FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Skrauthúfur í Skógarhlíðinni

by Atli Eggertsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Skrauthúfur í Skógarhlíðinni

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson Samúel Þór Guðjónsson 15 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.04.2010 at 15:16 #212111
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant

    Vitið þið afhverju þarf tugi manna í Reykjavík til að stjórna gosum og flóðum út á landi?

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 14.04.2010 at 20:10 #690664
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Maður veltir fyrir sér hugarfarinu á bak við svona spurningu. En sennilega er svarið: Til þess að þeir sem aldrei gera mistök og allt geta, kunna og vita fari sér ekki að voða.





    14.04.2010 at 21:43 #690662
    Profile photo of Halldór V. Hreinsson
    Halldór V. Hreinsson
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 48

    Miðað við hvað maður hefur séð í dag þá hafa vinnubrögðin hjá þessum skrauthúfum verið fumlaus, algjörlega til fyrirmyndar.

    Í samhæfingarstöðinni koma saman aðilar alla viðbragðsaðila sem eiga hlut í máli, þar vinna almannavarnir, lögregla, flugstoðir, slökkvilið, neyðarlína, landhelgisgæsla, björgunarsveitir og fleiri hlið við hlið þannig að boðleiðir séu stuttar og ákvarðanatökur markvissar og komast örugglega réttar til skila.

    kv
    Dóri





    14.04.2010 at 23:21 #690666
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég myndi nú veðja á að það sé ekki galið að hafa samhæfingarstöð staðsetta þannig að hún sé einmitt [b:3d58cktj]ekki[/b:3d58cktj] inni á mögulegu hamfarasvæði. Þannig eru helst líkur á að búnaður og mannskapur lamist ekki þegar mest á reynir.

    Reykjavík er þannig staðsett að líkur á hamförum eru tiltölulega litlar, ásamt því að vera á fjölmennasta skika landsins, hvort sem téður mannfjöldi er nokkuð sem þarf að hafa hömlur á eða tiltækur í neyð.

    Ég lít nú á þetta innlegg Atla sem tilraun til að lífga þetta hálf-lamaða spjall aðeins við frekar en stórkostlega gagnrýni :-)

    kkv

    Grímur





    15.04.2010 at 00:31 #690668
    Profile photo of Hjörleifur Jóhannesson
    Hjörleifur Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 209

    [quote="Atli":2huuq4px]Vitið þið afhverju þarf tugi manna í Reykjavík til að stjórna gosum og flóðum út á landi?[/quote:2huuq4px]

    Ætli það þyrfti ekki meira en tugi manna, sama hvar þeir væru staddir, til að stjórna gosinu. Flóðið lætur ekkert sérlega vel að stjórn heldur. Ertu með ráð?





    15.04.2010 at 07:42 #690670
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Grimur hitti naglan á höfuðið hérna….

    [quote="grimur":bjwg53tr]Ég myndi nú veðja á að það sé ekki galið að hafa samhæfingarstöð staðsetta þannig að hún sé einmitt [b:bjwg53tr]ekki[/b:bjwg53tr] inni á mögulegu hamfarasvæði. [/quote:bjwg53tr]





    15.04.2010 at 09:21 #690672
    Profile photo of Einar Lárusson
    Einar Lárusson
    Member
    • Umræður: 57
    • Svör: 366

    Alltaf í boltanum





    15.04.2010 at 09:43 #690674
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    Væri ekki betra ef þetta fólk væri út á mörkinni með skóflu í hönd að reyna að bjarga málunum? t.d. að grafa í sundur vegi, banna akstur, banna flug, banna öskufall, moka ösku, ausa vatni og svoleiðis?





