FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Skiptingar í econoline

by Ívar Örn Lárusson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Skiptingar í econoline

This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Ívar Örn Lárusson Ívar Örn Lárusson 18 years, 11 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 02.07.2006 at 18:54 #198190
    Profile photo of Ívar Örn Lárusson
    Ívar Örn Lárusson
    Participant

    Þá er ég enn og aftur á tímamótum með minn guðdómlega econoline.
    Nýi notaði converterinn sem ég setti í var ekki betri en svo að hann er að hrinja aftur.
    Og þá er spurning hvort ég lagi hann eða setji alveg aðra skiptingu í.
    Þá spyr ég:
    Hvaða skiptingar eru í boði (bæði bsk og ssk) og hvað hafa þær til síns ágætis.
    Þetta er á 7.3L diesel vél.

    Líka væri gott að vita hvernig ég þekki þær í sundur þar sem ég á eina 4þrepa tölvuskiptingu sem þarfnast upptektar en ég veit ekkert hvernig skipting það er.

    Takk takk

  • Creator
    Topic
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)
  • Author
    Replies
  • 03.07.2006 at 17:40 #555684
    Profile photo of Ívar Örn Lárusson
    Ívar Örn Lárusson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 509

    Er enginn sem getur lýst fyrir mér hvernig ég þekki skiptingarnar í sundur og hvað ég á að eltast við.





    03.07.2006 at 23:27 #555686
    Profile photo of Ingimundur Stefánsson
    Ingimundur Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 9
    • Svör: 92

    Sæll Ívar.
    Mér ímynda mér að það geti bara verið um tvær týpur að ræða, AOD skiptingu og E4OD skiptingu. Hvernig þú þekkir þær í sundur veit ég ekki, en sniðugt væri að taka mynd af henni og pönnu á henni, senda til ljónsstaðabræðra með fyrirspurn t.d. varðandi varahluti, og sjá hvað þeir segja.
    Hef verslað við þá og sendi þá mynd af pönnu til að vera viss um tegund og pönnudýpt.

    Reyndar á ég einhvers staðar luntu sem fjallar um skiptingar í Ford, en því miður sýnir hún ekki E4OD skiptingar sem eru að ´ég held í flest öllum stærri Econoline bílum frá 92 sem og stærri pickupum frá sama tíma.

    Varðandi skiptingar þá bendi ég á þráð sem ég stofnaði fyrir nokkru, þar var lagt til að ég spjallaði við sjálfskiptingaraðila í Kópavoginum, Inga einhvern. Hann ætti að geta aðstoðað þig með þetta, en þráðinn finnurðu með leit á f4x4.is

    Kveðja
    Lappi





    04.07.2006 at 02:27 #555688
    Profile photo of Ólafur Eiríksson
    Ólafur Eiríksson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 540

    Þegar Ford hóf dieselvæðinguna breytti hann bara gömlu C6 bensínvéla skiptingunni fyrir diesel. 6.9 L velin kom í Econoline og fl. bílum með hana aftaná, ég er ekki viss hvort að hún kom aftan á 7.3. Þetta er 3 gíra skipting sem er ekki tölvustýrð og fremur einföld. Hún er ekki með overdrive, ég man ekki hvort að hún var í boði með læsingu á konverter, líklega var hún það í restina.

    Arftaki hennar heitir eins og bent er á hér ofar E4OD og er tölvustýrð skipting með overdrive – sú skipting var allsráðandi í 7.3, og hún kom líka aftaná 7.3 powerstroke. A4OD er skipting úr minni bílum, og án þess að þora alveg að fullyrða það þá held ég að hún hafi aldrei verið í boði aftan á 6.9/7.3 diesel.

    Með öðrum orðum þá er þessi 4 gíra skipting sem þú ert með nærri örugglega E4OD. Ljónstaðabræður geta sagt þér ALLT sem þú kærir þig um að vita um þær skiptingar enda endurbyggt þær í hundraðavís, sem og konverterana – sem eru þekktir að því að þurfa sitt viðhald í þessum bílum. Þeir eiga allt í bæði skiptingarnar og konverterana og hafa alvöru tæki til að endurbyggja þá og hafa gert það með góðum árangri í rúman áratug.
    ……….

    Ég veit ekki til að Econoline hafi verið boðinn beinskiptur með diesel, ef svo er þá er það afar sjaldgæft. Upptýningar (pickupar) voru hinsvegar með ZF álkössum, eitthvað var um að strangtrúaðir settu svoleiðis í Econoline og töldu sig finna meira afl og minni eyðslu við þá aðgerð. Um það má vafalaust lengi deila eins og gengur. Hinsvegar er það umtalsverð aðgerð að breyta úr sjálfskiptingu og yfir í beinskipt, þar sem þú þarf kúplingshús, sennilega dual-mass kasthjól, kúplinguna sjálfa, líklega breytingu á millikassabita, annað millistykki fyrir millikassann, breytingu á drifsköftum vegna lengdar, ásamt kúplingspedalamixi og þvílíku í bílinn. Uppgerð á sjálfskiptingu/konverter er mun minna vesen og örugglega ódýrara.

    Ps
    Google leitarvélarvélin sýnir þér E4OD skiptingu ef þú bara slærð inn "E4OD" og velur myndaleit.

    Pps
    Ljónstaðabræður reka fyrirtækið Jeppasmiðjuna, og síminn hjá þeim er 4822858, þeir eru mennirnir sem þú þarf að spjalla við.

    Kv
    Óli





    04.07.2006 at 19:09 #555690
    Profile photo of Ívar Örn Lárusson
    Ívar Örn Lárusson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 509

    Þetta var mikil hjálp.

    Takk fyrir.

    (ég er semsagt með E4OD skiptingu)





  • Author
    Replies
Viewing 4 replies - 1 through 4 (of 4 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.