Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Steinolía v.s. Bensín
This topic contains 23 replies, has 1 voice, and was last updated by Atli Eggertsson 18 years, 2 months ago.
-
CreatorTopic
-
25.10.2006 at 20:54 #198810
Ég er búinn að vera velta þessu mikið fyrir mér upp á síðkastið, en hvað er að því að keyra á steinolíu í staðin fyrir bensín?
Ég prufaði þetta sem unglingur að keyra á steinolíu á Subaru Turbo og það svínvirkaði
Væntanlega þarf þjappan að vera sæmilega lág svo það verði ekki sjálfsíkveikja og líklega þarf að flýta kveikjutíma, þar sem steinolía hefur „hærri octan-tölu“ eða réttar að sagt, lægri cetan-tölu. Einnig gæti þurft að forhita hana á köldum vetrar nótum.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
26.10.2006 at 10:36 #565284
og hefur engin reynt eða spáð í þessu?
kv. Atli E.
26.10.2006 at 11:00 #565286Mín reynsla er sú að þetta gengur , ég hef prófað blanda dísel við bensín í allskonar hlutföllum á bensínvél og hef séð að þetta er í lagi allt upp í 1 á móti 1 . Þetta borgar sig ekki nema f. lengri ferðir þar sem bíllinn reykir óskaplega kaldur.
26.10.2006 at 11:04 #565288En hefur þú prufað steinolíu?
Hvað gæti helst skaðað Bensín (ottó)vél ef maður setur á hana steinolíu?
Í gamladaga voru Ottó (bensín) vélar keyrðar á steinolíu, alla vega vildi rússinn að það væri gert svoleiðis?
Ætli það sé hætta á sótun eða eitthvað svoleiðis?
26.10.2006 at 11:26 #565290Hef ekki prófað steinolíu etv er það betra láttu vita hvernig gengur. Það væri gaman að prufa.
26.10.2006 at 14:07 #565292Sagði mér að steinolía brynni við svo hátt hitastig að það gæti skemmt heddið. Leiðréttið mig ef það er rangt
Sagan segir að menn hafi notað þetta á verkfallstíma og eftir að hafa keyrt bílin í talsverðan tíma hafi heddið eyðilaggst.
En það kom reyndar fram að um díselbíl var að ræða, ekki bensín.
26.10.2006 at 15:41 #565294Sælir
Samkvæmt reynslu forfeðranna er hægt að keyra á blöndu af bensíni og steinolíu. En þetta kemur niður á krafti.
Versta aukaverkunin var sú að steinolían brann ekki öll nógu vel og seig því smátt og smátt niður með hringjum og safnaðist fyrir í sveifarhúsi. Og þar af leiðandi minka smurhæfileikar smurolíu og fleirri slæmir kvillar.Kv O.Ö.
26.10.2006 at 16:32 #565296Varð var við þetta vesen og einnig safnaðist hún f. í pústinu en ég varð ekki var við minna afl enda reyndar ekkert fyrir.
26.10.2006 at 17:42 #565298Hvað kostar líterinn af steinolíu?
26.10.2006 at 17:55 #565300ég prófaði að keyra á steinolíu þegar ég var í fjölbrautarskóla fyrir 20 árum. Ég átti japanska dós,
ég keyrði í ár á hreinni steinolíu, en svo kom babb í bátinn, það brann gat á stimpil. steinolía hefur hærri
hita við bruna en bensín.
26.10.2006 at 20:39 #565302Í bensínvél eru brunnir stimplar og hedd vanalega merki um forkveikju (e. detonation) sem verður þegar þjappþol er of lágt á eldsneytinu, of dauf blanda, sótútfellingar í bruahólfi, of há þjappa miðað við eldsneytið eða of fljót kveikja.
Stundum blanda af fleiri en einu atriði af þessum.
Þetta er semsagt þegar kviknar í loft/eldsneytis-mixinu of löngu áður en stimpillinn er kominn í efstu stöðu, þá kemur upp sú staða að bruninn er byrjaður að mynda töluverðan þrýsting og hita, ásamt því að enn er verið að þjappa draslinu saman, sem myndar líka bæði hita og þrýsting. Þá fara stimplar í drasl. Oft er hægt að heyra nokkurs konar ,,ping-ping" (neistabank) þegar vél sem hefur þessi einkenni er pínd í álag við ca. 1500 snúninga. Þetta hljóð(um 5 kHz tíðni) er einmitt það sem svokallaðir ,,knock sensorar" í nútímavélum eru stlltir inn á að nema, en þá bregst tölvan vanalega við með því að seinka kveikju og auka við bensínmagn.
