Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Skálaskrár
This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Anonymous 17 years ago.
-
CreatorTopic
-
11.11.2007 at 11:12 #201148
Sælir félagar,
hvar á netinu finn ég opna skrá yfir hnit helstu fjallaskála, og þá gjarnan með einhverri lýsingu á þeim?
Ingi -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
11.11.2007 at 11:40 #602798
Veit ekki um skrá á netinu, en í bókunum hans Ofsa er skálaskrá.
Kv – Skúli
11.11.2007 at 11:46 #602800Á þessum linki[url=http://www.nat.is/Fjallaskalar/skalar_halendid_kort.htm:ohcd5ovp][b:ohcd5ovp] hér [/b:ohcd5ovp][/url:ohcd5ovp],en þarna má finna upplýsingar um hvern skála fyrir sig,GPS staðsetningu og símanúmer.
Kv-Dolli.
11.11.2007 at 11:48 #602802Sæll Ingi
Prófaðu þetta hér
http://www.haf.is/index.php?option=com_ … &Itemid=78[url=http://www.haf.is/index.php?option=com_content&task=blogsection&id=18&Itemid=78:1zf5xtob][b:1zf5xtob]skálaskrá[/b:1zf5xtob][/url:1zf5xtob]
kv. stef
11.11.2007 at 11:49 #602804Á GPS disknum sem Sverrir Kr. Bjarnason gaf út er skálaskrá. kv Steini
11.11.2007 at 11:57 #602806Takk fyrir þetta félagar,
fann einmitt skálann sem ég leitaði að, Kirkjuból í Fjallkirkju. Veit einhver um ástand skálans?
Skrá yfir skála til útleigu/gistingar svo og neyðarskýli fyrir ferðamenn á hvorki að vera leyndarmál né söluvara heldur aðgengileg á vef 4×4.
Ingi
11.11.2007 at 12:24 #602808Það má finna einhverjar upplýsingar um neyðarskýli [url=http://www.landsbjorg.is/Nskyli.nsf/$$ViewTemplate+for+(webFlokkad)?OpenPage:vp8iyyxi][b:vp8iyyxi]hér[/b:vp8iyyxi][/url:vp8iyyxi]
Kv Dolli.
11.11.2007 at 13:06 #602810Hver sér um gistingar í Setrinu?
11.11.2007 at 13:20 #602812Skálinn á fjallkirkju er lítill en á að vera í fínu standi. Hann er nákvæmlega eins og gamli Esjufjallaskálinn var. Hann er óupphitaður og ekki með neinum hitunargræjum ef ég man rétt (er eiginlega of lítill fyrir svoleiðiðs lúxus).
Skálinn er í eigu Jöklarannsóknarfélagsins.
[url=http://www.jorfi.is/:2e8fo9us]http://www.jorfi.is[/url:2e8fo9us]
[img:2e8fo9us]http://www.jorfi.is/myndir/fjallk-s.gif[/img:2e8fo9us]Gott ef þessi skáli er ekki eins og skálinn í Goðahnjúkum og efri Kverkfjallaskálinn.
11.11.2007 at 13:24 #602814JÖRFI á og rekur Kirkjuból. Seinast þegar ég kom í hann var hann ekki neitt sérstaklega vistlegur, en það má alveg gista þar, en eitthvað var lítið af kyndingartækjum þarna. Eins versnar aðkoman að honum með hverju ári, því Kirkjujökull er að þynnast og brekkan upp á fjallkirkjuna verður verri og verri með hverju ári.
Góðar stundir
11.11.2007 at 14:56 #602816Skálanefnd 4×4 sér um setrið sjá undir nefndir.
á old.f4x4.is
https://old.f4x4.is/new/committies/defau … skalanefnd
Stjórn skálanefndar
Magnús TómassonKári Þórisson, formaður
Daniel Hartmans
Sveinbjörn Ingi Þorkelsso
Hermann Þór Jónsson
kv
Agnes Karen Sig
11.11.2007 at 22:24 #602818Úff Hlynur. Ég hef svo sem lengi vitað að ofur-patti væri öflugur, en ég gerði mér ekki grein fyrir að hann væri svona öflugur.
Fjallkirkjan er nefnilega klettastapinn sem sést í bakgrunninum á myndinni hér að ofan. Veit ekki til þess að neinn hafi ekið upp þar upp enn.Brekkan upp að skálanum fer hinsvegar versnandi ár frá ári. Þá má einnig geta þess að skálinn stendur aðeins nokkra metra frá fjallsbrún einni mikilli (ljósmyndarinn stendur sennilega á brúninni) og þarf því aðgæslu ef maður er þarna á ferð í vondu veðri. Fyrir um 20-30 árum eða svo varð þarna slys þegar hópur vélsleðamanna keyrði þarna framaf. Ótrúlegt en satt þá sluppu þeir með nánast bara með skrekkinn, og eitt eða tvö brotin bein eftir flugferð þá. Eftir það var leiðin frá Kirkjujöklinum (frá brekkunni síversnandi) og að skálanum vörðuð og stikuð.
kv
Rúnar.
Endilega leiðréttið mig ef ég er að fara með fleipur.
12.11.2007 at 09:23 #602820Eftir því sem ég best veit hefur Jöklarannsóknarfélagið gefið skálann við Fjallkirkju frá sér í sumar og Ferðafélag Íslands á hann núna.
13.11.2007 at 11:18 #602822
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Það er misskilningur að Fjallkirkjuskálinn sé kominn úr eigu og umsjá Jöklarannsóknafélagsins. Engar umræður hafa farið fram um að færa hann til Ferðafélagsins.
Magnús Tumi Guðmundsson, form. JÖRFÍ
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.