FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Sultarfit – Mayday – Mayday

by Jón G. Bergsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Skálamál › Sultarfit – Mayday – Mayday

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jón G. Bergsson Jón G. Bergsson 21 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 30.09.2003 at 10:30 #192926
    Profile photo of Jón G. Bergsson
    Jón G. Bergsson
    Participant

    Um síðustu helgi var borin út ástkær sóló-vél okkar eftir dygga þjónustu og margar eftirlátnar sótagnir sem ekki rötuðu í reykháfinn. Nú viljum við athuga með kaup á alvöru rafstöð 12-15 kw og sleppa að kaupa nýja olíufýringu. Ungur maður benti á það í síðustu vinnuferð, að nú væri komið árið 2003 og þá ætti að nota rafmagn. Veit einhver um slíka vél til sölu á viðunandi verði ???!!! Allar upplýsingar og ábendingar þegnar. Núverandi rafstöð er 6 kw af Lister gerð og er hún til sölu ef önnur vél finnst.

    Við vorum sum sé í vinnuferð um síðustu helgi. Forstofan nýja var dúklögð og borin á hana fúavörn og byrjað að setja upp nýja eldhúsaðstöðu. Drullu var dælt upp úr brunninum og sýndist mönnum komið þar ca 80 cm vatnslag. Um næstu helgi stendur til að reyna á virkja vatnsbrunninn, þannig að kannski hyllir undir vatnssalerni inni í húsi.

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 30.09.2003 at 10:54 #477110
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það þarf um það bil 4 sinnum meiri olíu, ef olía er notuð til þess að búa til rafmagn sem síðan er notað til upphitunar, heldur en ef olían er notuð beint til kyndingar.
    Ef rafstöðin er vatnskæld er hinsvegar tilvalið að nota kælivatnið til kyndingar, þar sem megnið af orkunni endar þar.

    – Einar





    30.09.2003 at 11:04 #477112
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hér eru smá uppls. um stærð ofna og þá orkuþörf..borgar það sig að vera með rafmagnsofna?
    Í herbergjum þar sem er aðeins einn útveggur er þörfinn talin vera um 56W á fermeter, fyrir hvern útvegg sem bætist við eykst orkuþörfin um 25%
    Þumalputtareglan nálgast því að vera sú að stærð ofnana skuli vera sem næst 100W á ferm. kveðja





    30.09.2003 at 14:30 #477114
    Profile photo of Emil Borg
    Emil Borg
    Participant
    • Umræður: 47
    • Svör: 805

    Sælir.

    Þó ég sé sprenglærður rafvirki er ég á þeirri skoðun að kynding með rafmagni sé ekki besti kosturinn í fjalla skálum. Eins og bent var á hér áður þarf meiri olíu í að búa til rafmagn sem býr til hita, heldur en að brenna oíunni beint.

    En það er kanski ekki allt.
    Olíuofnar hitna mun hraðar og meira en rafmangns. Og annað er að það er mjög leiðinlegt að þurfa alltaf að hafa rafstöð í gangi til að hafa hita. Þó malið í díselvél sé jú mjög huggulegt, er afskaplega þægilegt að geta slökkt á því. í Setrinu hafa menn mikið kvartað yfir því að þurfa að hafa rafstöðina stöðugt í gangi. Það er ein ástæða þess að til stendur að setja upp sólarsellur fyrir ljós og fjarskiptatæki þar.

    Emil





    30.09.2003 at 14:43 #477116
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þarna er ég sammála Emil. Sakna þess gjarnan þegar ég hef gist Setrið að geta ekki farið út í frostkalda nóttina og "heyrt" í fjallakyrrðinni. Dieselmallið er vinalegt þegar LandRover er kominn í gang og urrar af ákefð en hins vegar ekki eins fagur hljómur í ljósavélinni.
    Kv – Skúli





    30.09.2003 at 15:32 #477118
    Profile photo of Jón G. Bergsson
    Jón G. Bergsson
    Participant
    • Umræður: 93
    • Svör: 484

    Gæti ekki verið meira sammála ykkur Emil og Skúli H. Hávaðinn í vélunum er hvimleiður. Fengi ég að ráða væru fjallaskálar með olíufýringu með hitaspíral og cellum og hugsalega með lítilli rafstöð til að tryggja hægt 12v rafmagn í lýsingu





    30.09.2003 at 19:10 #477120
    Profile photo of Ægir Sævarsson
    Ægir Sævarsson
    Member
    • Umræður: 26
    • Svör: 424

    Eins og meiningin er þá á að bæta við blástursofn sem kemur hreyfingu á loftið og er fljótara að hita upp.

    rafstðin er hvort sem er í gangi sem ljósavél og fyrir tvo ofna og setja 3kw.ofn í viðbót er ekki sambærilegt eyðsla og hita upp með olíu sem býr bara til SÓT.

