FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Snorkel í snjó

by Þorvarður Ingi Þorbjörnsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Snorkel í snjó

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson Þorvarður Ingi Þorbjörnsson 19 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.11.2005 at 07:47 #196588
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant

    Sælir félagar,
    haldið þið ekki að ég hafi verið á mínum fína Patrol 2001 í skafbyl á Langjökli og hann bara dó. Loftsían kjaftfull og meira en það,- ég var ekki einu sinni á keyrslu heldur snéri bara snoppunni upp í vindinn. Algjörlega óþolandi!!!
    Á mínum gamla ´98 Pat hafði ég sagað gat fram úr síuhúsinu og lokaði hinu inntakinu og lenti eftir það ekki í brasi með þetta. Hins vegar þá gat ég auðvitað ekkert kafað dýpra í vatn en áður. Með snorkel er maður jú nokkuð öruggur í vatni,— en hvað með snjóinn. Er snorkel alveg vandamálafrír í snjó, hver er reynsla snorkelmanna.
    Ingi

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 06.11.2005 at 09:01 #531462
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Þessi bíll er svo mikið hærri en þinn gamli, að þú ferð mikið dýpra vatn á honum þótt síuhúsið sé gatað. Annars hafa lopahúfur verið ágætis vörn á snorkel ef vont er veður, en þekki það ekki sjálfur. Mæli með gatinu á loftsíuhúsið, þá ertu 100% öruggur með að hann gangi í verstu veðrum.

    Hlynur





    06.11.2005 at 09:21 #531464
    Profile photo of Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 446

    Hvar eru patrolarnir að taka loftið?
    Hilux, LC90, og LC120 er að taka loftið inn í innra brettinu, þá lekur snjókófið sem dekkið þyrlar upp meðfram innra brettini og ínn í loftsíuna. er þetta svipað í Patrol?





    06.11.2005 at 09:42 #531466
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Patrol (frá 1998 og yngri) er að taka loftið í innrabretti vinstramegin. Í vondum veðrum stíflast síurnar, en með því að opna síuhúsið inn í vélarsal er þetta vandamál leist.

    Hlynur





    06.11.2005 at 09:47 #531468
    Profile photo of Jón G. Guðmundsson
    Jón G. Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 70
    • Svör: 705

    Ég hef stundum verið að íhuga nokkuð varðandi skafrenning.
    Hann skríður með jörðinni og þynnist því fljótt eftir því sem ofar
    dregur. Þannig að í Lágarenningi ti snorkelið að standa uppúr kafaldinu, ekki satt?
    Ég veit dæmi þess að menn hafi opnað topplúguna á snjóbílum hérna í denn svo að kóarinn gæti staðið uppúr og séð yfir skafrenninginn. (andsk! þarna fékk ég enn eina BILAÐA hugmynd).
    En hvað um það Snorkel ætti að hjálpa eitthvað í skafrenningi haldiði ekki?





    06.11.2005 at 10:15 #531470
    Profile photo of Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 446

    Í snjókófi er eflaust best að taka loftið inn í húddi og ég gerið það sjálfur. það er samt ekki gulltryggt. Loftið sem vélin fær hefur hitnað á leið sinni í gegn um vatnskassan og því er mjóg mikið af snjó sem hefur síast í gegn um hann, bráðnað og lekur niður af honum. Ég hef lent í því að það stíflast loftsían samt við hægan akstur þar sem vélin á fullt í fangi með að halda hita á sjálfri sér hvað þá að hita vatnskassann.
    Einn galli við að taka loft inn í húddi er að loftið er heitara og því verður minni kraftur í bílnum. reyndar kælir millikælir ágætlega niður, en heitara loft inn í millikiælinn verður til þess að heitara loft fer inn á vél því millikælirinn nær aldrei 100% virkni. Snorkel er fínt í skafrenning en ef ofankoman er mikil þá er þettleiki kófsinns nálægt því sá sami í 1 metra hæð og 2 metra hæð. þannig að það er ekkert tryggt í þessu máli. samt held ég að allt sé betra en að taka loftið í innra brettinu.





