This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Bjarki Logason 15 years ago.
-
Topic
-
Ég gafst upp í gær og ákvað að kíkja inn á hálendi og kanna hvort að ég fyndi einhvern snjó, eða smá ævintýri. Fór frá Reykjavík, inn á Þingvelli, þaðan yfir Haukadalsheiðina, þaðan sem leið liggur beint inn að Búrfelli, Landmannalaugar voru næstar, síðan upp að Setri um Gljúfurleit, þaðan upp á Hveravelli. Gistum þar um nóttina í skítköldum skálanum á Hveravöllum, -1 gráða um nóttina. í dag föstudag fórum við norðurfyrir Langjökul upp á Arnarvatnsheiði og síðan aftur til Reykjavíkur…
Af færðinni er það að frétta að það er enginn snjór sem neinu getur numið, skafl á stöku stað og smá bleyta…
Engin teljandi vandræði… því er nú verr og miður.
hehe
Já ég missti þolinmæðina varð að kanna þetta aðeins.
Gæti trúað því að það sé ástatt um fleiri eins og mér… Deyja úr óþolinmæði.
Já ég vil vetur…hehe
Varð að láta ykkur vita.
Kv
Steini
You must be logged in to reply to this topic.