FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Soffía nr 2

by Hjörleifur Helgi Stefánss

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Soffía nr 2

This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Albert Sigurðsson Albert Sigurðsson 18 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 22.12.2006 at 16:56 #199217
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant

    Sæl öll. Ég bendi á þessa dapurlegu frétt

    http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1243282

    og varpa fram þeirri spurningu hvort ekki leynist innan félagsins 4×4 einhver sem getur skotið skjólshúsi yfir þessa fjalladrottningu, þó ekki nema til að hægja á öldrun hennar þar til fjársterkum furðufuglum dettur í hug að koma henni í fyrra horf? Ég myndi svo sannarlega bjóða pláss í minni skemmu ef aðrir svipaðir gripir fylltu ekki þar út að dyrum.

    Kveðja, Hjölli.

  • Creator
    Topic
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 22.12.2006 at 18:18 #572388
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þarna eru að tapast mikil söguleg verðmæti úr iðnsögu íslendinga. Þarna sást líka glitta í Beddann sem Bjarni í Túni átti, og fór margar frægðar ferðir. Fyrir nokkrum árum var ég í hópi manna sem fór út á geymslusvæði og drukkum skál eins aðframkomins trukks, en forsprakki ferðarinnar var einn af fyrrverandi eigendum þessa eðla trukks. Guðmundur Jónason er með einn gamlan trukk í uppgerð og eins á Sæmundur í Borgarnesi uppgerða gamla rútu. Það væri óskandi að fleyrum af þessum gömlu bílum yrði bjargað.

    Hlynur





    22.12.2006 at 18:25 #572390
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Mig minnir að Soffíumenn hafi smíðað frambyggðan Weapon. Ef það er rétt hvað skyldi hafa orðið um þann bíl .Kv. Olgeir





    22.12.2006 at 21:42 #572392
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Var að skoða þetta Soffíumyndskeið á mbl.is – Víst er þetta umhugsunarvert, en auðvitað er endurbygging svona tækja gríðarlega fjárfrekt fyrirtæki. En þetta leiðir hugann að öðrum fjalladrottningum, sem jafnvel eru enn í notkun og því sem næst fullu fjöri. Einhverntíma var til á Dalvík Studebaker-Reo sem var mikið í fjallaferðum og svo á nú félagi Olgeir geimskipið sitt, sem er ef mig misminnir ekki M-37 árgerð 1953, eða hvað, Olgeir? Er það ekki líka með svona "sjúkrabílsyfirbyggingu" eða hvað þetta var kallað, sem er að verulegu leyti original? Það væri vissulega vel þess virði og áhugavert skoðunarefni, hvort ekki væri hægt að leggja því lið að svona tæki fengju nauðsynlega aðhlynningu án þess að sálum þeirra væri misboðið. Það er varla á nokkurs eins manns færi nema auðkýfinga að standa í slíku og e.t.v. geta klúbbfélagar lagt lið á þeim vettvangi? Þessir gömlu trukkar hafa sinn sjarma og í augum þeirrar kynslóðar sem við Olgeir tilheyrum, voru þetta "alvöru – bílar" eftirstríðsáranna og með hreinum ólíkindum hvað þeir þoldu að vera misboðið dag út og dag inn. – Völundurinn Björn Sverrisson hér á Sauðárkróki er nýbúinn að endurbyggja Chevrolet hertrukk árgerð 1942 þannig að hann lítur út eins og nýr og tilbúinn til hernaðarátaka! Það er aldeilis óskaplega gaman þegar svo vel tekst til, en þetta kostar ómældan tíma, þolinmæði og síðast en ekki síst peninga.





    22.12.2006 at 22:22 #572394
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Já það er ekki annað hægt en að taka undir með ykkur, það er sorglegt, þegar það þarf að horfa á eftir sögulegum gripum. Virðist þjóðfélagið í heild ekki gefa þessu nægilegan gaum og virðist sem ávalt sé skortur á fjármagni til safna og varðveislu menningarverðmæta. Hvað varð annars af henni Pálínu er hún einhverstaðar ofan jarðar.





