FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Spottar

by Þórður Aðalsteinsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Spottar

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson Lárus Rafn Halldórsson 15 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 15.01.2010 at 09:54 #209924
    Profile photo of Þórður Aðalsteinsson
    Þórður Aðalsteinsson
    Participant

    Reglulega hefur komið upp umræða um spotta og hnúta og annað tengt því. Ég var að skoða upplýsingar frá framleiðanda á ýmsum spottum og sá þar upplýsingar um hvaða áhrif raki hefur á styrk nylon spotta, vildi deila þessu með ykkur. Þess ber að geta að þetta er framleiðandi á klifurlínum og slíkum bandspottum, en nylon er hins vegar nylon. Þetta er í FAQ hjá Sterling Rope, http://www.sterlingrope.com/media/document/techmanual.pdf

    3. What happens to my nylon rope when it’s wet?
    Nylon fiber is affected by the absorbtion of water. Nylon is hydrophilic meaning it will absorb water.
    The overall strength and stretch can be greatly affected by moisture in the fiber. Whenever possible
    try and keep your ropes away from water and as dry as possible. Our in-house testing shows that
    loss of strength in wet ropes may be as high as 70% in nylon ropes without DryCore™ but only 40%
    in ropes with DryCore™. A 11mm Drycore™ rope that holds 11 falls dry, holds 7 falls wet. That
    same rope without DryCore™ may hold only 3 falls when wet. In general the data shows that the
    loss of strength through the presence of water in nylon ropes is significant. The good news is that
    nylon’s original strength and elongation returns when the rope dries.

    Og í sambandi við hnúta hafa þeir þetta að segja.

    11. How much strength does my rope loose when I tie it in a knot?
    There are a lot of publications available that contain information about knots and knot strength. For
    that reason we will not include much information here, except to say that knots reduce the overall
    strength of a rope. Therefore, whenever possible use a tensionless knot around a cylindrical object with
    at least a 4’’ diameter. Four inches is the magic number for maintaining full strength in a rope up to
    5/8’’. Any bend tighter than 4’’ reduces the strength of rope because they stress the rope in flexure, the
    fibers’ weaker direction. Here is a list of some common knots and the translating remaining rope
    strength.
    Knot Strength
    NO Knot 100%
    Double Fisherman’s 65-70%
    Bowline 70-75%
    Water Knot 60-70%
    Figure 8 75-80%
    Clove Hitch 60-65%
    Fisherman’s 60-65%
    Overhand 60-65%

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 15.01.2010 at 10:51 #677100
    Profile photo of Dagbjartur Vilhjálmsson
    Dagbjartur Vilhjálmsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 358

    er þá rétta að álykta að rúmlega 16tonna spottinn minn sé í raun ekki nema tæp 5tonn (4.8tonn) þegar hann er blautur?

    það gæti þá verið gáfulegt að fara varlega að kippa í þegar maður situr í krapa t.d.? oft þarf nú ágætis átak til að losa bílinn þannig,

    hvernig er reynsla manna? hafa menn verið að slíta spotta frekar þegar þeir eru blautir? eða er annað sem spilar inn í það

    kv Dabbi





    15.01.2010 at 13:57 #677102
    Profile photo of Davíð Þór Sigurðsson
    Davíð Þór Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 55
    • Svör: 234

    Ég hafði alltaf haldið að það færi verst með spotta að vera stanslaust að blotna og þorna, blotna og þorna aftur og aftur.
    En ég get ekkert fullyrt um það, fannst það bara vera eðlilegast að styrkurinn færi úr þeim við að þorna aftur og aftur eftir blotnun því þá stökknar og tærist nylonið.
    En þetta er engu að síður mjög áhugavert að vita hvernig sem þetta er nú í raun.
    Sennilega er nú besta meðferðin á þessu dóti að geyma þetta sem mest inni og reyna að hafa gúmmíhólka eða álíka yfir álagssvæðum, lykkjum og þar sem er splæst og mest álag er á reipinu og kemur þá í veg fyrir að spottinn trosni á aðal þreytusvæðinu.





    15.01.2010 at 14:00 #677104
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    ég bjó einusinni til öryggisbelti á teygjukaðalinn minn og eftir að hafa séð hvað járnarusl getur gert þegar það rifnar af bílum í svoleiðis krapa-átökum án öryggisbeltis, þá mun ég aldrei tosa neinn uppúr festu nema að tryggja mig með kaðlaöryggisbelti fyrst.

    ég var með myndir af þessu á gömlu síðuni, en henti þeim út einhverntímann.. skal finna þær aftur og setja inn ef menn hafa áhuga.

    svona öryggisbelti virkar reyndar takmarkað ef kaðall slitnar við hnút, en samt skárra en ekki neitt. það er aðallega járnadótið sem er stórhættulegt, dráttarkúlur og svoleiðis sem á það til að gefa eftir og breytast í byssukúlur

    bara my .2$





    15.01.2010 at 15:14 #677106
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Held að það noti enginn þessa spotta frá sterling á fjöllum né á sjó til hífinga..
    Hef aldrei orðið var við að kaðlar "kraft-tóg"sem notaðir eru til hífinga eða teygjuspottar breyti slitþolsálagi við að blotna…
    Bara að nota almennilega spotta..engar eftirlíkingar…

    Svo held ég að ef á að á nota öryggislínu á teygjukaðlana þá þurfi hún að ná enda í enda með slaka í samræmi við teygju..!





    15.01.2010 at 15:57 #677108
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    dolli, þá misskilur þú öryggislínuna all-hrapalega. :) hún er bara til að stoppa spottann ef hann slitnar og er bara hengdur í bláendann sitthvoru megin og hönkaður upp á ákveðinn hátt.





