This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Ari Þráinsson 18 years, 4 months ago.
-
Topic
-
Sælir jeppamenn og -konur.
Ég lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu að þegar ég hugðist skipta um glóðarkertin í Toyotunni, (Double cab 2.4.l árg. 1990) sneri ég í sundur fremsta kertið. Það fór í sundur hitapróban sjálf þannig að eftir að hafa borið heilt kerti saman við það brotna sá ég að ca 1,5 cm stubbur sat eftir í heddinu.
Ég fékk þau ráð frá fagmönnum að nánast útilokað væri að ná stubbnum úr nema að taka heddið af, -eða setja í gang og reyna að fá stubbinn til þess að skjótast upp.
Þar sem ég hafði engu að tapa prufaði ég það síðarnefnda án árangurs, stubburinn sat sem fastast. Eðlilega þorði ég ekkert á bílnum , enda líkur á að einhverstaðar yrði ég stopp, hvort sem stubburinn færi út, eða inn í brunahólfið og í strokkinn með enn verri afleiðingum fyrir peningaveskið.
Einnig reyndi ég að skrúfa hann upp með öfugugga, en það gekk ekki.
Ég fékk þá vafasömu hugdettu að reyna að ryksuga hann út, – og það virkaði.
Fyrst losaði ég olíuspíssinn úr sem er við hliðina á glóðarkertinu. Því næst teipaði í granna loftslöngu við barka heimilisryksugunnar og festi bút af koparröri við slönguna. Rörið passaði í olíuspíss gatið.
Með ryksuguna á fullu í spíssgatinu hugðist ég bora gat í gegnum próbu-stubbinn og þræða síðan girni eða vír með lítilli ró í endann í stubbinn og fiska hann svo út um olíuspíss gatið.
Ég gafst upp á að bora í gegn um próbuna, hvort sem um var að kenna full hörðu efni í henni eða lélegum bor, en ákvað þess í stað að láta slag standa, sló stubbinn ofan í brunahólfið og um leið og hann small niðurúr setti ég fingur í glóðarkertis gatið og bingó, stubburinn ryksugaðist upp hinumegin.
Ég get varla lofað að þessi ódýra aðferð virki alltaf, en þetta virkaði hjá mér í þetta skipti.Kv. Baldur V
You must be logged in to reply to this topic.