FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Suzuki Vitara/Sidekick

by Freyr Þórsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Suzuki Vitara/Sidekick

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 22 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 23.10.2002 at 10:40 #191729
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant

    ‘Eg er töluvert að pæla í þessum jeppum og ég er með nokkrar spurningar.

    Vélin í þesum jeppum, 1600, er hún ekki fín fyrir 33″ en of lítil fyrir stærri dekk? ‘Eg var að skoða albúmið og sá súkku á 36″, getur einhver sagt mér hvernig Súkkan ber stór dekk?. Hvernig er krafturinn, er drifbúnaðurinn nógu sterkur, er flotið ekki mjög gott?

    Hvernig er með grindina í Vitara/Sidekick, er hún nógu sterk til að þola jafnvel stærri dekk en 36″ og þá líklega vélarskipti og annan og sterkari drifbúnað?

    Freyr

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 23.10.2002 at 11:35 #463658
    Profile photo of Valdimar Nielsen
    Valdimar Nielsen
    Member
    • Umræður: 31
    • Svör: 253

    Sælir,

    ég skal reyna að svara þessum spurningum samkvæmt minni reynslu.

    Vélin er fín og ágæt ef þú ert á original hlutföllum (5,38:1) á 33". Fimmti gírinn nýtist ekki upp minnstu brekkur og ef það er mótvindur. Ég er með lægri hlutföll (5,83:1) og þá nýtist fimmti gírinn mun betur. Hins vegar að þegar 36 tomman er komin undir fer hann aftur í sama farið og á original hlutföllum og 33".

    Hvernig hann ber dekkin útlitslega getur hver dæmt fyrir sig en drifbúnaðurinn verður að fá að sanna sig í vetur. Þetta snýst held ég um að fara varlega og að bjóða bílnum ekki of mikið. Vera semsagt með það í huga að maður er á stærri dekkjum ef drifbúnaðurinn er gerður fyrir. Ég smallaði öxli á 33" uppi við Langjökul í vor í einhverju kæruleysiskasti, spólaði í hálfhring efst í brekku til að snúa við og þá kom burrr….bing! Þannig að það þarf ekki endilega stór dekk til að skemma og brjóta en það hjálpar til, ef maður fer ekki varlega.

    Þessi dekk fóru undir á sunnudaginn þannig að það er ekki komin nein flotreynsla hjá mér.

    Um grindina veit ég ekki en ég veit að það eru til að minnsta kosti 2 svona bílar sem er búið að skipta um vél og hásingar í. Annar er víst í nágrenni við Flúðir og að sögn með V6 Buick og hinn er í Garðabænum og er með Volvo (turbo held ég) vél og Scout hásingar (minnir mig). Kannski geta þessir menn eitthvað deilt með okkur sinni reynslu.

    En mig hlakkar mikið til að sjá hvað gerist þegar maður fer að komast í alvöru snjó og hleypa úr. Það var nú sagt við mig að sennilega þyrfti ég vacumdælu til að soga loftið úr dekkjunum því hann væri svo léttur :-))

    Kveðja, Valdi





    23.10.2002 at 23:02 #463660
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    En hvernig er það með sidekick sport, þeir eru nú með 1800 vél um 120hp. er það ekki sköminni skárra. Þá er ég að meina á 33".

    ps. geggjaður súkitz hjá þér Valdi.





    27.10.2002 at 20:56 #463662
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    VO767, ég sá jeppann þinn fyrir utan gamla pósthúsið í vesturbænum í dag. Djöfull er hann flottur, til hamingju með jeppann. Ég skoðaði hann töluvert og ég held að miðað við þyngd beri afturhásingin 36" bara vel en ég er ekki viss með fram endan.

    Freyr





    27.10.2002 at 22:59 #463664
    Profile photo of Valdimar Nielsen
    Valdimar Nielsen
    Member
    • Umræður: 31
    • Svör: 253

    Já þakka þér fyrir Freyr. Hann lítur nokkuð reffilega út.

    Já afturhásingin er sterkari en gamla Fox/Samurai hásingin því ég hef séð að þeir í USA eru að mixa hana undir Foxinn. Þeir eru nokkuð ánægðir með hana þar.

    Maður verður bara að sjá til með framendann. Það er aðallega helvítis álhúsið sem vill rífa sig laust úr festingunum. Það er náttúrlega til lausn við því sem þú getur séð hér: http://www.puresuzuki.com/anvil_axle.htm
    Þetta er semsagt stálhús í stað álsins. Kostar náttúrulega….!

    Kemur allt í ljós ef það ætlar að snjóa eitthvað í vetur.

    Blindbylskveðjur,
    Valdi





    28.10.2002 at 15:29 #463666
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég var að fá mér sidekick sport og er mikið að spá í 35" breitingu er það mikið vesen miðað við 33"? Hvernig er best að gera þetta. Hvar fær maður hlutföll og hvað kostar? osfr.

    Súkku kveðja
    Atli





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.