This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Tryggvi R. Jónsson 13 years, 5 months ago.
-
Topic
-
Sælir félagar
Ég var að kíkja inn á Þjónustuvefinn hjá Skeljungi (http://www.skeljungur.is) sem við getum fengið aðgang að (minnir að ég hafi hringt til að fá lykilorðið) en þar er hægt að sjá yfirlit yfir reikninga og færslur á kortum (viðskipta- og staðgreiðslukortunum/lyklum). Í einhverju fikti þá ýtti ég á „Opna í Excel“ takka og fékk þá Excel skjal með frekar gagnlegum upplýsingum.
Ég fór s.s. í „Viðskiptakort“ (örugglega eins fyrir Staðgreiðslukort/lykill) og í „- Skýrsla“ valdi tímabil og sækja, þá fékk ég lista með dagsetningu, tíma o.fl. en þegar maður ýtir á „opna í Excel“ takkann fær maður Excel skjal þar sem fram kemur ásamt öllu hinu:
Þjónustuverð per lítra
Dæluverð per lítra
OG
Þitt verð
Dálkurinn Heildarafsláttur er reyndar með núlli en það er ágætt að sjá þarna hvað við erum að fá „aukalega“ frá verðinu sem er á dælinu í hvert skipti.Kveðja
Tryggvi
A-898
You must be logged in to reply to this topic.