(Nú er ég kominn svolítið út fyrir efnið…)
Allavega, nútíma bílvél sem stillir sig eftir eldsneytinu(kveikjutíma, magn), og sem hefur ekki of háa þjöppu ætti að geta gengið nokkuð vandræðalítið á blöndu af bensíni og steinolíu. Steinolían hefur reyndar ekki næstum eins gott þjappþol og bensínið sem nú er notað (Hvar er 92 oktana bensínið!!! hehehe). Lödur voru að mig minnir með þjöppu sem leyfði svona æfingar nokkuð vel, en túrbólausar nútímavélar eru nú flestar með þjöppu yfir 9:1, þannig að fara þarf frekar varlega og hlusta eftir banki og jafnvel skoða hvort svört ,,piparkorn" koma á kertin sem merki um forsprengingar.
Gott í bili….Ps. Atli, ég reddaði mér líka einhverntíma með því að setja steinolíu á Subaruinn minn hehehe
kv
Grímur
26.10.2006 at 23:14 #565304Maður kemur ekki að tómum kofanum hjá þér Grímur minn, frekar en venjulega 😉
Hvernig er það, ert þú ekki líka á V6 Runner eins og ég? Ég er að spá í að prufa þetta á hann á morgun… Heldur þú ekki að þetta svín virki?
Ég hef átt í erfiðleikum með að finna upplýsingar um 3vze vélina, er hún ekki að með þjöppuna ca. 1:8,5? Ég er bara smá hræddur um að tölvan verði ekki nóg og ánægð með þetta eldsneyti.
Það væri nú gaman að spjall við þig um þessa hluti, því að ég held að þú hljótir að vera búinn að stúdera þessa vél í döðlur, ef ég þekki þig rétt!
27.10.2006 at 09:48 #565306…er með 9.0:1 þjöppu original, ætti að geta gengið á 87 oktana eldsneyti eins og kaninn notar, reyndar grunar mig að það henti þessari vél betur heldur en 95 sem fer á þá hér….
Nenni varla að nota MSN, bjallaðu bara í mig í 6641001 ef þú ert í einhverjum pælingum.
Jú, ég hef stúderað þessa vél nokkuð, samt ekki komist í að tæta hana í frumeindir ekkþá
27.10.2006 at 10:17 #565308Ég bjalla kanski í þig ef 3VZE verður ekki hrifin af steinolíu
Kv. Atli E.
27.10.2006 at 21:09 #565310Það eru 6 lófastór göt á huddinu og stimplarnir týndir út í móa, eftir að hafa reynt við stóru-brekkuna heima…..
27.10.2006 at 22:17 #565312Þetta þýðir bara eitt, fyrst sexan er dauð þá er komin ágætis afsökun fyrir átta sílendrum.
Alltaf að líta á björtu hliðina!kv. Kristinn
29.10.2006 at 23:40 #565314Mér sýnsdist lokablandan hjá Atla virka bara all vel.
Mér skilst að hann ætli að fá einkaleyfi fyrir henni.
En það var mjög undarleg lykt aftan úr bílnum hjá þér.
Kveðja Fastur
30.10.2006 at 11:34 #565316Ég er að reyna að líta á björtu hliðarnar í þessu dæmi
Nú getur þú hengt húddið uppá vegg í listagallerí og selt það fyrir kostnaði við aðra vél og líklega meira
Það er nú ekki hver sem er sem á húdd með SEX götum.Ég myndi ekki gefa upp uppskriftina að blöndunni, þetta eru mistök sem eru svo skemmtileg að það er um að gera að leyfa öðrum að gera þau líka.
Elvar
ps. samhryggist
30.10.2006 at 14:33 #565318"Ég bjalla kanski í þig ef 3VZE verður ekki hrifin af steinolíu :-)"
Er þá ekki tími til að hringja í Grím. Eins og þú lofaðir á svari hér fyrir ofan.
mhuuuahahahah
30.10.2006 at 16:07 #565320Sælir.
Það var nú kanski dálítið ýkt hjá mér með götin, en þessi tilraun gekk ágætlega, þó svo að ég hafi vonast eftir öðrum niðurstöðum. En bíllinn fór á fjöll um helgina, rétt eins og Birkir sagði, og hann virkaði alla vega ekki ver en áður, þrátt fyrir undarlega blöndu af steinolíu og bensíni
Það var samt svolítið fróðlegt að prufa þetta í fullri alvöru…. en ég nenni varla tíunda það frekar.
Já það var svolítið gaman af lyktinni, þetta mynti helst á þegar verið er að kveikja upp í kolagrilli 😉
Annars var frábær dagur á fjöllum, með frábæru fólki.Kv. Atli E.
31.10.2006 at 23:26 #565322Hvaða hlutföll voru þetta? Einhverjar gangtruflanir eða undarlegheit fyrir utan lykt?
Hvernig er annars að nálgast steinolíu um þessar mundir…og verð? Þetta er varla skattað eins og hráolía/bensín eða hvað…allavega, ég er spenntur fyrir að tilraunast aðeins með þetta, ég er búinn að vesenast nóg í 3VZE til að geta stillt hana svolítið miðað við mismunandi eldsneyti, t.d. gengur hann betur og eyðir minna á atlantsolíu-bensíni heldur en essobensíni á núverandi stillingu.
kv
Grímur
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.