Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Skattmann rumskar
This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Olgeir Engilbertsson 16 years, 5 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.06.2008 at 18:04 #202509
Var ekki á loforðalista D listans að lækka álögur á bifreiðaeigendur? Mér sýnist að þeir ætli sér hið gagnstæða miðað við þessar nýju tillögur sem eru í farvatninu Sjá þessa síðu
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
03.06.2008 at 18:29 #623946
Á næstu misserum mun Sjálfstæðisflokkurinn leggja megináherslu á eftirfarandi:
Að lækka skatta einstaklinga enn frekar. Skattalegir hvatar ættu að hvetja einstaklinga og fjölskyldur til sparnaðar en ekki skuldsetningar.
Að fella niður almenna tolla og lækka enn frekar vörugjöld á innflutningi en vinna að lækkun tolla á landbúnaðarvörum í samræmi við alþjóðasamþykktir.
Að fella niður stimpilgjöld.
Að lækka álögur á bifreiðaeigendur.
Að afnema lágmarksútsvar sveitarfélaga enda ætti sveitarfélögum að vera í sjálfsvald sett að lækka útsvar eftir því sem aðstæður gefa tilefni til hverju sinni.
Að lækka skatta fyrirtækja og aðlaga skattkerfið þannig að það verði jafngott eða betra en það sem gerist hjá samkeppnisþjóðum okkar.
Að halda áfram að einfalda skattkerfið og leggja af skatta og gjöld sem skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja. Nauðsynlegt er að endurskoða lög um ýmsa smáskatta og gjöld sem hugsanlega áttu rétt á sér áður en eru nú tímaskekkja.
Að tryggja góð rekstrarskilyrði fyrirtækja með því byggja enn frekar upp umgjörð atvinnulífsins með skilvirkum og almennum reglum, og lágmarka þannig óþörf opinber afskipti af atvinnulífinu.
Að afnema skatta af hagnaði fyrirtækja vegna sölu hlutabréfa.
Að styrkja samkeppnisstöðu landsins um fjárfestingar í atvinnulífinu. Þannig má stuðla að auknum áhuga innlendra og erlendra aðila á því að fjárfesta hér á landi.
Að koma á valfrelsi einstaklinga um vörsluaðila lögbundins lífeyrissparnaðar.
Að leggja áfram áherslu á að flytja verkefni úr höndum ríkis og sveitarfélaga til einkaaðila til að draga úr umsvifum hins opinbera og auka þar með samkeppni á markaðnum.
Að starfs- og lagaumhverfi stofnana og fyrirtækja, einkum uppgjörsaðferðum þeirra, sem enn eru í opinberum rekstri verði breytt til samræmis við umhverfi einkageirans og þannig stuðlað að aukinni hagkvæmni í rekstri þeirra. Þá verði reglum um virðisaukaskatt breytt þannig að opinberir aðilar fái hann endurgreiddan af allri aðkeyptri þjónustu og eigi þar með auðveldara með að útvista verkefnum.
Að skapa skilyrði til varanlegs hagvaxtar, draga úr ríkisútgjöldum og styrkja stöðu ríkissjóðs.
Að tryggja skynsamlega og hagkvæma nýtingu á náttúruauðlindum landsins.
03.06.2008 at 18:30 #623948Á næstu misserum mun Sjálfstæðisflokkurinn leggja megináherslu á eftirfarandi:
Ályktun Landsfundar Sjálfstæðisflokksins ég vill benda ykkur á sérstaklega á lið 4.
Kv OfsiAð lækka skatta einstaklinga enn frekar. Skattalegir hvatar ættu að hvetja einstaklinga og fjölskyldur til sparnaðar en ekki skuldsetningar.
Að fella niður almenna tolla og lækka enn frekar vörugjöld á innflutningi en vinna að lækkun tolla á landbúnaðarvörum í samræmi við alþjóðasamþykktir.
Að fella niður stimpilgjöld.
Að lækka álögur á bifreiðaeigendur.
Að afnema lágmarksútsvar sveitarfélaga enda ætti sveitarfélögum að vera í sjálfsvald sett að lækka útsvar eftir því sem aðstæður gefa tilefni til hverju sinni.
Að lækka skatta fyrirtækja og aðlaga skattkerfið þannig að það verði jafngott eða betra en það sem gerist hjá samkeppnisþjóðum okkar.
Að halda áfram að einfalda skattkerfið og leggja af skatta og gjöld sem skekkja samkeppnisstöðu fyrirtækja. Nauðsynlegt er að endurskoða lög um ýmsa smáskatta og gjöld sem hugsanlega áttu rétt á sér áður en eru nú tímaskekkja.
