This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by is 16 years, 8 months ago.
-
Topic
-
Jæja, er að kljást við eitt vandamál þessa dagana. Það er söngur í afturdrifi.
Þetta byrjaði sem smá svona söngur sem heyrðist einhversstaðar eftir 70 kmh og var ekkert að trufla mann. Hækkaði bara aðeins í græjunum og málið dautt, þetta kom leið og ég setti draslið undir.
Núna er það komið að að maður glittir í þetta fljótlega eftir að tekið er af stað og eftir 70 er farið að heyrast ansi mikið í þessu og á bilinu milli 80-100+ er þetta orðið ansi þreytandi og ekkert sem maður getur látið fram hjá sér fara, enda dugar ekki að hækka bara í græjunum.
Þetta er einungis þegar það er álag, semsagt ég á gjöf eða vélin að halda við, ef það er ekkert álag heyrir maður þó í því en ekki nándann eins og þegar maður er á gjöf. Þegar ég tók þetta úr í annað sinn þá skoðaði ég það og virtist það ekkert vera taka vitlaust á, hvorki framm né aftur, innstillingin virðist semsagt vera fin.
Þannig er komið að þetta er 9,5″ Cruiser köggull, lenti í smá veseni þegar ég setti draslið aftur í eftir að hafa rifið það í annað sinn að ég þurfti að berja annann öxulinn í, og skipti engu máli hvor færi á undan, það var alltaf seinni öxullinn sem var erfiður í. Ætli þetta tengist eitthvað.
Ætli hlutfallið sé bara lélegt og allt verði æðislegt með nýju hlutfalli og stillingu, ætli þetta sé í leguni, einhver skekkja eða álag eða hvað. Einhver sem kannast við svipað vandamál.
Kv, Kristján
You must be logged in to reply to this topic.