Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Sumarferlun
This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Jón G Snæland 17 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
07.05.2007 at 22:02 #200280
AnonymousÞeir sem hafa áhuga á því að ferla fyrir klúbbinn í sumar. Í samstarfi við Landmælingar eru beðnir um að senda póst á rotta@this.is. Eða hringja í síma 6997477.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
07.05.2007 at 23:59 #590684
það þíðir ekki neit að hringja í hann hann svarar ekki
kveðja Ægir sem ekki nær í Jón
08.05.2007 at 00:04 #590686var um það að 4×4 fengi eitthvað greitt fyrir þessa þáttöku…er það?
08.05.2007 at 14:05 #590688Hvenær í sumar á að fara í þessa vinnu?
08.05.2007 at 22:32 #590690enginn að svara þessari spurningu sem ég lagði fram eða er þetta eitthvað leyndó sem engin má vita af?
08.05.2007 at 23:11 #590692Jú einhverjar greiðslur verða fyrir kerfisbundnar ferlanir. Nánari upplýsingar um þann þátt verða ekki rædda á opnum fjölmiðli þ.a.s krónur og aurar. Þær ferlanir eru reyndar ekki sóló vinna einstaklinga, heldur unnið undir stjórn LMÍ. Ella spyr hvenær eigi að ferla, gert er ráð fyrir því að það verði í júlí. Þó er ekki kominn ákveðin dagsetning.
Nei Benni minn fyrirgefðu, menn verð bara að hafa tíma.
Var því miður að vinna frá kl 8-17 ( náði nokkrum símtölum vegna samút )
Farið heim og síðan á stjórnarfund kl 18-20.15
Unnið í fundargerð ofl til 21.30.
Unnið í ferlum og svarað meilum frá VÍK ofl frá 21.30 -23.06 þar til ég gat svarað þér ormurinn þinn.
09.05.2007 at 13:25 #590694Ofsi hvað varst þú að gera á milli kl.23.06 og 23.11 og hvað gerðir þú eftir 23.15? mér er bara spurn.
09.05.2007 at 16:33 #590696er það með þig ofsi á ekkert að svara manni eða á að bíða með það fram til kl:23.06.
09.05.2007 at 20:52 #590698Játa að ég hef voðalega lítið farið annað en þetta venjulega og því ekkert nýtt í tækinu hjá mér. Allur tími utan vinnunnar hefur farið í vorverk í bústaðnum og svoleiðis hjakk. Þarf að skreppa á Strandirnar á slóðir minnar heittelskuðu eiginkonu einhverntíma í vor, skal senda þér þá vegaferla þegar það er frá.
Ef eitthvað er greitt fyrir þessa ferlun, finnst mér að félagið sem slíkt eigi að njóta þess og það geti svo eitthvað komið til móts við þá örfáu sem hafa verið að leggja á sig mikla vinnu, kostnað og fyrirhöfn í sambandi við verkefnið. Tek það fram varðandi þá örfáu ferla sem frá mér eru komnir vil ég gjarna að þetta fari þá leið.
09.05.2007 at 21:18 #590700Til þess að fyrirbyggja allan misskilning. Þá er ekki greitt fyrir ferla sem einstaklingar ferla. Þ.a.s þegar þeir fara í ferðir á eigin vegum saman ber skemmtiferðir. ( ef svo væri þá væri ég ríkur maður ). Ferlaverkefnið er unnið eins og hver önnur vinna undir stjórn annarra og venjuleg gps tæki og tölvur félagsmanna eru ekki notuð til gagnaöflunar. Heldur mun nákvæmari taðsetningartæki. Ræði ég þessi mál ekki frekar á opnum spjallþræði, enda er ég búin að koma til skila því sem ég ætlaði mér. Frekari upplýsingar verða veittar á netfanginu stjorn@f4x4.is. Kv Jón Snæland
PS sæll Guðbrandur Ólsari. Gott mál, enda hafa norðanverðir vestfirðir og strandir oft orðið utanveltu í slóðamálum og fleiru. Þakka þér fyrir.
09.05.2007 at 21:24 #590702Það geta ekki verið margir km eftir af "Vestfjarðar" Þjóðvegar ferlum eftir að ég sendi OFSA mína skrá :)) er ég þó ekki kominn af "garlakerlingum" af ströndum :))
10.05.2007 at 00:35 #590704Sko ofsi minn, mikið er ég glaður að þú sért ekki í framboði í þessum kostningaslag sem nú stendur yfir því nú ert þú alveg búinn að X-rugla mig í þessu öllu.
1. Er þetta eitthvað viðkvæmt mál þ.e þetta ferlaverkefni, af hverju má ekki ræða það opinberlega (þú mátt senda svar á b@islandia.is merkt: leyndó)
2. "Ferlaverkefnið er unnið eins og hver önnur vinna undir stjórn annarra og venjuleg gps tæki og tölvur félagsmanna eru ekki notuð til gagnaöflunar. Heldur mun nákvæmari taðsetningartæki."
Til hvers er þá verið að óska eftir ferlum frá okkur?
3. Ég hef hingað til lagt til allt það sem ég á til í þetta verkefni og reint að snapa saman ferlum frá öðrum þó með mis góðum árangri og mun gera það áfram hafi ég eitthvað að bjóða og að sama skapi áskil ég mér þann rétt að vita í hvað þágu mínir ferlar verða notaðir og það hljóta aðrir að gera líka.
Sé greitt fyrir þessa ferla finnst mér að sama skapi eðlilegt að það renni beinnt í kassan hjá 4×4 og ekkert nema gott um það að segja.
Kv.
Jón Spæjó.
10.05.2007 at 07:04 #590706Þú ert þrautseigur. ég er búin að færa þessa umræðu inn á lokaðann spjallþráð. GPS og leiðir.
Þar mun ég halda áfram að svara spurningum. Þú verður bara að sætta þig við það að öllur er ekki útvarpað.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.