Ferðaklúbburinn 4x4Stórferð 2016 Ísafjörður – Ferðaklúbburinn 4×4 https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/feed/ Thu, 01 Oct 2026 14:24:23 +0000 http://bbpress.org/?v=2.5.10-6063 is-IS https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935887 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935887 Tue, 12 Jan 2016 12:45:52 +0000 Sveinbjörn Halldórsson Hjálagt í vihengi eru þær upplýsingar sem nú lyggja fyrir, endilega lesið og ef einhverjar spurningar vakna þá látið heyra í ykkur.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935896 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935896 Tue, 12 Jan 2016 16:30:15 +0000 Kristján Finnur Sæmundsso Sælir

Ég er spenntur fyrir ferðinni og mun skrá mig.

En ég verð að gera athugsemd við skipulagið eins og það er sett fram hér að ofan.

„Hópar eru á eigin vegum og ber að kalla eftir aðstoð þeirra aðila sem gefa sig út fyrir það þá er verið að tala um björgunarsveitir. • Haft verður samband við björgunaraðila á svæðinu og þeir beðnir um að vera í viðbragðsstöðu. • Það er ekki hægt að ætlast til að aðrir hópar sjái um að hreinsa upp bíla af leiðinni, enda FÍB með vega aðstoð. Hver hópur er sjálfbær.“

Erum við virkilega komir á þannan stað? Erum við of góðir til að eyða tíma og nokkrum olíulítrum til að hjálpa öðrum í ferðinni.

Mér finnst ekki boðlegt að F4x4 skipuleggi jeppaferð og ætlast svo til þess að sjálfboðaliðar eyði sínum tíma og fjármunum í að redda okkur.

Nær væri að Björgunarsveit 4×4 væri styrkt fyrir stórferðina með öflugum bílum og viljugum bílstjórum. Þeir hópar sem ekki komast sjálfir yfir geta þá fengið hjálp frá öðrum í ferðinni. En umfram allt á hópurinn að hjálpast að og koma sér á áfangastað.

Ef að Landsbjörg rukkaði 100 þús fyrir útkallið þá væri þetta ekki sett upp svona.

 

Sýnum smá samhug og sjálfvirðingu og hjálpum náunganaum sem er með okkur í skipulagðri ferð. Ég er tilbúinn að leggja fram minn bíl og mína aðstoð í björgunarsveit 4×4 ef hennar er þörf.

 

Mín skoðun.

Kristján Finnur

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935899 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935899 Tue, 12 Jan 2016 17:37:57 +0000 Guðmundur Á. Ólafsson Sælir

Ég er sammála Kristjáni. Finnst óheppilegt að við séum að benda á FÍB og björgunarsveitir í skipulagðri stórferð okkar.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935900 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935900 Tue, 12 Jan 2016 17:52:34 +0000 Hjörtur Már Gestsson Sammála Kristjáni, hélt einmitt að hálft gamanið væri að redda veseni á fjöllum :)

Held við yrðum nú ekki vinsæll hópur ef þetta væri almennt viðhorf manna.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935901 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935901 Tue, 12 Jan 2016 17:53:53 +0000 Sveinbjörn Halldórsson Sæll Kristján Finnur.

Takk fyrir flott innlegg. Það sem lyggur þarna á bak við er að menn geri sér grein fyrir því að þeir eru eins og alltaf, að ferðast á eigin ábyrgð. Þú velur þér ferðafélaga eins og venjulega og getur í raun ekki vaðið af stað og reiknað með að aðrir sem þátt taka séu stand by til að redda þér.  Auðvita er alltaf sú regla að enginn er skilinn eftir það gerir enginn heilvita jeppamaður. En reglan er sú að hver hópur á að vera algjörlega sjálfbjarga og vel græjaður til að takast á við verkefni eins og í Stórferð.  Menn vilja alltaf gleyma að Stórferðin er erfið og ekki alveg á færi allra, þá er ég að tala um bílstjóra og farþega.  Oft hefur það komið upp í ferðum að menn hafa skellt sér í Stórferðina á bíl sem í raun hefur ekkert í hana að gera og jafnvel verið einir eða með börn í bílunum.  Auðvita er leiðinlegt ef aðili skemmir ferðina fyrir öðrum með því að nota gömlu aðferðinna blessaður þetta reddast allt saman.  Með þessum reglum erum við að sýna að fólk verður að axla sína ábyrgð sjálft, ekki vona að aðrir reddi þeim.   Varðandi björgunarsveitirnar þá er mjög gott að þær viti af okkur sérstaklega ef slys verður og bjarga þarf mannslífum.  Bílunum er alltaf hægt að bjarga seinna.  Þetta eru flottar athugasemdir og vert að skoða.  Það er ekki endilega allt rétt sem sett er fram og má alltaf skoða betur. En því miður höfum við birta reynslu af Stórferðunum þar sem aðilar hafa lennt í að stórskemma eða eyðileggja bílana sína í björgunaraðgerðum og sitja sjálfir uppi með tjónið.  Ég er til í að fara yfir þetta mál betur á næsta félagsfundi sem verður 1. febrúar næstkomansi.

