FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Skemmtileg bilun

by Atli Eggertsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Skemmtileg bilun

This topic contains 32 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 15 years ago.

  • Creator
    Topic
  • 16.05.2010 at 00:15 #212744
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant

    Ég má til með að deila með ykkur skemmtilegri bilun í Toyotu og að sama skapi stofna til spurningarkeppni í anda MHN.

    Lýsing:
    Við fjölskyldan fórum í bíltúr í dag og vorum að þeysast eftir þjóðvegi eitt, konan að keyra á ca. 85-90 með krúskontorlið á og ég hálf sófandi í farþegasætinu.
    Allt í einu heyri ég þennan svaka véla dyn og mér verður litið leiftur snöggt á mælaborðið og sé þá að gamla toyotan er kominn á nærri 200km hraða á klst. Konan stígur um leið á bremsurnar og þar með fer krúskontrolið af.
    Við stöðvum bifreiðina og ég stíg út og lít undir toyotuna og sé að drifskaptið snýst á fullu, enda bíllinn enn í dræf enn bíllinn graf-kjurr.
    Konan setur í park með hamagang og látum því drifskaptið er jú enn á fullri ferð.

    Fyrsta bilana greining og tjekk:
    Drifskaptið snýst enn bíllinn ekki.
    Drifið er ískallt að koma við, eins og súkkulaði ís frá emmess ís.
    Afturhjólin eru á sínum stað og virðast ekki hafa dregist út.
    Rifjað upp hvenær það var skipt um drif síðast: ekki verið gert í sögu bílsins, enda 1:4,88 toyotu eðal dót.
    Rifjað upp hvenær það var skipt um olíu síðast: ekki munað
    Rifjað upp hvort það hafi verið óhljóð í bílnum: nei, amk. ekki heyrst fyrir hávaðanum í krökkunum.
    Drifskaftið ótrúlega fast í báða enda.
    Reynt að keyra af stað aftur: ökutækið hreifist ekki úr stað, spólar þó ekki, drifskaftið snýst og engin hljóð fyrir utan undurfagurt dísel-glamrr.

    Eftir þetta tjekk, var sett í framdrifið og ekið heim.

    Getrauninn hljómar svona:
    Hvaða bilun kom upp í toyotu?

    Svör verða byrt þegar niðurstaða er komin í málið.

    Kv. Atli E.

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 32 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 16.05.2010 at 02:52 #693754
    Profile photo of Benedikt Sigurgeirsson
    Benedikt Sigurgeirsson
    Participant
    • Umræður: 171
    • Svör: 3595

    Brotin öxull.





    16.05.2010 at 08:22 #693756
    Profile photo of Bjarki Logason
    Bjarki Logason
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 775

    Pinion brotinn :-)
    Með brotkveðjum Bjarki





    16.05.2010 at 09:08 #693758
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Þetta er alveg augljóst, kamburinn hefur losnað af keisingunni, semsagt allir boltarnir farið úr.

    Bíð spenntur eftir niðurstöðu.

    Kv. Smári.





    16.05.2010 at 10:32 #693760
    Profile photo of Ingi Björnsson
    Ingi Björnsson
    Participant
    • Umræður: 73
    • Svör: 1022

    Bjórinn kláraðist og neitaði þá longrunner að halda áfram.





    16.05.2010 at 12:16 #693762
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Konan hefur affelgað á báðum á malbikinu.





    16.05.2010 at 12:47 #693764
    Profile photo of Andri Ægisson
    Andri Ægisson
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 155

    þú hlítur að hafa verið á patrolnum frá tengdó því að toyota bilar aldrei, hefur bara verið eitthvað utan við þig eftir svefinn og haldið að þú værir á toyotunni…..





    16.05.2010 at 14:44 #693766
    Profile photo of Tómas R Jónasson
    Tómas R Jónasson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 154

    Þú fékkst martröð!,en ert ekki enn vaknaður!! :{}





    16.05.2010 at 15:07 #693768
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Mismunadrifsboltarnir klipptir….





    16.05.2010 at 16:19 #693770
    Profile photo of Friðrik Hreinsson
    Friðrik Hreinsson
    Participant
    • Umræður: 122
    • Svör: 858

    og hvað er svarið :))





    16.05.2010 at 16:29 #693772
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    ég hefði getað brotið loku að aftan, en ég held þú sért bara með original hálffljótandi dótið…. þessvegna gætiru hafa brotið öxul rétt við drifið s.s. legan er stillt á sínum stað. nema þú hafir fyrir einhverja geðveilu villst með patrol felgu bolta í nafið og brotið þá alla í kömbunum…





    16.05.2010 at 20:43 #693774
    Profile photo of Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Halldór Gunnlaugur Hauksson
    Participant
    • Umræður: 28
    • Svör: 553

    Þetta er skemmtileg gáta :-)
    Ólíklegt að pinion sé brotin ef hægt var að aka heim án óhljóða og laus kambur eða brotnir boltar í kamb myndu líka orsaka læti…allavega mjög fljótt. Hallast helst að brotnum mismunadrifsbolta eða öxull brotinn inn við drif.
    Væri kannski hægt að greina þetta betur ef maður vissi hvort læsing er í drifinu og þá hvernig.

    kv,
    HG





    16.05.2010 at 21:48 #693776
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    Vísbending 1. eins og hjá MHN.

