FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Smá spurning um rafmagn.

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Smá spurning um rafmagn.

This topic contains 3 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Sigurður Árni Friðriksson Sigurður Árni Friðriksson 20 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.11.2004 at 23:36 #194904
    Profile photo of
    Anonymous

    Halló.

    Það er tvennt sem mig vantar að vita og eflaust einhver snillingur hér sem hefur svörin….!

    Get ég mælt geyminn hjá mér eða athugað hann eitthvað til að sjá hvort hann sé eitthvað farinn að slappast, er nebbla svo lítið rafmagn á honum og virðist eyðast/klárast ef hann er ónotaður í 1-2 daga.

    Og annað hvort ég get mælt hvort að það leiði eitthvað út í bílnum hjá mér.

    kv. Stefán.

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)
  • Author
    Replies
  • 22.11.2004 at 00:43 #509246
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll.

    Þetta líkist helst því að það sé botnfall í geyminum. Kipptu honum úr bílnum og hvolfdu sýrunni úr honum í bala. Skolaðu hann svo með hreinu vatni að innan og tæmdu hann vel að því loknu.

    Notaðu trekkt til að hella sýrunni aftur á hann en láttu ekki botnfallið fara ofaní hann aftur. Gættu þess vel að setja svipað magn af sýru í öl hólfin og bættu svo í þau öll með hreinu vatni þannig að það fljóti yfir sellurnar.

    Síðan skaltu hlaða geyminn og passa að hann frjósi ekki óhlaðinn.

    Kv Isan

    P.s. það er miðað við um 6 ára endingu á rafgeymum svo að ef han er mikið eldri skaltu ekki eiga von á miklum framförum við þetta trixx….





    22.11.2004 at 08:42 #509248
    Profile photo of Atli Sturluson
    Atli Sturluson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 108

    Daginn
    Ég lenti í því um daginn að geymirinn dugði ekki til að starta bíl, 2,3l bens, hjá mér 1-2 dögum eftir síðustu notkun en vel innan dags.

    Fór í Pólar / gúmmívinnustofuna Skipholti og þeir mældu geyminn undir álagi og þá kom í ljós að hann var ónýtur.
    Geymar geta verið að sýna þokkalega hleðslu áður en þú startar en dáið þegar startálagið kemur á þá.

    Á Cherokeenum lenti ég í að hann tæmdi geyminn yfir nótt og var þar um að ræða ónýtar díóður í alternator (mjög algengt).

    Prófaðu að taka plúsinn af geyminum og athugaðu hvort hann hrökkvi í gang eftir tveggja daga stopp. Geri hann það er geymirinn allavega í lagi.

    Kveðja
    Atli





    22.11.2004 at 11:27 #509250
    Profile photo of Sigurður Árni Friðriksson
    Sigurður Árni Friðriksson
    Participant
    • Umræður: 5
    • Svör: 138

    Sæll

    Mæli með því að þú farir á einhvern geymasölustað, t.d. Rafgeymasalan í Hafnarfirði þeir mæla geymirinn ókeypis og þá kemur í ljós hvort að hann sé ónýtur eða ekki.

    Myndi telja það gáfulegra að byrja á því frekar en að tæma sýruna og skola og hella á hann aftur…

    Þú færð svar strax hvort að það sé í lagi með hann.

    Kv

    Brutal





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 1 through 3 (of 3 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.