Kveðja

Sveinbjörn

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935952 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-935952 Tue, 12 Jan 2016 22:52:42 +0000 Sveinbjörn Halldórsson Sæl.

Stjórn hefur farið yfir málið og munum við lagfæra glærurnar þar sem meining okkar kemst ekki rétt til skila í glærunum. Ný kynning verður sett inn á morgun.  Takk fyrir góða ábendingu, endilega látið vita ef það er eitthvað sem þarf að útskýra.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-936056 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-936056 Wed, 13 Jan 2016 11:02:51 +0000 Sveinbjörn Halldórsson Sæl.  Hér er lagfærður upplýsingalisti vona að við séum að koma rétt frá okkur upplýsingunum.  Ef ekki þá eru allar ábendingar og spurningar vel þegnar.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-936064 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-936064 Wed, 13 Jan 2016 15:58:56 +0000 Kristján Finnur Sæmundsso Sæll

Gott mál að þessu hafi verið breytt, ánægður með það.

Ég er fæddur og uppalinn við Gilsfjörðinn og þekki ágætlega til á svæðinu, því finnst mér leiðarvalið vera full mikill malbiksakstur. Var ekkert skoðað að fara upp á Glámu eða Drangajökul, gista jafnvel eina nótt á Reykjanesi. Steingrímsfjarðarheiði er alltaf mokuð og Þorskafjarðarheiði er yfirleitt létt og löðurmannleg :)

Skv. Vegagerðamönnum á vestfjörðum verður Hrafnseyrarheiði ekki mokuð fyrr en í apríl og þeir segja að mikill hliðarhalli á heiðinni geri það næstum útilokað að keyra hana á jeppum í miklum snjó. Sú leið er því ekki líkleg til vinsælda.

Verður ekki gefið upp hvaða leið er áætlað að fara frá Ísafirði?

kv

KFS

 

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-936065 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-936065 Wed, 13 Jan 2016 16:50:45 +0000 Sveinbjörn Halldórsson Sælir.

Það er allt opið ennþá. menn hafa ekki þorað að gefa út neina leiðir fyrr en nær dregur. En það er vel inni að fara frá Þorskafjarðarheiðinni og koma niður nálægt Búðardal.

Ég er ekki góður í leiðarveali á þessu svæði þar sem ég hef sjálfur lítið ferðast þarna.  Allar upplýsingar eru vel þegnar og þurfa að skoðast.  Ástæðan fyrir því að Vestfirðirnir eru valdir eru vegna þess að þangað förum við yfirleitt ekki nema þegar ferðir hafa verið á Drangjökul og þá yfirleitt í kringum sumardaginn fyrsta.   Ein af ástæðum þess að Ísafjörður er valinn er vegna gistingar. Við reiknum alltaf með svipuðum fjölda í ferðirnar eða um 200 manns, auk þess að í þessa ferð geta menn komið án þess að vera endilega á fjallabílum, þ.e ef þeir hafa áhuga á að hitta félagana á föstudagskvöldi og ég tala nú ekki um laugardagskvöldið. Þessi ferð er mikil nýbreyttni og má frekar líkja við Landsmót en Stórfeð.  Á síðustu árum höfum við farið til Akureyrar, Skagafjarðar, Egilstaða og á Mývatn.  Hugmynd vaknaði af ferð i kringum Kirkjubæjarklaustur eða Vestfirði. Vestfirðirnir hafa alltaf heillað svo við ákváðum að reyna þetta.  Auðvita er þetta mikill akstur á þjóðvegi en ég er nokkuð viss um að það verður ekki malbikað alla leiðina vestur, og gott er ef við yfir höfuð komumst vestur vegna veðurs eða snjóalaga. Fólk hefur  nú hlegið af svoleiðis bröndurum en við verðum að muna ferðina í fyrra þar sem bílar byrjuðu að lenda í vandræðum á Holtavörðuheiðinni og Öxnadalsheiðin var lokuð. Þeir sem fóru malbikið síðan heim lentu í þvílíku basli á Holtavörðuheiðinni (nema þeir sem biðu í Staðarskála).  Veður á þessum tíma geta verið erfið og við verðum að gera okkur grein fyrir því að fara frá A til B getur tekið vel á.

 

kv.

Sveinbjörn

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-936071 <![CDATA[Reply To: Stórferð 2016 Ísafjörður]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/storferd-2016-isafjordur/#post-936071 Thu, 14 Jan 2016 09:45:47 +0000 Kristján Finnur Sæmundsso Gott mál. Ég er sammála því að það getur verið mikið ferðalag að fara á Ísafjörð ef veður er slæmt.

 

Ég hugsa samt að margir vilji hafa meiri áskorun í stórferð, en eins og þið bendið réttilega á getur hver hópur valið sé leið sem hentar þeim og því þurfa hóparnir þá bara að velja sér leiðir sem heilla.

 

 

 

Bestu kveðjur

 

Kristján Finnur

 

]]>