    06.11.2005 at 12:09 #531472
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Er að hafa tvö inntök, eitt í snorkel, og eitt ofanaf (eða nálægt) pústgreininni…. Svona var þetta útfært á Siberiu-cadilacnum sem og á Foxinum. Svo var hlutfallið á heitu og köldu lofti stillanlegt með krana á samskeitunum.

    Ég er tek loftið inn í vélarrúminu (bara gat á síuhúsinu), og hef aldrei lent í vændræðum. Bíllinn hjá mér var t.d. eini bíllinn sem gekk alla nóttina á leið á þorrablótið 2004 (sem er eitt þykkasta kóf sem ég hef lent í). Loftsían var ca hálffull af snjó um morgunin, en það háði vélinni ekkert. Miðstöðin var reyndar líka löngu frosin föst.

    Reyndar finnst mér einn galli við þetta loftinntak mitt, og það er að sían fyllist allt of fljót af ryki og skít.

    kv
    Rúnar.,





    06.11.2005 at 13:21 #531474
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Var ekki einhver hérna sem var búinn að útbúa hnapp og barka svipað og á handolíugjöf fram í húdd til að skipta á milli orginal inntaksins og barka í gegnum hvalbak. Það er varla mikið mál að græja svoleiðis sem lokar fyrir snorkelinn og opnar inní húdd.





    06.11.2005 at 13:43 #531476
    Profile photo of Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 446

    Ég bjó til svona fyrir LC120 og það er búið að setja það í nokkra bíla. þá er hægt að skifta annað hvort orginal í innrabrettinu og hinsvegar í húddinu alveg aftast og efst. það er svo notaður barki með hnappi inní hanskahólfi til að skifta. þá er hægt að velja annarsvegar kalt loft og meiri kraft eða hinsvegar fyrir snjó og ryk stillingu inní húddi





    06.11.2005 at 13:45 #531478
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það eru eflaust margar leiðir til að láta að láta bíl ganga í vondu veðri. Fyrir ekki mörgum árum gátu flestir fjallarútubílar tekið loftið inn í bíl, ef mikið vatnasull var framundan. Þetta loftsíuvandamál virðist vera frekar nýlega tilkomið, mætti segja að það hafi komið með GPS 12 tunglum, því menn eru mikið kaldari í að halda áfram í dag en fyrir nokkrum árum. Það er næstum því orðin liðin tíð að menn séu að bíða af sér veður í dag, eins og menn gerðu gjarnan fyrir nokkrum árum, og má segja að mikið betri leiðsögutæki, mun öflugri bílar og aukin reynsla manna sé aðal atriðið fyrir því að menn halda áfram og koma sér í skála eða í bæinn. Það fer að verða spurning hvort ekki sé rétt að fara í fortíðina og hafa loftinntakið bara inn í bíl, eins og í denn, og fara allra sinna ferða glápandi á tölvuskjá með rauðri línu.

    Góðar stundir





    06.11.2005 at 14:01 #531480
    Profile photo of Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Vilhjálmur Freyr Jónsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 446

    Það er ekki gott
    ég var með þetta þannig í Gamla Jöklagrána mínum að hægt var að setja loftinntaki inn í bíl. það var svo mikið sog af 2.4 vélinni að maður fékk hellu fyrir eyrun þegr maður gaf í því vélin át allt loftið úr bílnum og snjórinn fyllti innanrými bílsinns því miðstöðin hafði ekki við. en þetta er kanski í lagi í hægagangshjakki.





    06.11.2005 at 14:05 #531482
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Ég var með þetta svona í Double Cab sem ég átti og það þurfti að hafa heyrnahlífar á hausnum og rifu á rúðuni þegar þetta var tengt inní bíl. En hann fór uppá miðja framrúðu í vatni ef þurfti til og eins ótrúlegt og það hljómar þá héldu 17 ára gamlir hurðarlistar vatninu úti og fótaböð voru sjaldgæf.





    07.11.2005 at 10:37 #531484
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Gott væri að fá reynslusögur snorkelmanna. Klammar fyrir snorkelinn í skafbylsofankomuslydduskít, eða á snjórinn svo greiða leið inn að hann stífli síuna eftir sem áður?
    Er reynar á leiðinni með að saga gat á síuhúsið, -það má þá alltaf loka því aftur…
    Ingi





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.