FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Spurning vikunnar

by Þorvarður Ingi Þorbjörnsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Spurning vikunnar

This topic contains 30 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Árni Alfreðsson Árni Alfreðsson 18 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.10.2006 at 01:07 #198749
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant

    Góðir félagar.
    Nýlega var ég á ferðinni og rakst á örnefni sem ég ekki kannaðist við. Var þar um að ræða á sem nefnist „Emsturá“, -og reyndar var það „Innri-Emsturá“.
    Hvar er þessi á, vinsamlega staðfestið myndrænt eða með tilvísun til t.d. landakorts.

    Ingi

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 30 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 17.10.2006 at 09:13 #563696
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    …en án þess að meina neitt illt með því þá hefur mér sýnst í gegnum tíðina að annar hver maður hérna á spjallinu sé lesblindur og því soldið nastí af þér að slengja þessu fram :-)
    Að minnsta kosti reikna ég fastlega með því að þú sért að tala um Innri-EmSTRUá en ekki "emstur".
    Fyrir fróðleiksfúsa þá eru Innri- og Fremri-Emstruár þar sem rauðu punktarnir eru á þessari mynd. [img:35hb8ac6]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4814/34647.jpg[/img:35hb8ac6]





    17.10.2006 at 09:24 #563698
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Já, -nei, segi og skrifa Innri-EmSTURá.

    Ingi





    17.10.2006 at 09:42 #563700
    Profile photo of Þór Ólafsson
    Þór Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 52

    Hvar rakst þú á þetta örnefni svona skrifað?
    Ég leitaði á Google.com að "EmSTUR" og sýnist mér að á þeim síðum sem þar koma upp sé um ritvillu að ræða.





    17.10.2006 at 09:55 #563702
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Innri-Emsturá er brúuð, en mér skilst að það sé nauðsynlegt svo að hægt sé að ganga Laugaveginn,enda er Innri-Emsturá frekar íllileg.

    Hef heyrt af þessari á en ekki komið á staðinn sjálfur.





    17.10.2006 at 10:08 #563704
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Laugavegurinn liggur klárlega yfir Emstruá og þá bæði Fremri og Innri en Emsturá hef ég hvorki heyrt af né séð. Myndi álykta að þetta sé ritvilla, hvar svosem þetta hafi verið skrifað.
    Kv – Skúli





    17.10.2006 at 11:28 #563706
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    þær ár sem eru á gönguleið Landmanalaugar – þórsmörg eru
    þessar (1) Grashagakvísl er ekki farartálmi (2) Bratthalskvísl
    er sjaldan farartálmi (3) Kaldaklofskvísl er grítt og getur verið
    ervið í rigningu bæði fyrir bíla og gangandi er núna búið setja
    göngubrú á hana (4) Bláfjallakvísl er grítt og strömhörð og
    oft ervið yfir ferðar í rigningu getur líka reinst bílum fyrir staða
    (5) Innri- Emstruá er sjaldan fyrir staða en þegar þa gerist þá
    er hún bæði ervið fyrir Bíla og Göngufólk, var í miklum vegsti
    hún geimir eina Lötu sport í fossinum við brúna, það er til á
    mindum þegar bílin fór niður fossinn var ekki slys á fólki (6)
    Fremri- Emstruá vara söm í rigningu er brú fyrir göngufólk
    (7) Ljósá engin fyri staða (8) þröngá getur reinst ervið fyrir
    göngufólk rennur oftast í 3 álum við Hamraskóga.
    þetta er mjög góð göngu leið og mart að sjá og reinir líka á
    líkaman, ( Hef farið þessa leið oft gangandi í öllum veður
    sínishornum í rigningu ervid og leiðilegt tala um árnar puð )
    kv,,,MHN





    17.10.2006 at 12:05 #563708
    Profile photo of Davíð Örvar Hansson
    Davíð Örvar Hansson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 426

    Það er allt að því ómannúðlegt að kasta fram svona spurningu og virðast fáir geta svarað henni. Væri ekki hægt að fá vísbendingu, eitthvað eins og í hvaða landshluta á þessi rennur.
    –
    Davíð





    17.10.2006 at 12:09 #563710
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Nafnið Emstrur er talið dregið af amstri og erfiði . Á kortinu sem Einar setti inn eru tvö nöfn sem ekki eru alltaf eins stafsett . Í Göngum og réttum er talað um Hattafell en í nýja Íslandsatlasnum er það skrifað Hattfell . Eins er með Lifrarfjöll sem líka eru til á Landmannaafrétti . Mér finnst Lifrafjöll réttara eins og sést stundum ,en ekki veit ég hvað telst rétt en mig minnir að heimamenn hafi frekar talað um Hattafell. Kv.Olgeir





    17.10.2006 at 21:53 #563712
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    gert mér þann greiða að setja myndirnar tvær og textann sem ég var að setja inn á myndasafnið hér inn á þráðinn. Ég bara kemst ekki lengra með þetta!!!

