This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Kristinn Magnússon 20 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
22.12.2004 at 18:19 #195086
AnonymousJæja þá kom að því að veturinn kom til Húsavíkur hehe á 5-6 tímum síðustu nótt snjóaði bæjinn í kaf sirka meters jafnfallinn snjór eða jafnvel meira
Gambri4x4 -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.12.2004 at 18:33 #511492
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Grát… ég í reykjavík

Hvernig er snjórinn stutt frá reykjavík? Skjaldbreiður og langjökul og þar í kring?Kv,jt
22.12.2004 at 18:48 #511494Það er misskipt mannana gæðum…..
En annars fór ég að Skjaldbreið á sunnudaginn var – fórum á þrem bílum frá Bragabót. Það var fullt af snjó og fínt færi að fjallinu – þar fór að þyngjast lítilega, en samt ekkert sem manni dytti í hug að kvarta yfir…
Benni
22.12.2004 at 19:14 #511496Aldeilis eru húsin á Húsavík lágreist ef meters snjór færir þau í kaf. Maður spyr sig bara hvort þeir sem í þeim búa standi út úr hnefa á öðrum landsmönnum? En kannski þeir bæti upp með andlegu atgervi það sem skortir á hið líkamlega? Kannski væri ráð að spyrja Eyfirðinga og Múlsýslunga og ekki að efa að þaðan fengjust greinargóð svör um útlit og innræti húsvískra og nærsveitamanna. Gleðileg jól annars!
Þ
22.12.2004 at 19:19 #511498
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
prufaðu að setja rúmlega meters jafnfallinn snjó í til dæmis Rvk annsi hræddur um að greyjunum í Borginni þættu það nu mikið:):):)
OG Já Gleðileg Jól allir sem hér eru
Gambri4x4
22.12.2004 at 19:36 #511500Samkvæmt [url=http://kjolur.f4x4.is/photoalbum/view.php?action=image&imageid=18371&albumid=379&collectionid=2829&offset=0:3rwub56u]þessum myndum[/url:3rwub56u] er snjórinn á Húsavík ekki sérlega jafnfallinn. Samkvæmt [url=http://www.vedur.is/athuganir/urkoma/snj0.html?:3rwub56u]snjómælingum Veðurstofnunnar[/url:3rwub56u] er snjódýpt á næstu veðurathugunarstöðvum við Húsavík, Mánárbakka og Staðarhóli 16-20 sm.
-Einar
22.12.2004 at 23:16 #511502ég var að koma heim til húsavíkur núna í kvöld, snjórinn hér er gríðarmikill, og virðist vera mestur í bænum sjálfum, því það er svona 6X meiri snjór en í Aðaldalnum, Mánárbakki er líka lengst út á Tjörnesi, svo þar getur verið miklu minni snjór.
Snjórinn hérna á bílastæðinu nær allavega upp á húdd á 38" Hilux. Og það er skafskafl!
ég skal taka myndir á morgun og sína ykkur. En allavega er ég viss um að við þurfum að fara aftur til ársins 1999 í það minnsta til að finna jafn mikinn snjó á Húsavík.Húsin hér eru í eðlilegri stærð, þið eruð bara öfundsjúkir

kv
Baldur
Þ-455
23.12.2004 at 05:33 #511504Hér í Borgarnesi er allt autt. Ekki snjókorn til að leika sér í, en mér skilst að það þurfi ekki að fara langt til að finna skafla.
Óska svo öllum gleðilegra jóla.
Keli og Inga. E-1819
23.12.2004 at 11:51 #511506Hversvegna farið þið ekki bara til [url=http://www.f4x4.is/vefspjall/tradur.asp?t=4278:2k65981m]Húsavíkur[/url:2k65981m]?
-Einar
25.12.2004 at 16:41 #511508
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Lögreglumaður á Húsavík sagði elstu menn ekki muna eftir sambærilegum veðurham á jólum, en í bænum eru mannhæðarháir skaflar á köflum og einingis fyrir vel búna og breytta jeppa sem búið er að hleypa einhverju lofti úr dekkjunum á að komast leiðar sinnar og það dugir ekki alls staðar til.
og ekki eru þetta neinar ýkjur
25.12.2004 at 17:27 #511510
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Það er nú líka búið að snjóa dálítið hérna á Akureyrinni og get ég vel leikið mér í fullt af snjó rétt fyrir utan hús…
25.12.2004 at 17:42 #511512Jæja piltar og stúlkur, þá er snjórinn kominn til Akureyrar. Það var ekkert leiðinlegt að keyra um bæinn í dag. Sendi hér [url=http://enigma.network.is/myndir/joladagur2004:3nekp3qw]link á nokkrar[/url:3nekp3qw] myndir sem ég tók í dag svona til gamans.
Kveðja E.Harðar
25.12.2004 at 18:16 #511514Þú hefur þá rent í Nettó eftir allt samann ha..ha…
Erum að spá í að gera eitthvað eftir hádegi á morg.
Kv.
Benni
25.12.2004 at 22:12 #511516Allt þurfa menn að sjá Benni minn. Hvert á að fara?
Kveðja E.Harðar
26.12.2004 at 14:02 #511518
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Meiri snjó til Reykjavíkur…….:-)
26.12.2004 at 19:02 #511520
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ekkert mál að redda ykkur snjó skal senda ykkur nokkra gáma af snjó til Rvk ef þið borgið kostnað hehe
26.12.2004 at 23:30 #511522stílaðu bara reikninginn á forsætisráðuneytið.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
