FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Snjódýptar mælir

by Óskar Eiðsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › Snjódýptar mælir

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Arnór Árnason Arnór Árnason 18 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 07.10.2006 at 23:02 #198685
    Profile photo of Óskar Eiðsson
    Óskar Eiðsson
    Member

    Sælir, ég hef verið að fylgjast með sjálvirku veðurstöðinni í setrinu og bíð spenntur eftir að sjá einhvern snjó þarna uppfrá. (hann ætlar að láta bíða eftir sér þetta árið) Eitt sem mig langar að vita er, hvernig virkar þessi snjódýptar mælir??
    Á einhver mynd af svona mæli??

    Kveðja
    Óskar

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 08.10.2006 at 11:10 #562806
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég hef líka tekið eftir að snjódýptarmælirinn í Veiðivatnahrauni er í einhverju rugli og virkar ekki. Veit einhver hvort sé orðið hvítt yfir á því svæði eða hvort snjór sé kominn á Breiðbak?
    Kv – Skúli





    08.10.2006 at 11:28 #562808
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Ég heyrði í Benna formanni á föstudagskvöldið og þá snjóaði dátt í Laugafelli. við fáum vonandi fréttir í kvöld þegar þeir koma úr Setrinu en þangað var ferðinni heitið norður um Eyfirðingaveg.





    08.10.2006 at 16:34 #562810
    Profile photo of Ólafur Magnússon
    Ólafur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 1299

    Það var amk snjór við Hrafntinnusker í gær, laugardag. Og fljúgandi hálka í núll gráðum.

    kv. Ólafur





    08.10.2006 at 20:18 #562812
    Profile photo of Ísak Fannar Sigurðsson
    Ísak Fannar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 490

    Segið mér nú eitt góðu menn,hvar getur maður skoðað þessa mæla á netinu?Eða hvar?
    –
    Kv Ísak Fannar





    08.10.2006 at 20:22 #562814
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Eftir að hafa horft á veðruspánna fyrir næstu viku get ég sagti ykkur að óþarfi er að skoða þessa mæla. Bara hiti út í eitt og ekki nokkur von um snjó strax. Líklega er best að breyta um áherslur núna og vera mest í vatnasulli, enda margar jökulár á breyta sér núna.

    Góðar stundir





    08.10.2006 at 20:48 #562816
    Profile photo of Óskar Eiðsson
    Óskar Eiðsson
    Member
    • Umræður: 17
    • Svör: 130

    eru inni á http://www.vedur.is og svo finna sjálvirkar stöðvar.
    Það er t.d. snjódýptar mælir á veðurstöðinni við setrið.

    Kveðja
    Óskar

    P.S. langar enn að vita hvernig þessir mælar virkar og sjá mynd af svona græju.





    09.10.2006 at 11:02 #562818
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Skúli – Það var enginn snjór á veiðivatnasvæðinu í gær. En þegar komið var yfir 850 m þá var kominn snjór.

    Fundum fullt af skemmtiulegum sköflum í nágrenni við Hrafntinnusker…

    Allt marautt í Setrinu.

    En varðandi þessa blessuðu snjódýptarmæla þá hef ég fylgst grannt með þeim í nokkur ár og eina niðurstaðan sem ég hef fengið út úr þeim er að þeir virðast oftar vera í einhverju rugli heldur en hitt.

    Benni





    09.10.2006 at 11:13 #562820
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Þessir mælar nota fjarlægðar skynjara í mastri, oft í um 3 m hæð yfir jörðu. Þetta eru samskonar skynjarar og notaðir eru fyrir autofocus í sumum myndavélum. Þessir skynjarar eru mjög nákvæmir, en þeir hafa ekki reynst endingargóðir á hálendinu.

    Þeir sjá ekki í gegnum mikinn skarfrenning, því þarf oft að bíða eftir að lægi til þess að fá marktækar upplýsingar. Gildið sem mælirinn sýnir er lágmarkssnjóþykkt. Síðastliðinn vetur virkaði mælirinn við Setrið mjög vel, mig minnir að mælirinn í Veiðivatnahrauni hafi líka verið góður, en það má vera að hann hafi verið bilaður í eitthvern tíma.

    -Einar





    09.10.2006 at 13:00 #562822
    Profile photo of Óskar Eiðsson
    Óskar Eiðsson
    Member
    • Umræður: 17
    • Svör: 130

    ok, takk fyrir það EIK

    Kveðja
    Óskar

    P.S. Loksins komin snjór í veðurspánna. Vesturland og Norðurland, spurning hvað langt suður hálendið hann teygji sig.





    10.10.2006 at 09:25 #562824
    Profile photo of Arnór Árnason
    Arnór Árnason
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 430

    [url=http://www.pbase.com/arnora/image/11383379:2dk2mrki][b:2dk2mrki]Hér [/b:2dk2mrki][/url:2dk2mrki] er mynd af veðurstöðinni við Setrið.
    Snjódýptarmælirinn er þrífóturinn hægra megin, næst Patrolnum.

    Ég tók þessa mynd svona víða eiginlega til að sýna hversu villandi þessi mælir getur verið í réttri(rangri) vindátt.

    Það sést vel þarna hvað skúrinn getur myndað fína skafla í "kjölfarinu" á sér ef rétt vindátt er.
    Í þessu tilfelli sýnir mælirinn sennilega 20-30 sm meiri dýpt en "rétt" væri.

    Arnór





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.