FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Spurning kvöldsins

by Hlynur Snæland Lárusson

Forsíða › Forums › Spjallið › Umhverfismál › Spurning kvöldsins

This topic contains 31 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson Þorvarður Ingi Þorbjörnsson 18 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 08.10.2006 at 20:29 #198689
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant

    Hérna kemur ein létt spurning.

    Spurt er um stein nokkurn, sem fyrr á tíðum var kenndur við meri (kvenkyns hross). Hvar er þessi steinn ????

    Svar óskast

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 31 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 08.10.2006 at 20:41 #562842
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    er átt við að steninn beri nafn meri. þ.a.s kvennkyns hrossi. S.a.m.b Gránusteinn. Dúfusteinn. Er það sem þú átt við Hlynur ???





    08.10.2006 at 20:59 #562844
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þessi steinn var fyrir langa löngu kendur við meri, en hét þó ekki merar steinn, enda eru önnur orði til í íslensku til að lýsa meri en meri. Þetta gamla nafn er þó aflagt í dag og gengur þessi steinn undir öðru nafni sem hljómar þó mjög svipað og gamla nafnið.

    Hvar er þessi steinn og hvaða nafn ber hann í dag ?

    Góðar stundir





    08.10.2006 at 21:10 #562846
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Hryssu, merar, bikkju, jór, truntu – steinn, bjarg, vala, klettur.





    08.10.2006 at 21:17 #562848
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Hlynur þú semsagt gefur hvorki upp staðinn né nafnið og á að reyna geta upp á hvortveggja!!! Þetta er frekar snúið, getiði hvað staðurinn sem ég er að hugsa um heitir og hvar hann er.
    Kv – Skúli





    08.10.2006 at 21:22 #562850
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þessi steinn er venjulega merktur inn á kort, en staðsetningin er ekki mjög nákvæm á kortunum.

    Koma svo





    08.10.2006 at 21:26 #562852
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    4 leiðir eru yfirleitt farnar inn í Setur, fer maður frammhjá þessum stein á einhverri af þessum leiðum?

    Lúther





    08.10.2006 at 21:26 #562854
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Ég ætla að skjóta á Ingólfsfjall, í þeirri von að einhverstaðar finnist meri sem hefur verið skírð Ingólfur í misgripum…

    EE.





    08.10.2006 at 21:29 #562856
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    er bara að grafa upp alla steina sem fengið hafa nafn og lennt á kortum. PS Staupasteinn hlítur að hafa lennt á kortum og gæti hafa verið dregið af drykkfelldri meri.





    08.10.2006 at 21:33 #562858
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ég vísa í innleggið frá Degi, til að gefa ykkur vísbendingu. Svo má ekki gleyma að þessi steinn hefur annað nafn í dag, sem flestir eða allir þekkja.

    Góða stundir





    08.10.2006 at 21:38 #562860
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Mér dettur bara í hug Jöldusteinn vestur af Húsadal Kveðja Olgeir





    08.10.2006 at 21:40 #562862
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ekki ertu að spyrja um Jórukleyf, þá er staðsett er nærri vettvangi dómsmáls sem nú er frægt meðal jeppamanna?
    Kv – Skúli





    08.10.2006 at 21:47 #562864
    Profile photo of Dagur Bragason
    Dagur Bragason
    Participant
    • Umræður: 57
    • Svör: 1058

    Jórukleif er upp frá Hestvík við Þingvallavatn. Hún er kennd við bóndadóttur í Flóa er Jórunn hét. Er hestur föður hennar beið lægri hlut í hestati einu þá trylltist hún og varð að tröllkonu. Settist hún að í helli einum í Hengli, sem þá var nefndur Jóruhellir. Hún beið ferðamanna er þar áttu leið um, í kleif einni, sem einnig var nefnd eftir henni, Jórukleif. Hún rændi öllu af ferðamönnunum og drap þá síðan. Gat enginn stoppað hana fyrr en góð ráð komu frá Noregskonungi





    08.10.2006 at 21:47 #562866
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Goðasteinn eða kannski Þursaborg….. ekki það að þeir tengist truntum á nokkurn hátt að mínu viti :-) en þeir eru alla vega ekki rétt (nákvæmlega) merktir á kort.
    kv
    AgnarBen





    08.10.2006 at 21:49 #562868
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    ekki er átt við HVÍTSERKUR það er að vísu klettur





    08.10.2006 at 21:50 #562870
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Innri-Fuglasteinn, austur af kjalvegi við Árbúðir.

    Lúther





    08.10.2006 at 21:52 #562872
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þetta var of nálægt Olgeir, enda var hann með svarið. Jöldusteinn er fornt landamerki frá landnámi, en í Njálu er talað um Öldustein og hefur það nafn náð að festa sig í sessi. Jalda er annað orð yfir meri, en einhverja hluta vegna var þetta fallega nafn gefið upp á bátinn og nafnið Öldusteinn tekið upp, þökk sé Njálu. Steinsholtsá og Markarfljót renna venjulega saman rétt við Öldustein, og á Laugardaginn fórum við nokkrir touristabílstjórar yfir fljótið rétt fyrir ofan Öldustein og yfir í Fljótshlíð, og er gott vað á fljótinu þar sem eflaust á ekki eftir að breytast neitt í vetur. Öldusteinn er úr móbergi og væri frekar að tala um klett, enda er hann stór klöpp á aurunum og sést vel frá veginum inn í Þórsmörk.

    Góðar stundir





    08.10.2006 at 23:26 #562874
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Tíðarskarð , hvað þíðir það og hvar er það
    kv,,,MHN





    08.10.2006 at 23:46 #562876
    Profile photo of Árni Alfreðsson
    Árni Alfreðsson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 280

    Það er fáfarið út í Öldustein enda oft milli vatna. Ég komst nú fyrst út í hann í fyrrasumar enda allt Fljótið sunnan megin. Ég held að mjög margir taki ekkert eftir þessu merkilega kennileyti á leið sinni inn á Mörk og fram aftur. Hann fellur svo vel í aurinn. Þetta er nú landamerki Stóru-Merkur svo maður verður að hafa þetta á hreinu.

    Kv. Árni Alf.





    08.10.2006 at 23:50 #562878
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Grun ég illan hef um Hlyn
    hann tekið hafi Jöldu,
    -takist honum ei að temja sinn vin
    hann trúlega reynir við Skjöldu.
    Þinn Vatna-sullingi





    09.10.2006 at 00:20 #562880
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Hvenær var fyrsta póstferðin á vagni farin?
    Hvaðan var fyrsti póstvagninn?
    Hvað var hann margra hesta?
    Hver var ekill hans?
    Hvaðan og hvert var farið?
    Hvað tók ferðin marga daga?

    Kannski of létt, en samt bara gaman að þessu?

    Magnús G.
    R-2136





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 31 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.