FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Spurning að hætti Magnúsar.

by Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Spurning að hætti Magnúsar.

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 14 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 02.07.2010 at 17:21 #213409
    Profile photo of Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Sigurður Bjartmar Sigurjónsson R2060
    Keymaster

    Hér er um að ræða hús sem tíu til tuttugu þúsund íslendingar sjá á hverjum degi og kanski tvisvar á dag.
    Þessi mynd var tekin árið 1958. Hvað heitir það og við hvaða veg stendur það og hvaða dal.
    Hún ætti nú að vera ferkar auðveld þessi.

    Kveðja SBS.

    Viðhengi:
    1. 304_93140fc1f55e8037e0d2e2462d661e6a
  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 02.07.2010 at 18:33 #697628
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Litla kaffistofan, Suðurlandsveg, Jósepsdal.





    02.07.2010 at 19:02 #697630
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Nei Bergur þetta hús er fyrir vestan Lögberg. Það voru nokkur hús þar.

    Kv. SBS





    02.07.2010 at 20:38 #697632
    Profile photo of Stefán Dal
    Stefán Dal
    Member
    • Umræður: 21
    • Svör: 425

    Valdi koppasali?





    02.07.2010 at 21:07 #697634
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Valdi koppasali! Nei þetta er hús sem stendur við laxveiðiá og gerir það ennþá.

    Kv. SBS





    02.07.2010 at 22:29 #697636
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 29
    • Svör: 185

    Til gamans má geta þess að þetta hús er byggt að mestu leiti úr kössum sem Moskvitch var fluttur inn í frá Sovét á sínum tíma

    Rúnar Sig





    02.07.2010 at 22:35 #697638
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Held að þetta sé húsið sem stendur rétt við Elliðaárstífluna, man ekki hvað vegurinn heitir, hvort hann heitir Rafstöðvarvegur man ég ekki alveg. En þarna á heima í dag einhver fornbílagaur, haugur af virðulegum höfðingjum þarna fyrir utan sem bíða uppgerðar og betri tíma. Kv. L.





    02.07.2010 at 23:32 #697640
    Profile photo of Lárus Elíasson
    Lárus Elíasson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 408

    er það ekki "Sjáni Meik"?





    03.07.2010 at 00:00 #697642
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það er rétt staðsetning Logi. Þetta hús heitir Hraunteigur og stendur við Vatnsveituveg. Rafstöðvarvegur er norðanmegin við Elliðaárnar.
    Þarna byggðu menn hús upp með vatnsstokkunum sem vegurinn er kenndur við. Það var ekkert annað en að laumast til að bora gat á stokkinn
    og veita vatninu inn í húsin. Breiðholtið og Elliðaárdalurinn svo ég tali nú ekki um Elliðaána var leiksvæði okkar Rúnars og systkinna.
    Oft lág nú stórlaxinn úr ánni fyrir smáum barnshöndum í þá gömlu góðu daga. Ég minnist þess hve langt var að ganga á hverjum degi í strætó eða skólabílinn
    til að komast í skólann. Það var þá leið frá Elliðaárstíflinni og niður að Skeiðvelli þar sem Sprengisandur er nú. Börnum eða unglingum var nú ekki vorkennt þó þeir þyrftu að ösla á móti austan stórhríðinni enda gerði hún okkur hraust. Þá sá Gísli Eiríksson gamall brautryðjandi í ferðamensku inn á hálendið á öflugum ferðarútum um keyrslu á börnum sem bjuggu í úthverfum borgarinnar. Stundum þurfti hann að beita hörðu til að halda aga í rútunni. Ég minnist þess að alltaf var sungið í rútunni hjá Gísla og voru það stúlkunar sem héldu uppi fjörinu. Þá voru Ómar og Raggi Bjarna og ótal fleirri teknir. Gömlu góðu lögin voru þá ný. Þetta hús byggði hann pabbi okkar og átti ég mín fyrstu handverk þar í almennri vinnu.

    Kveðja SBS. Læt hér fylgja aðra mynd.





    03.07.2010 at 02:21 #697644
    Profile photo of Magnús Guðmundsson
    Magnús Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 141
    • Svör: 1565

    Frábært, að koma með svona. Þetta auðgar og er mjög áhugavert og skemmtilegt. Takk.

    Kv. MG





    03.07.2010 at 22:15 #697646
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Takk Magnús. Það er freistandi að setja hér inn mynd sem ég tók um 1966- 1968 út um norður gluggann og yfir í átt að Arbæ. Gamli vegurinn sem lá yfir að Arbæjarbrekkunni er þarna rétt við Safnið. Háspennumastrið og línan eru líka horfið.

    Kveðja SBS gamlar myndir sem við eigum eru menningarverðmæti.

    P.s. Eg tók ekki fyrri myndir.





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.