This topic contains 2 replies, has 1 voice, and was last updated by Hrannar Örn Hauksson 15 years ago.
-
Topic
-
Jæja. Mig langar að athuga hvort þetta klingir einhverjum bjöllum hjá mönnum hér, er því miður sjálfur hálf þroskaskertur þegar þegar kemur að vélum. Málið er að ég fór með bílinn (’98 Pajero 2.5 diesel) í mengunarmælingu hjá Aðalskoðun í Hafnarfirði. Mengunarmælingin var vegna verkefnis sem vinur minn stendur í og kemur málinu í sjálfu sér lítið við. Í mælingunni þandi maðurinn sem framkvæmdi hana bílinn og lét hann standa í hvínandi botni í nokkurn tíma, ýtti á olíugjöfina með hendinni og virtist ekki skoða snúningsmælinn neitt sérstaklega. Allt í góðu svo sem með það nema bíllinn kom ekki vel út úr mælingunni (ég var ekki búinn að þenja hann neitt áður eða á leiðinni).
Svo er ég á leiðinni heim gef bílnum ákveðið inn (í gír) og í 2500 snúningum kemur nokkuð hátt hljóð sem svo dettur út aftur þegar ég fer niður fyrir 2500 snúninga. Hljóðið er líklega einhverskonar blásturshljóð, frekar há tíðnði, hélt fyst að þetta leiddi út í útvarpið. Ég stöðvaði svo bílinn og hljóðið heyrist ekki þegar ég þen bíllinn í hlutlausum, aðeins þegar það er áreynsla á mótorinn.
Veit einhver hvað þetta getur verið? Er túrbínan farin? Eða er þetta einhver slanga/leiðsla sem er farin í sundur? Ég get keyrt bílinn eins og áður og ef ég held mér undir 2500 snúningum myndi ég ekki vita af þessu.
Kveðja, Hrannar
You must be logged in to reply to this topic.