    Ingi
    Ps. Skv. heimamönnum þá kalla ég fellið hans Olgeirs Hattafell.





    17.10.2006 at 22:05 #563714
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    [img:1he6jicu]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4819/34666.jpg[/img:1he6jicu]





    17.10.2006 at 22:06 #563716
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    Ég ætla svosum ekki að draga ykkur lengur á asnaeyrunum. Svona lítur önnur hlið skiltisins út, og svo hin…

    [img:3a71hwva]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4819/34666.jpg[/img:3a71hwva]

    [img:3a71hwva]http://www.f4x4.is/new/files/photo/default.aspx?file=files/photoalbums/4819/34667.jpg[/img:3a71hwva]





    17.10.2006 at 22:25 #563718
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Takk fyrir þetta Siggi & JÞJ. (En hvernig í ósköpunum er þetta gert???)
    Vona að mér fyrirgefist þetta,-en engu var til logið.
    Endilega kíkið á skiltið þegar þið eigið næst leið um.

    Ingi





    17.10.2006 at 22:38 #563720
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Ef þú hægri smellir á myndina þá kemur upp rammi,neðst í þessum ramma stendur properties,þú smellir á propeties og þá kemur upp annar rammi,þar stendur URL, td, https://old.f4x4.is/new/files/photo/defa … /34667.jpg
    þú copy(ar) það og síðan paste(ar) í Slóð á mynd,nema að sleppa http:// .Síðan smellir þú á Setja inn mynd.

    Kv
    JÞJ





    18.10.2006 at 00:01 #563722
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Ég verð nú að viðurkenna að ég tala um Emsturá (Amsturá) þó eflaust sé það réttara að skrifa og tala um Emstruá (Amstruá) eða hvað! Þetta er kannski svipað og þegar Steinsholtsá verður að Steinadalsá.
    Eingöngu heyrt um Hattfell á Emstrum. Það er mjög sterk málvenja hér undir Eyjafjöllum og víðar á Suðurlandi að sleppa síðasta sérhljóða í nafni örnefnis, einkum ef það er sérhljóðinn er. Þannig verða Tindafjöll eins og Árnesingar segja að Tindfjöllum hér. Hér er Litlheiði ekki Litlaheiði. Fálkahöfuð eru ekki til hér eingöngu Fálkhöfuð. Þannig er talað um Litlenda og Stórenda. Hausarnir á Steinsholtinu heita þannig Hellhaus og Innsthaus ekki Helluhaus og Innstihaus. Hins vegar er talað um Langadal og Húsadal.
    Þessi regla er engan veginn algild en kannski þyrfti einhvern málfræðing eða sálfræðing til að skilja þetta. Sumt af þessu hefur ratað rétt á kort annað ekki.

    Kv. Árni Alf.





    18.10.2006 at 00:07 #563724
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Þarna átti nú ekki að standa neitt sérstakt nema sérhljóðarnir eru jú auðvitað helst i,a,u eins og gefur að skilja.

    Kv. Árni Alf.





    18.10.2006 at 00:51 #563726
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Þetta skilti er snilld!
    Ætli það sé ekki nógu erfitt fyrir útlendingana sem heimsækja landið okkar að greina örnefnin frá hvoru öðru þó að þeim sé ekki gerður þessi óleikur líka, hehehe.
    Við ættum öll að eiga okkar persónulega prófarkarlesara :-)

    EE.





    18.10.2006 at 08:46 #563728
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Já þetta með örnnefnin okkar er stundum dálítið spúkí, er ekki talað um Tindfjallajökul og TindAfjöll, – en svo Tindfjöll á Þórsmörk???
    Eitt leikur mér forvitni á að vita, Krakatindur er austan Heklu, en eru tindarnir einn með þessu nafni eða tveir?
    Gaman væri að heyra í hagavönum!

    Ingi





    18.10.2006 at 09:04 #563730
    Profile photo of Guðmundur Jónsson
    Guðmundur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 1116

    Ég held að Krakatindur dragi nafn sitt frá ásjónu hans frá Landmannahelli þann frá séð er hann eins og þríforkur og eru tindarnir þá þrír sá hæsti í miðjunni.

    [url=http://www.mmedia.is/gjjarn/fjall/2leit03/pages/2leit553.htm:2z1ykaca][b:2z1ykaca]Þetta sjónarhurn er aðeins of mikið úr austri [/b:2z1ykaca][/url:2z1ykaca]

    guðmundur





    18.10.2006 at 09:11 #563732
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Jú fjöllin eru tvö samkvæmt korti. Sá Krakatindur sem er minna þekktur er á milli Vatnafjalla innri og Botnafjalla og er merktur 998





    18.10.2006 at 09:23 #563734
    Profile photo of Guðmundur Jónsson
    Guðmundur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 1116

    Það er villa í einhverjum kortum en þar er lítið fell á rangávallaafrétti, í vatnafjöllunum sem heitir hrauntindar, ranglega merkt Krakatindur en það er klárlaga bara villa.
    guðmundur





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 30 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.