FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Suðar í tölvunni

by Einar Elí Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Suðar í tölvunni

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Einar Elí Magnússon Einar Elí Magnússon 20 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 18.02.2005 at 00:28 #195524
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant

    Sælt veri fólkið. Lítið annað að gera í rigningunni en að spá og spekúlera:

    Ég er með 300W áriðil sem er aðeins að stríða mér.

    Ég var með annan minni og notaði við tölvuna með góðum árangri. Auk þess að tengja tölvuna við GPS tækið var hún tengd við bílgræjurnar og virkaði því eins og MP3 spilari.

    Mjög þægilegt.

    Þegar ég tengi tölvuna við stóra áriðilinn kemur hinsvegar eitthvert ógurlegt suð í tölvuna. Kannist þið eitthvað við þetta? Get ég bætt einhverju á áriðlinn (þétti eða…?) til að losna við suðið?

    kv.
    Einar Elí

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 18.02.2005 at 00:47 #517312
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    hvaðan kemur suðið? úr tölvunni sjálfri eða úr hátölurum? Ég veit að áriðlar geta sett suð inn á rca snúrur, og reyndar var nóg að hafa hann tengdan inn á sömu grein og magnari í gríðar öflugu hávaðamengunarkerfi. En hvað má gera í því er annað mál, ef laust hægt að setja filter á það… en það er vesen

    kv
    Baldur

    ps. hvenær færðu nýja skó á krúsa?





    18.02.2005 at 14:07 #517314
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Suðið kemur bæði úr hátölurunum í tölvunni og svo úr hljómkerfinu í bílnum þegar það er tengt við hana.

    Filterinn gæti gert eitthvað – prófa það.

    Krúserinn, eða Lilli minn eins og hann er kallaður í dag, er kominn á nýja skó. Fékk í gær 38" GH undir hann. Svei mér þá ef hann lítur ekki næstum því út eins og jeppi eftirá.

    Þurfum að kíkja fljótlega úr bænum að prófa…

    kv.
    Einar Elí





    20.02.2005 at 02:10 #517316
    Profile photo of Baldur Gíslason
    Baldur Gíslason
    Member
    • Umræður: 6
    • Svör: 214

    Í svona tilfellum getur gert gæfumuninn að setja öflugri jarðtengingu á áriðilinn. Einnig er vert að athuga að rjúfa aðrar jarðir í kerfinu, til dæmis með því að tengja tölvuna við græjurnar með einangrunarspenni.





    20.02.2005 at 19:59 #517318
    Profile photo of Guðmundur Jón Björgvinsso
    Guðmundur Jón Björgvinsso
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 60

    Besta lausin er að fá sér áriðil sem spennir upp úr 12V í td 19V með því tapast minni orka auk þess sem þú ert ekki að framleiða 220V riðspennu í óþarfa til að spenna það síðan niður í 19V jafnstraum en það er jú orkan sem flestar fartölvur nota.
    Það segir sig sjálft að það er raunhæfasti kosturinn.





    21.02.2005 at 03:03 #517320
    Profile photo of Davíð Freyr Jónsson
    Davíð Freyr Jónsson
    Participant
    • Umræður: 66
    • Svör: 522

    hæ, ég myndi ekki tengja beint í 19 volt á dyrri fartölvu…
    spennubreytirinn sem fylgir með tekur allar truflanir og spennuföll fyrir tölvuna….

    þú sérð einnig þettir á snúrunni á öllum fartölvum…

    þannig að inverter er betri kostur….

    Davíð Dekkjakall





    21.02.2005 at 18:09 #517322
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 653

    Ég gæti trúað að suðið sem er að stríða þér verði til vegna þess að bylgjuformið sem áriðillinn framleiðir er kassabylgja. Því kröftugri sem áriðillinn er, þeim mun "betur" nær hann að framleiða fullkomna kassabylgju, en það eykur enn hættu á svona truflunum. Ég kann engar pottþéttar einfaldar aðferðir til að losna við svona suð og legg til að þú dustir rykið af gamla áriðlinum fyrst hann truflaði ekki. Svo fást reyndar áriðlar sem framleiða sínusbylgju, en þeir eru margfalt dýrari en kassabylgjuáriðlarnir.

    Svo er einn möguleiki í stöðunni: Ef voltafjöldinn á rafhlöðu tölvunnar er 12 Volt eins og á gömlu fartölvunni minni þá ættu 14 volt frá rafkerfi bílsins að duga líka. Ég útbjó snúru með sígarettukveikjatengi í annan endann og passandi fyrir tölvuna í hinn – og þetta svínvirkaði. Að vísu fær batteríið í tölvunni enga hleðslu, en í þessari vél er það löngu orðið ónýtt og virkar hvort eð er ekki. Þeir sem vilja prófa svona kúnstir verða bara að vera 100% vissir á að tengja plús og mínus rétt og gera þetta alfarið á eigin ábyrgð.

    Wolf





    21.02.2005 at 18:44 #517324
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Takk fyrir svörin.

    Ég gæti best trúað að það sé bylgjuformið sem er að stríða mér.

    Ég held ég fái mér frekar annan inverter en að skítmixa 14 volt beint í rassinn á vélinni þar sem hún er líka atvinnutæki fyrir mig og er nokkrum sinnum verðmeiri en einn áriðill :-)

    Kv.
    Einar Elí





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.