FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Stórferð Skagafjarðardeildar

by Benedikt Rúnar Egilsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Deildir › Skagafjarðardeild › Stórferð Skagafjarðardeildar

This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Benedikt Rúnar Egilsson Benedikt Rúnar Egilsson 12 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 13.03.2013 at 22:07 #225744
    Profile photo of Benedikt Rúnar Egilsson
    Benedikt Rúnar Egilsson
    Participant

    sælir félagar

    Stórferð verður farin 4-7apríl næstkomandi.
    brottför áætluð fimmtudaginn 4 apríl kl 09.00 frá Varmahlíð
    og farið verður í Dreka og gist í 2 nætur
    reynt verður að skoða eitthvað á svæðinu á föstudeginum og grilla um kvöldið.
    á laugardeginum er stefnan tekin í Setur og gist þar
    heimferð á sunnudeginum.

    skráning er í síma 867-9042 Stefán Valur
    eða á stefanvalur@gmail.com
    skráningu lýkur 20 mars.

    kostnaður liggur ekki alveg fyrir en verður í kringum 10.000-
    innifalið er gistin í 3 nætur og sameiginlegur matur 1 kvöld

    Kveðja ferðanefnd.

  • Creator
    Topic
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)
  • Author
    Replies
  • 26.03.2013 at 23:11 #764391
    Profile photo of Benedikt Rúnar Egilsson
    Benedikt Rúnar Egilsson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 112

    Þegar þessi orð eru skrifuð er búið að endurskoða og endur-afturskoða ferðaplanið og er nú birt með seinnitíma viðbótum og hljóðar eftirfarandi:
    Til stendur að leggja upp frá KS í Varmahlið eins og áður hefur komið fram. Stefnan verður sett á skálann í Dreka í Drekagili í Dyngjufjöllum. Gist verður í Dreka aðfaranótt föstudags og laugardags. Dagskrá föstudagsins verður aðlöguð að veðri og vindum og gæti í versta falli hljóðað uppá trivial pursuit með tári af sjerríi. Í besta falli verður haldið á jökul og hann ekinn sem mest ökumenn og faratæki þola. Á föstudagskvöld verður slegið upp veislu og matseðill verður eftirfarndi:
    Grillað lambalæri af Skagfirskum heiðum
    Bakaðar kartöflur
    Ekta bernessósa
    Laufblöð
    Rómaður eftirréttur að hætti Stefáns Vals

    Á laugardag stendur til að halda í Þeystareyki og anda að sér ómenguðu þingeysku lofti, sem ku streyma uppúr jörðinni í námunda við Skálann í Þeystareykjum. Á leiðinni á Þeystareykjasvæðið komumst við ekki hjá því að þvera þjóðveg 1, en um leið opnast möguleikar á því að ná eldsneyti á Mývatni og grípa um leið KÞ pylsu með öllu nema hráum.
    Á sunnudag verður svo haldið heim og ætlunin er að heimkoma verði á skikkanlegum tíma.
    Ferðanefndinni telst til að eknir verði ca. 400 km. á fimmtudegi og laugardegi. Við þetta bætist nokkur akstur en það ekki liggur fyrir hve mikill þar sem heimferðin hefur ekki verið skipulögð i þaula. Þessu til viðbótar kemur akstur á föstudeginum sem gæti verið allnokkur ef fært verður á jökul.
    Þáttökugjald er kr. 10.500, innifalið er gisting og maturinn á föstudagskvöldinu.
    Vakni einhverjar spurningar má setja sig í samband við höfuð ferðanefndarinnar í síma 867-9042 og þar svarar hátt og snjallt Stefán Valur eða hér á vefnum.

    skráðir eru

    Benni +1
    Unnar +1
    Eyberg
    Stebbi Gaukur +1
    Hilmar B. +2
    Ingvar Páll +2
    skarphéðinn +1
    stefán Valur +2
    Halldór Bjarnas. +1
    Guðjón Örn +1
    Heiðar B. +2
    Sigurjón +1





    01.04.2013 at 22:32 #764393
    Profile photo of Benedikt Rúnar Egilsson
    Benedikt Rúnar Egilsson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 112

    sælir

    endilega leggja inn hjá klúbbnum
    kt.591107-1000
    161-26-5911
    10.000- og merkja stórferð.

    sjáumst svo í Varmahlíð kl 09:00 á fimmtudag.

    Kveðja Ferðanefnd.





  • Author
    Replies
Viewing 2 replies - 1 through 2 (of 2 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.