    Allir geta sett rafstöðin í gang eins og reynslan hefur kennt okkur þá gengur mönnum misjaflega að kveikja upp í olíu eldavélinni sem býr bara til SÓT (ég tala nú ekki um ef það er sett fjarstart og maður kemur alltaf í heitan skálann).

    Það er nú einu sinni komið 2003





    30.09.2003 at 20:39 #477122
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir.

    fyrirgefiði þessa fáránlegu spurningu mína en er það Listerinn sem er bilaður? Ég þekki nefninlega til Lister mótors sem er ólíkt gangvissari en nýja fína fjarstartvélin sem er við hliðina á henni. (ég nefni ekkert hvað hún heitir) Þessi Lister er notaður sem rafstöð fyrir 2 sumarhús bæði kyndingu og ljós.

    Sko!!!

    6 kw er bara nokkuð mikil orka og ef skálinn er sæmilega einangraður þá þætti mér ekkert óeðlilegt að notast við rafmagnsofna til kyndingar eða allavegena til að halda hitanum. Þá er ég að tala um að gas hitara til að ná upp hita og rafmagnskyndingu til að halda hitanum. Rafmagnið nýtist til annara hluta og það þarf í raun að hafa gas til eldunar og hitunar á olíuverki Listersins.

    Annars get ég óhikað mælt með rafstöðvum frá Rafver. Þeir eru breskar með Honda mótor bensín og diesel 1 og 3 fasa.

    Kv Isan

    P.s. Skúli, ef þér finnst mallið í Landrover fallegra en í rafstöð þá áttu alveg eftir að heyra í Lister!!!





    30.09.2003 at 20:51 #477124
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Vélin er á ágætu standi, alls ekki biluð. Gamla vélin var sólo-vél. Að sjálfsögðu myndu nýjar vélar sömu gerðar og er t.d. í Setrinu ganga án óþrifa væri vel gengið frá reykröri





    30.09.2003 at 22:20 #477126
    Profile photo of Önundur Jónasson
    Önundur Jónasson
    Member
    • Umræður: 7
    • Svör: 28

    Ef þið eruð að spá í að setja upp rafmagnsforhitara (millihitara) er það margfalt sniðugra en að hafa olíukyndingu eða rafmagnsofna þar sem rafmagnsofnar eru oft valdur að íkveikju (nema þeir séu olíufylltir) , olíukyndingin löngu úr sér gengin . Þá myndi ég telja að skemmtilegasta kyndingin fengist með því að hafa rafstöð sem framleiðir orku sem mætti nota í rafmagnsmillihitara sem haft væri frostlögsblanda inná þá er nánast örrut að þið fáið góða hitun . En með því þarf líka að hafa vatsdælu þensluker og ýmislegt fleira .





    02.10.2003 at 23:01 #477128
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Búið er að funda um næstu skref í hitunarmálum í Sultarfit. Niðurstaðan er að skyggnast um eftir stærri vél og auka gasbúnað hússins og vita hvort það dugi ekki. Sum sé engin olíufýring í húsið. Allar ábendingar um stærri rafstöð en 6 kw þegnar.





    06.10.2003 at 08:43 #477130
    Profile photo of Jón G. Bergsson
    Jón G. Bergsson
    Participant
    • Umræður: 93
    • Svör: 484

    Eftir síðustu vinnuferð var ákveðið að loka Sultarfitinni. Í athugun er að koma skálanum í Masters-lyklakerfi Ferðaklúbbsins. Hengilás er kominn á rafstöðina. Nú er búið að birgja húsið upp fyrir veturinn með gasi og olíu. Vatnsdælan sem komið var með í síðustu vinnuferð reyndist gölluð og verður það vafalaust lagað um næstu helgi.





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.