Að tryggja góð rekstrarskilyrði fyrirtækja með því byggja enn frekar upp umgjörð atvinnulífsins með skilvirkum og almennum reglum, og lágmarka þannig óþörf opinber afskipti af atvinnulífinu.
Að afnema skatta af hagnaði fyrirtækja vegna sölu hlutabréfa.
Að styrkja samkeppnisstöðu landsins um fjárfestingar í atvinnulífinu. Þannig má stuðla að auknum áhuga innlendra og erlendra aðila á því að fjárfesta hér á landi.
Að koma á valfrelsi einstaklinga um vörsluaðila lögbundins lífeyrissparnaðar.
Að leggja áfram áherslu á að flytja verkefni úr höndum ríkis og sveitarfélaga til einkaaðila til að draga úr umsvifum hins opinbera og auka þar með samkeppni á markaðnum.
Að starfs- og lagaumhverfi stofnana og fyrirtækja, einkum uppgjörsaðferðum þeirra, sem enn eru í opinberum rekstri verði breytt til samræmis við umhverfi einkageirans og þannig stuðlað að aukinni hagkvæmni í rekstri þeirra. Þá verði reglum um virðisaukaskatt breytt þannig að opinberir aðilar fái hann endurgreiddan af allri aðkeyptri þjónustu og eigi þar með auðveldara með að útvista verkefnum.
Að skapa skilyrði til varanlegs hagvaxtar, draga úr ríkisútgjöldum og styrkja stöðu ríkissjóðs.
Að tryggja skynsamlega og hagkvæma nýtingu á náttúruauðlindum landsins.
03.06.2008 at 18:31 #623950sennilega orðið svona skjálfhentur á þessum stefnumótalista x-d
03.06.2008 at 19:49 #623952Nefnd skipuð af fjármálaráðherra til að endurskoða skattlagningu á bifreiðar og ökutæki almennings kynnti skýrslu sína í gær án þess að ráðuneytið sæi ástæðu til að boða Félag íslenskra bifreiðaeigenda til kynningarfundarins. Hugmyndir nefndarinnar, eða starfshópsins eins og nefndir á vegum ríkis og ráðuneyta kallast þegar nefndarmenn fá greitt fyrir störf sín, fela í sér grundvallarbreytingu á skattlagningu bíla og ökutækja.
a) Í stað vörugjalda sem lagt er á bíla við innflutning kemur stofngjald sem kallast losunargjald. Upphæð gjaldsins á að ráðast af því hversu mikið koltvíildi bílarnir losa pr. ekinn kílómetra. Af bílum sem losa mikið koltvíildi þarf að greiða hátt stofngjald, af þeim sem losa lítið verður stofngjaldið lægra.
b) Í öðru lagi verður hinum árlegu bifreiðagjöldunum breytt og þau lögð á bíla, einnig eftir skráðri CO2 losun bíla pr. kílómetra. (mikil losun – hátt gjald, lítil losun – lágt gjald) Eftir breytinguna kallast bifreiðagjöldin árgjald.
c) Nýr eldsneytisskattur – kolefnisgjald verður lagt á jarðefnaeldsneyti fyrir bíla. Upphæð þessa skatts á samkvæmt hugmyndum nefndarinnar að ráðast að nokkru af markaðsverði á kolefniskvóta í milliríkjaviðskiptum og að nokkru af peningaþörf ríkissjóðs. Miðað við núverandi ástand myndi þetta gjald með virðisaukaskatti nema sjö krónum á bensínlítrann og átta krónum í dísilolíulítrann.
Af þessu má ljóst vera að í tillögunum eru fólgnar grundvallarbreytingar á skattlagningu bíla landsmanna. Ef þær verða að veruleika í meginatriðum um næstu áramót eins og mun vera hugmynd einhverra innan stjórnkerfisins, þá verður gríðarleg röskun og eignatilfærsla óhjákvæmilegur fylgifiskur breytinganna. Í fréttatilkynningu nefndarinnar kemur fram með beinum hætti að breytingunni er fyrst og síðast beint gegn almenningi og farartækjaeign hans og -notkun, því að engin gjöld losunargjöld, árgjöld og kolefnisskattar verða lögð á flugvélar og skip, og ekkert er heldur minnst á þungaiðnaðinn. Það hlýtur að teljast nokkuð sérkennilegt ef markmið breytinganna er í raun og veru það sem sagt er að það sé – að draga sem mest úr kolefnislosun.
Í fréttatilkynningu nefndarinnar segir að meðalstórir bílar með meðallosun eigi að koma svipað út úr breytingunum og nú, bílar með litla losun betur og bílar með mikla losun verr. Gert ráð fyrir því að ríkissjóður tapi um 1,7 milljörðum króna á breytingunni sem verður á vöru- og bifreiðagjöldunum sjálfum. Það tap muni hins vegar vinnast upp í álagningu kolefnisgjaldsins á ökutækjaeldsneytið þannig að í það heila tekið tapi skattmann ekki neinu.