    15.01.2010 at 16:10 #677110
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Nei Lárus ég er ekkert að misskilja þig…eða línuna…eftir þann tíma sem ég hef notað kaðla..spotta eða víra til sjós þá er það bara þannig að það slitnar aldrei eins…og að fá svona spotta eða vír í hendur..hjálm eða við andlit er ekki góð skemmtun…





    15.01.2010 at 16:31 #677112
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Lárus ertu ekki að meina til að stoppa spottan ef hann slitnar við hnút/lykkju/splæsingu eða slítur festingu af öðrum hvorum bílnum….. væntanlega gerir svona öriggislína lítið ef spottin slitnar fyrir miðju (eða bara einhverstaðar mitt á milli öriggislínanna)





    15.01.2010 at 16:51 #677114
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Einhvern tíman fékk ég hjá netagerðarmanni nokkra praktíska punkta varðandi teygjuspottana. Meðal þess sem hann talaði um var að slitþol rýrnar mjög mikið ef hann er hnýttur, í pelastikk getur rýrnun slitþolsins verið allt að 60%. Kemur til vegna ójafns álags á þræðina í hnútnum. Í splæsingu getur rýrnunin verið um 30% en í fléttuðu tógi þar sem splæsingin er fléttuð er rýnunin mun minni eða um 10%. Af þessu leiðir að ef spottinn slitnar eru mestar líkur á að það gerist í endanum, lykkjunni. Til viðbótar kemur að þar getur spottinn verið marinn og nuddaður eftir fyrri átök. Öryggislína á endanum er því ekkert vitlaus hugmynd þó auðvitað sé ekkert hægt að útiloka að spottinn slitni í miðju, gæti t.d. hafa skemmst þar af einhverjum sökum. Þú ert samt að minnka hættuna talsvert.
    Þessi sami netagerðarmaður sagði varðandi bleytu og óhreinindi þetta:

    [quote:3pf9rre5]Flestir teyjuspottar eru úr nyloni sem er gerviefni og óhreinindi hafa ekki áhrif á það. Hins vegar getur verið gott að skola spottann öðru hvoru þannig að það setjist ekki í hann slæm lykt og hann sé skemmtilegri í umgengni.

    Þegar nylon blotnar og þornar aftur harðnar það aðeins þar sem það dregst örlítið saman við að blotnar. Því er spottinn þjálli rakur en að öðru leiti hefur þetta ekki áhrif. [/quote:3pf9rre5]

    Framleiðsla á köðlum miðast aðallega við þarfir á sjó, dráttartóg fyrir jeppa er einskonar aukaafurð í þessu. Ég myndi því halda að þessi framleiðsluvara sé hönnuð með það í huga að hún megi blotna, for helvide.

    Kv – Skúli





    15.01.2010 at 22:17 #677116
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    Nákvæmlega, Óskar. maður er að tryggja staðina sem eru lang-líklegastir til að slitna og hefta flug járnhluta ef festingar gefa eftir. held það sé seint hægt að ná 100% tryggingu, en maður kemst vel áleiðis með notkun á svona einföldu trixi.

    Ég held að spotti sem slitnar fyrir miðju frekar en við hnút sé orðinn svo ónýtur að það sést á honum að það ætti ekki að nota hann til teygjuæfinga.

    svo þarf líka alltaf að hafa sjálfssagðar varúðarreglur þegar verið er að kippa í mjög fasta bíla…. -Enga- áhorfendur það nálægt að kaðallinn gæti sveiflast í viðkomandi t.d. ef hann losnar…

    það eru engir djók-kraftar í gangi þegar svona spotti slitnar.





    15.01.2010 at 22:58 #677118
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Varðandi þessa öryggislínu (sem gerir lítið gagn ef hún er bundin í lykkjuna sjálfa nema í undantekningartilfellum)
    Afhverju ekki að smella línu sem er bara einfaldlega hnýtt með grönnum þræði utan um teygjuspottann með 4-5m millibili með góðum slaka fyrir teygjuna?

    Ok svolítið óþjált og leiðinlegt að vinda saman en öruggara gerist það varla.
    Annars eru til 4-6mm teygjuspottar líka.

    kkv, Úlfr

    P.s. svo gleymdi ég að minnast á að hafa hana læsta við bílinn líka og með smá slaka þar.





    16.01.2010 at 00:54 #677120
    Profile photo of Sigurður Sveinn Jónsson
    Sigurður Sveinn Jónsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 108

    Svona öryggislína er ekki slæm hugmynd. Lína væri þá fest um teygjuspottann um einn til tvo metra frá hnúti/splæsi og síðan í bílinn. Ef spottinn slitnar í hnútnum þá tekur línan höggið. Hef séð svona útbúnað á 3" loftslöngum sem voru frá 150 bar loft-booster í bor-bransanum. Þá var baula eða klemma utan um slönguna rétt við tengi og síðan keðja úr henni í fastan hlut.





    16.01.2010 at 21:56 #677122
    Profile photo of Lárus Rafn Halldórsson
    Lárus Rafn Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 116
    • Svör: 1238

    ég bjó mér til svona öryggisbelti til að nota árið 2006, og gerði þá smá myndaþátt. ég er búinn að henda honum inn aftur hérna:
    https://old.f4x4.is/index.php?option=com … mId=273055
    ef menn hafa áhuga á að nýta sér þetta.

    síðan þá hefur einusinni slitnað festing á dráttarbita hjá manni sem ég var að tosa upp, og var ég þá með þetta belti á og það bjargaði hjá mér afturhleranum og rúðuni hugsa ég. (þá rifnaði prófíltengi hreinlega af bílnum með dráttarbitanum í, enda var það mjög illa soðið, sá það þegar ég fór að skoða hjá manninum).

    ég mun aldrei tosa neinn upp nema fá að nota svona öryggisbelti með.





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.