyrirtæki og einstaklingar hafi af þessu tekjur en hver er þess umkominn að segja að þessi má en ekki hinn og t.d. gera mun á mér og True North ?





    03.09.2014 at 12:53 #771387
    Profile photo of Sveinbjörn Halldórsson
    Sveinbjörn Halldórsson
    Keymaster
    • Umræður: 87
    • Svör: 859

    Sæll Sturla.

    Skil vel pælingarnar hjá þér varðandi þetta mál. Held að það verði erfitt að fá botn í það. En eins og Snorri benti okkur á á fundinum þá verðum við að sýna Viðbragðaðilunum skilning í því sem þeir eru að gera og virða allar þær lokanir sem settar eru upp. Af hverju svona mikla lokanir er sennilega vegna þess að þeir vita ekki hvað getur gerst og loka meira svæði en minna. Ég vona að félagsmenn Ferðaklúbbsins fylgi öllum þeim reglum og lokunum sem settar eru þó að við séum ekki kanski sátt við þær, en það er allt annað mál.

    Kveðja
    Sveinbjörn Halldórsson





    03.09.2014 at 16:52 #771402
    Profile photo of Sturla Þengilsson
    Sturla Þengilsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 7

    Er ekki að mótmæla lokunum sem slíkum og að sjálfsögðu virðum við þær.

    Einungis að benda á að þeir sem stjórna þessum málum í umboði þjóðarinnar verða að passa sig á að mismuna ekki án gildra ástæðna.

    Vald er vandmeðfarið og margir farið illa með það.





    09.09.2014 at 10:20 #771546
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Var að sjá í fréttablaðinu að það er hægt að keyra að bílastæði við vestari sauðahnúk (vestur af Snæfelli) og ganga þar 20 mínútur upp á hnúkinn til að sjá gosið í kvöld og næturbirtu. Þegar veður er gott. Það er allavega eitthvað.
    Vitið þið hvort þurfi að fara þennan slóða á breyttum jeppa – eða hvort RAV/CRX eða viðlíka dugi?





    09.09.2014 at 15:13 #771549
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 1

    „Hundrað á dag á Sauðahnjúki
    Náttúra Frá því á fimmtudagskvöld hafa um eitt hundrað manns á dag fylgst með eldgosinu í Holuhrauni frá Vestari-Sauðahnjúki sem er vestur af Snæfelli.
    Náttúra

    Frá því á fimmtudagskvöld hafa um eitt hundrað manns á dag fylgst með eldgosinu í Holuhrauni frá Vestari-Sauðahnjúki sem er vestur af Snæfelli. Um þrjátíu bílar hafa komið þangað á hverjum degi, flestir seinnipartinn, og fólk fylgist með gosinu sem er í um fimmtíu kílómetra fjarlægð í loftlínu.

    „Þetta er umferð sem við höfum eiginlega aldrei séð á þessu svæði og allra síst í september,“ segir Agnes Brá Birgisdóttir, þjóðgarðsvörður yfir austursvæði Vatnajökulsþjóðgarðs.

    Aðallega eru þetta Íslendingar sem koma á jeppunum sínum og leggja í bílastæði sem þarna er. Þaðan er hægt að ganga í um tuttugu mínútur stikaða leið upp á topp fjallsins. Á bílastæðinu var áður pláss fyrir fimm til átta bíla en búið er að fjórfalda stærð þess til að koma fleiri bílum fyrir.

    Páll Guðmundur Pálsson, sem rekur Laugafell Highland Hostel, er einn þeirra sem hafa skoðað gosið frá þessu sjónarhorni. „Ég fór þarna á laugardagskvöldið

    og kíkti á gosið með félögum mínum. Þá taldi ég 22 bíla,“ segir hann. „Það er ekki nema einn og hálfur tími frá Egilsstöðum að rúlla þetta og þetta er besta útsýnið sem er í boði, utan lokunarsvæðis.“ Hann segir fallegt að horfa á eldgosið í ljósaskiptunum en að degi til sést það ekkert sérlega vel.“

    Grein tekin frá fréttablaðinu

    Einhver sem veit meira um ástand vega og hefur mögulega á að fara um helgina?





    10.09.2014 at 08:15 #771562
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Maður fer inn að Snæfelli og þaðan eru ca. 4-5 km. að Sauðahnjúk





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.