This topic contains 3 replies, has 2 voices, and was last updated by Jón G. Bergsson 11 years, 1 month ago.
-
Topic
-
Jóhann Ingvi Stefánsson
Nú er komið að því. Félagar í Suðurlandsdeildinni eru hvattir til að koma með í ferð og bjóða með sér jeppafólki sem ekki er í deildinni ennþá. Hér fyrir neðan má lesa part úr fréttatilkynningu sem birtist í héraðsblöðum á Suðurlandi í þessari viku.Laugardaginn 28. September ætlar Suðurlandsdeildin að standa fyrir jeppaferð fyrir jeppaeigendur. Allir eru velkomnir með á sínum jeppa, hvort sem hann er óbreyttur eða breyttur. Lagt verður af stað kl. 9:00 frá Olís Arnbergi á Selfossi og komið til baka síðdegis sama dag. Keyrt verður til fjalla, ferðaáætlun fer svolítið eftir veðri og færð. Þessi ferð er án endurgjalds og allir ferðast á eigin ábyrgð. Fararstjórar verða reyndir jeppamenn á öflugum bílum og geta vonandi kennt óreyndum eitt og annað um jeppamennsku og ferðalög.
Þetta er upplagt tækifæri fyrir jeppaeigendur til að bjóða fjölskyldunni í jeppaferð. Ef vel tekst til er hugmyndin að stofna „Litlunefnd“ sem myndi svo standa fyrir jeppaferðum fyrir lítt eða óbreytta jeppa með reyndum fararstjórum. Brýnt er fyrir þátttakendum að akstur utan vega er ólöglegur og ferðast skal í sátt við náttúruna.
Vonast er til að þetta veki áhuga jeppaeigenda og að sem flestir komi með í ferðina. Þeir sem ætla að koma með er bent á að senda tölvupóst fyrir 27. sept. á f4x4sudur@gmail.com og gefa upp nafn og bílategund.
You must be logged in to reply to this topic.