Vegna hins ofurháa og hækkandi olíuverðs á heimsmarkaði um þessar mundir og efnahagskreppu á Íslandi hlýtur það að vera spurning hversu gæfulegt það er að fara út í svo róttækar breytingar sem hér eru boðaðar. Hvaða áhrif munu þær hafa á atvinnuvegina, lífskjör almennings og afkomu mikilvægra atvinnugreina eins og ferðaþjónustunnar? Hafa þau áhrif verið vegin inn í hugmyndirnar yfirleitt?
Nú er orðið ljóst að mesta breyting sem orðið hefur í rúmlega aldar sögu bílsins í heiminum er að eiga sér stað. Allir helstu bílaframleiðendur Evrópu eru um þessar mundir að boða miklu sparneytnari bíla en hingað til hafa þekkst og með tilkomu nýrra rafhlaða er rafbíllinn að verða samkeppnishæfur við hefðbundna bensín- og dísilbíla. Strax á næsta ári kemur t.d. lúxusbíll frá Mercedes Benz á heimsmarkað. Bíllinn gengur fyrir rafmagni fyrst og fremst en í honum er ljósavél sem gengur fyrir jarðefnaeldsneyti. Eyðsla þessa bíls er sáralítil og aðeins brot af því sem samskonar bílar hafa hingað til eytt af jarðefnaeldsneyti. Aðrir bílaframleiðendur hafa boðað svipaða bíla á allra næstu árum þannig að breytingin yfir í miklu umhverfismildari bíla er þegar komin á fullt og sú þróun verður ekki stöðvuð. Stórlega má draga í efa að breyting sú sem fólgin er í tillögum nefndarinnar verði því til nokkur gagns yfirleitt, heldur þvert á móti.
Athyglisvert er að í þessari 111 blaðsíðna skýrslu er aðeins um einu prósenti hennar varið í það að fjalla um tækniframfarir og tæknibreytingar sem fyrirsjáanlegar eru í bílaiðnaðinum og mögulegar breytingar á íslenska fólksbílaflotanum sem þær hafa líklega í för með sér.
Þá er það einnig athyglisvert að nefndin leggur ekki til neinar kerfisbreytingar á skattaumhverfi atvinnubíla, ekki síst þungaflutningabíla. Eina breytingin sem þar er að finna er að kolefnisgjaldið bætist við eldsneytisverðið. Áður hefur verið minnst á að flugvélar og skip og þungaiðnaðurinn (áliðnaðurinn) skulu verða undanþegin kolefnisgjaldi á eldsneyti. Hvers vegna?
03.06.2008 at 21:16 #623954"Áður hefur verið minnst á að flugvélar og skip og þungaiðnaðurinn (áliðnaðurinn) skulu verða undanþegin kolefnisgjaldi á eldsneyti. Hvers vegna?"
Einfalt mál, ef það er potað í þessa risa með hárbeittu skattprikinu þá fara þeir bara smátt og smátt úr landi og þá tapar skattmann stórum upphæðum.
04.06.2008 at 13:25 #623956Mér líst heldur illa á þetta nýja mengunargjald þar sem ég efast mjög um að þau gjöld sem fyrir eru verði afnumin. Það hefur yfirleitt gengið illa að fella niður "tímabundin " gjöld og ég trúi að svo verði með þetta. Þetta á eftir að bitna hart á fólki í hinum dreyfðu byggðum sem eðli málsins vegna þurfa oft á stærri bílum að halda og geta ekki hoppað uppí strætó eða hjólað langar leiðir milli staða. Ég er nýbúinn að kaupa lítinn sparneytinn dísiljeppa og græði því varla mikið á niðurfellingu aðflutningsgjalda nýrra bíla á næstunni. Á meðan helmingur þjóðarinnar ætlar til útlanda á þessu ári sé ég ekki að mikið sé verið að hugsa um LOSUN þar sem 4 manna fjölskylda sem flýgur t.d. til Kaupmannahafnar er að eyða um 640 lítrum af eldsneyti fram og til baka og um tvöfalt meira til Kanarí. Farþegaflugvélar eru að fara með frá 38 til 42 lítra af eldsneyti á 1000 km. pr. farþega. Þetta sá ég í blaði í flugvél 2002 . Ég held að það verði langt í að landsbyggðarfólk geti nálgast einhverja nýja orkugjafa á bílana sína. Kannski er ég bara einhver svartsýnispúki en það verður þá að hafa það. Kv. Olgeir
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.