    15.04.2010 at 09:49 #690676
    Profile photo of Kristján Hagalín Guðjónsson
    Kristján Hagalín Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 168
    • Svör: 1298

    [quote="Atli":19zjlf64]Væri ekki betra ef þetta fólk væri út á mörkinni með skóflu í hönd að reyna að bjarga málunum? t.d. að grafa í sundur vegi, banna akstur, banna flug, banna öskufall, moka ösku, ausa vatni og svoleiðis?[/quote:19zjlf64]

    Öllu þessu er stjórnað í Skógarhlíðinni. Þar eru öll tæki til þess að lesa og vinna úr upplýsingum til þess að þessi úrræði sé framkvæmarleg.





    15.04.2010 at 11:02 #690678
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Góður Atli að reyna að lífa uppá þetta hérna, annars er farið að hvarfla að mér hvort við séum skyld ? ef ekki þá örugglega bæði með alltámótiöllumsyndrumið ;=
    kveðja Lella





    15.04.2010 at 11:51 #690680
    Profile photo of Þengill Ólafsson
    Þengill Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 48
    • Svör: 611

    Nákvæmlega svona þráður sem gerir þennan vef að því sem hann er. Þ.e.a.s hundleiðinlegur á köflum. Neikvæðni og leiðindi. Afhverju þarf alltaf að að vera ögra fólki.

    Atli setti þennan þráð inn örugglega með glott framan í sér til að sýna fjölskyldunni eða vinum hvað það er auðvelt að fá fólk til að rífast eða hvað auðvelt er að hneyksla.
    Lella gerir nákvæmlega það sama. Ég bara skil ekki svona. Afhverju er ekki bara hægt að láta eins og fullorðið fólk. Hætta að ögra fólki og hneyksla. Mér finnst þetta ekki vetvangurinn til þess.

    Kveðja
    Þengill





    15.04.2010 at 13:13 #690682
    Profile photo of Hjalti Steinþórsson
    Hjalti Steinþórsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 144

    Þetta er líka fín auglýsing að hafa svona þræði opna á vefnum. Ábyggilega mikið af fólki sem skráir sig í klúbbinn gagngert til að fá að taka þátt í svona frábærri umræðu.. Kunni betur við loforðið hjá Lellu þegar hún sagðist vera hætt að skrifa hér inn á vefinn og kannski hún geti fengið frænda sinn sem hefur allámóiöllumsyndrúmið til að hætta líka.. En það er bara mín skoðun
    kv. Hjalti





    21.04.2010 at 16:32 #690684
    Profile photo of Samúel Þór Guðjónsson
    Samúel Þór Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 92
    • Svör: 1985

    Ég legg til að við stofnum nefnd innan 4×4 sem heitir "nöldur og niðurrifsnefnd" og þar geta menn með jafn málefnalegar skoðanir og sumir hér inni eru með, setið í og spjallað saman, þeir fengu einnig sér spjall fyrir sína nefnd og gætu tjáð sig þar og kannske verið faldir umheiminum, svo þeir þurfi ekki endalaust að vera með þetta fyrir augunum. Það gæti jafnvel laðað að nýliða að fýlupúkarnir séu í einangrun og angri þá ekki.
    Þetta væri sjálfsagt eina nefndin innan 4×4 sem ekki sárvantaði meðlimi eða þyrfti að ýta fólki í nefndina…

    Ég vil taka það fram að ég, ætti sennilega greiðan aðgang inní þessa nefnd fyrir þennan tiltekna póst.

    Takk fyrir mig.
    Samúel Úlfr
    E-1851

    P.s. ég vil taka það fram að ég tek enga ábyrgð á því að þessi póstur særi blygðunarkennd einhvers. Ef einhver reynir að sanna annað mun ég vísa til bankaleyndar, nafnleyndar eða einhverrar annarrar leyndar. Einnig mun ég þvertaka fyrir það að segja mig úr hverri þeirri nefnd sem ég mun sitja í á gefnum tíma eftir útgáfu þessa pósts. Ég mun einnig þverneita fyrir að hafa skrifað þennan póst.





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

The topic ‘Skrauthúfur í Skógarhlíðinni’ is closed to new replies.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.