    Nei ég er ekki búinn að rífa drifið enn þá, enn það verður forvitnilegt að sjá hvað þetta er.

    Nei, það er ekki læsing að aftan hjá mér, bara þetta LSD-dót.

    Nei Andri, ég fór út í morgun og gá hvort ég hefði ekki örugglega verið á Toyota. Hins vegar verð ég sennilega að fá lánaðan Patrol svo konan komi krökkunum í leikskóla á morgun.

    Setti aftur í gang í morgun og í dræf. Það komu engin hljóð, enn svo virtist sem hann tæki lítillega á.
    Spurning hvort LSD-dótið væri að gera eitthvað smá gang og þar með væri e.t.v. kenningin um brotinn öxul líkleg.
    Svo er líka hugsanlegt að hann sé búinn að hreinsa rillurnar af öxlinum.

    Mér finnst líka kenningin um bjórleysi, affelgun á malbiki og martröð ekki ósennileg.

    Kv. Atli E.





    17.05.2010 at 14:14 #693778
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    þegar þú minnist á að taka rillurnar af öxlunum…. er sjens að þú sért að nota öxla úr gömlu mjórri hásingunni, mig minnir að þeir nái rétt inní drifið, en séu svo tæpir að það sé varla þorandi að nota þá í ´nýrri hásingunum.

    þá er ég að meina að í eldri bílunum sem komu original með framhásingu voru afturhásingarnar svipað breiðar og frammhásingin, en í nýrri bílunum er afturhásingin svipað breið og klafinn.

    og öxlarnir þessvegna svoldið stittri….





    17.05.2010 at 19:44 #693780
    Profile photo of Magnús Hallur Norðdahl
    Magnús Hallur Norðdahl
    Participant
    • Umræður: 713
    • Svör: 2671

    Það er of auðvelt að svara þessu svo að ég sleppi því . Þú verður að gera betur

    kv,,,, MHN





    20.05.2010 at 00:06 #693782
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er nógu spennandi til þess að maður tékkar daglega á þræðinum til að sjá hvort eitthvað er að skýrast…. :-)





    20.05.2010 at 09:38 #693784
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    Já Atli hættu að þerra tárin og farðu að gera við… hvað er bilað?





    20.05.2010 at 19:51 #693786
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    hehe… aðeins að létta á spennunni..

    Vísbending nr.2 eða 3, eins og MHN.

    Þar sem ég hef ekki haft neinn tíma fyrir bilanir þá fékk ég bara Patrol lánaðann hjá tengdó og lítið búinn að hugsa um gamlar Toyotur.

    Ég gat þó ekki setið á mér um daginn að hlaupa út og athuga hvort það gætu hugasanlega verið að rillurnar hefðu hreinsast innan úr jókanum og hvort það væri bara nóg að skipta um hann, því mér fanst bilunarlýsing hljóma einhvern veginn þannig.

    Því miður var jókinn í fínu lagi, þannig að ég tappaði þá olíunni af.
    Það kom í ljós að hún gat varla talist drykkjar-hæf, og það sem meira var að það heyrðist "klæng-klæng" þegar olían streymdi ofan í jarnfötuna.

    Þannig að maður spyr sig, hvað er þá að?

    Ég hef ekki skoðað málið frekar, enn ég stefni að því að henda í bílinn á laugardags-morgun til bráðabyrgða 5,29 hlutfalli sem ég fæ lánað.

    Kv. Atli E.





    21.05.2010 at 00:08 #693788
    Profile photo of Haukur Gunnarsson
    Haukur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 67

    Rétta svarið er:
    Þetta er gabb.

    Í fyrsta lagi: Harla ólíklegt að Toyota bili,
    í öðru lagi: Alvöru sauðfjárbændur fara ekki í bíltúr á þessum árstíma,

    Haukur





    21.05.2010 at 00:39 #693790
    Profile photo of Róbert Benediktsson
    Róbert Benediktsson
    Member
    • Umræður: 138
    • Svör: 896

    Bolltarnir sem halda kambinum dotnir úr eða slitnir… eða mismunadrifið brotið..?





    21.05.2010 at 07:51 #693792
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Laugardagur er sko síðasti séns, annars kem ég og ríf þetta sjálfur, spenningurinn er alveg að fara með mig.

    Kv. Smári.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 32 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.