Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Steinolía
This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Guðmundsson 14 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
25.12.2009 at 16:16 #209333
Hvar fær maður Steinolíu af dælu núna ? Og er einhverstaðar sjálfsali ?
Benni
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
25.12.2009 at 16:35 #673022
N1 Ártúnshöfða
Olís Álfheimum, veit ekki hvort steinolían er á sjálfsala en fyndist það eðlilegt.
kv Eggert
25.12.2009 at 16:59 #673024shell hraunbæ
25.12.2009 at 23:31 #673026N1 Ártúnshöfða þeir eru með sjálfsala var þar fyrir tvem dögum
takk @eggerts vissi ekki af olís
svo er norðlingaholltið með líka
26.12.2009 at 00:38 #673028eru menn dáltið að nota steinoliu á bila í dag og hvað kostar litirin af henni
kv haukur
26.12.2009 at 01:01 #673030Held nú að Benni sé að spá í þetta vegna frosts sem er spáð milli jóla og nýárs og ég held að hann ætli sér að vera á fjöllum þá en eins og flestir vita er steinolía notuð til að auka frostþol dísilolíu:)
kv Gísli
26.12.2009 at 02:33 #673032Takk fyrir svörin.
Fékk loksins steinolíu á Olís við Rauðavatn eftir að hafa reynt við N1 og Álfheima án árangurs.
En rétt er það hjá Gísla að ég er nú að eltast við þetta fyrir frostþolið – set ca 40% steinolíu á móti díselnum og svo 1 líter af ódýrustu mótorolíu sem ég finn í hverja 100 l af blöndu. Þannig verða 100 lítrarnir ca 500 kr ódýrari heldur en ef að um 100 % dísel hefði verið að ræða… sem sagt munar nánast engu nema umtalsvert betra frostþol…
En það er spáð grimmdarfrosti næstu dagana – gæti dottið í – 30 °C á Vatnajökli… og -20 víða annarstaðar á hálendinu…
Benni
26.12.2009 at 14:14 #673034Sælir allir, Benni þessi fræði og fleiri slík eru bara eitthvað sem tækninefnd klúbbsins gæti komið með á mánudagsfund. Eigðu góða ferð milli hátíðanna .
Kv. Magnús G.
26.12.2009 at 20:08 #673036Oft hefur maður bara sett vænann slurk af bensíni ….. ca 10% … Hefur virkað vel í gegnum tíðina ….
27.12.2009 at 01:54 #673038
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Steinolían virkar vel, mig minnir að Bosch-sérfræðingur hafi mælt með ca 1/2 líter af mótorolíu í 100 lítra af steinolíu.
Það er morgunljóst að mikil harðindi eru um gervallt landið svo að steinolíuhlutfall þarf vísast að fara upp undir 100% til að vorir fararskjótar stöðvist ekki óforvarendis. Ég hef allavega vaðið fyrir neðan mig nánast allan ársins hring, enda allra veðra von.kkv
Grímsi
27.12.2009 at 03:42 #673040Þeir sem eru að blanda samann smurolíu og tvígengis olíu er svosem í lagi, hvað sparnað varðar er sára lítill, Olía frís við -32 og steinolía við -43 svo tvígengisolía við – 48 . Bensín 95 frís við -50 og 98 við – 53 , ( Svo má líka nota Sjálfskiptiolíu til að blanda með hún hefur reinst bara vell og hún þolir frá – 50 til 60 gráður frost og sannaði sig í pólferðum . Olís er að selja olíu 7045 sem er ódírari en aðrar olíur og munar um 500kr og á tvígengis sem er á um 1600kr í dag og smurolíur eru á 1300kr og upp ) Svo er ikka að valið
kv,,,, MHN
27.12.2009 at 04:52 #673042veit um einn pajeró sem er búin að ganga fínt í eitt og hálft ár á 100% steinolíu svolítið leiðinlegri í gang þegar kalt er en annars bara í góðu lagi
27.12.2009 at 21:03 #673044Eru menn alveg vissir um að þessar nýtísku vélar með elektrónískum eldsneytiskerfum virki með íblöndunarefnum eins og steinolíu og mótorolíu? Hvað segja reynsluboltar eins og Gunni Icecool og Freysi um reynslu af Suðurskautslandinu? Annars var reglan sú hérna í den tid þegar vélar voru með mekanisk olíuverk að þegar blandað var t.d. 10% steinolía í dieselolíuna, þá var sett tvígengisolía sem svaraði 10% af steinolíunni til að upphefja rýrnun í smurhæfni sem steinolían olli. En þetta var nú áður en dieselolían fékk þessi vetraríblöndunarefni, sem eiga að vera í henni núna. Annars hitti ég mann á 100 hestafla Valtra-Valmet dráttarvélartrölli, sem neitaði að ganga í 18°C frosti. Hann taldi að síurnar hefðu stíflast hjá sér af paraffíninu. Það bendir til þess að þessi íblöndunarefni séu kannski ekki að virka nógu vel ef frostið herðir verulega.
27.12.2009 at 23:12 #673046Ég er nú ekki alveg viss um að þessi electrónísku olíuverk þoli svona blöndur, allavega er mjög óreglulega blikkandi vélarljósið hjá mér eftir að ég bætti tvígengisolíu í hráolíuna. Mér var ráðlagt að gera það til að smyrja dísurnar. Líklega hefur skynjarinn ekki þolað það. Ég hef farið yfir jarðsambönd og á smurstöð til að láta tékka á síunni en hef ekki skoðað skynjarann (hvar sem hann er ) ennþá.
MG
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.