    23.12.2006 at 00:34 #572396
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Sælir. Ekki veit ég hvað varð um Pálínu en Petrína L 57 sem Halldór Eyjólfsson á Rauðalæk átti lengi var jörðuð með viðhöfn við Sigöldu norðan árinnar og er minnismerki yfir henni .Börn Halldórs settu í september 2004 áletraða plötu til minningar um Halldór á stóran stein við Hófsvað norðan megin þar sem komið er uppúr breiða álnum . Halldór var mikill áhugamaður um hálendið og ferjaði jeppa á Reo Studebaker trukk yfir Tangavað nokkrar helgar sumurin áður en kláfurinn kom á Tungnaá 1964. Síðustu árin vann hann hjá Landsvirkjun við ýmis störf á hálendinu meðal annars að fylgjast með ísmyndun við Ísakot í Musteri óttans sem varðturninn var kallaður. Tíðarfarið á þessum fyrstu árum Búrfellsvirkjunar var svo gjörólíkt því sem nú er seinni ár og oft stöðug vandræði vegna íss í ánni sem reynt var að fleyta framhjá. Þá þurfti yfirleitt ekki að kvarta um snjóleysi á hálendinu yfir verurinn. Kv Olgeir





    23.12.2006 at 17:33 #572398
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Svei mér þá, mig dauðlangar að reyna að útvega pláss fyrir Soffíuna. Tími þó engu að henda út, en lengi má endurraða… Langar bara að leggja mitt af mörkum. Hún yrði þá til taks vilji einhver sinna henni. Spurning..

    Hjölli.





    24.12.2006 at 11:54 #572400
    Profile photo of Albert Sigurðsson
    Albert Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 257

    Það var einn enn, Gamla rútan hans Varða úr kópavoginum, Sú var flott, Alvöru trukkur,
    hún hefur ekki sést á götunni lengi, spurning hvað varð
    um hana, Hún var 6×6, alvöru græja, rauð.
    Nú vantar smá pistil frá Þorvarði Inga sem átti þennan grip, já jafnvel myndir af henni.

    jólakv. ö1235





    24.12.2006 at 16:48 #572402
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Skemmtilega fáir þekkja mig undir Varða nafninu, í öllu falli ekki hún móðir mín.
    En víst er löngu tímabært að ég komi sögu Reo Studebaker á fast form, helst er tíma- og tölvukunnáttuleysi auk framtaksleysis um að kenna. Reyndar tók ég einu sinni saman efni um bílinn sem birtist í þýska offroad blaðinu 4WheelFun ásamt myndum. Reoinn er í geymslu á Geymslusvæðinu hans Valda Vípon og er illa farinn rétt eins og hún Soffía. Hann er ´52 módelið af 6×6 Reo hertrukk, 2 1/2 tonn á vegleysum og 5t á vegum að burðargetu. Norðurleið lét byggja yfir hann 27 manna hús um ´61-´62. Hann viktaði 7,3 t klár í ferð með keðjum, verkfærum, varahlutum og olíu, eflaust yfir 10 t fulllestaður og þ.a.l. þokkalega yfirlestaður. Ég gerði trukkinn út frá ´85 – ´90. Ég gafst raunar upp á rekstrinum þega gírkassinn fór í fimmta skiptið, að þessu sinni í haustferð og rétt kominn yfir Hófsvaðið. Vel skiljanlegt að gírkassi byggður fyrir 120 bensínhestöfl lét ekki bjóða sér 210 Caterpillerdieselhestöfl!

    En svona til að geta sagt að ég sé byrjaður að skrá söguna þá fylgir hér vísa Ólínu í Skipanesi um bílinn:

    Rennivakur rauðskjóttur,
    reyndur í fjallaskaki.
    Heiðursnafnið hrystingur,
    hlaut með lófataki.

    *****************************************
    Gleðilega hátíð og snjóríkt nýtt ár.
    Ingi





    25.12.2006 at 14:53 #572404
    Profile photo of Albert Sigurðsson
    Albert Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 257

    Sæll Varði minn,
    Við gömlu Hlaðbæjarfélagarnir kalli ekki allt ömmu sína,
    en væni minn þessi gamli trukkur ætti svo sannarlega heima á safni, Alveg synd að ekki væri hægt að koma þessum gömlu bílum fyrir á góðum stað, það fylgir þeim
    svo mikil saga. Sjálsagt efni í góða bók.
    Ef þú átt góða mynd af honum, sendu hana inn.
    Bara flottur.

    Já Gleðilega hátíð félagar.

    ö1235





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.