FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Skaft af drullutjakk fannst

by Benedikt Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Skaft af drullutjakk fannst

This topic contains 82 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir Helena Sigurbergsdóttir 19 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 16.05.2005 at 23:54 #195948
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant

    Ég fann skaft af Drullutjakk á Jökulheimaleið – skammt frá Drekavatni.

    Ef einhver saknar svoleiðis þá er síminn minn 898 6561

    Benni

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 82 total)
← 1 … 3 4 5 →
  • Author
    Replies
  • 22.05.2005 at 13:28 #522934
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Þessar tölur er ég tilbúinn að samþykkja, en það auðveldar okkur aðeins framkvæmdina á Hvannadalshnjúk að í bæklingi sem ég hef hér undir höndum frá Guinness sjálfum er gefinn séns á bilinu 5-8°. Verði Lella og Soffía ráðnar til að skenka drukkinn þurfa þær að lesa þennan bækling spjaldana á mili því þarna er greint hvernig rétt sé skenkt Guinnessglas lítur út og hvernig þetta sé framkvæmt. Gæta þarf að því að froðan á að vera 14-21 mm. en á alltof mörg öldurhús klikka á þessu og láta mann hafa glas með froðu langt undir þessum mörkum. Þá verður drukkurinn flatur og lítt spennandi.

    Kv – Skúli





    22.05.2005 at 13:34 #522936
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    …að fólki er einfaldlega ekki kennt að servera þetta á öldurhúsum borgarinnar. Auk þess hefur maður fengið þetta gallsúrt þar sem ekki má servera þetta af kútum sem hafa verið opnir í meira en 5 til 6 daga.
    Hef marg oft lent í því að kenna fólki að servera þetta þar sem ég hef verslað þennan eðalmjöð.





    22.05.2005 at 13:35 #522938
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    þetta er nú að verða algjört bull, afhverju drekkið þið ekki bara þennan vonda mjöð? þarf virkilega allar þessar seremoníur í kringum þetta? Það er mikið auðveldara að drekka venjulegan bjór hann þarf bara að vera kaldur, þarf hvorki að mæla froðuna eða hitastigið !!!!!!!!!!!!!!
    En þar sem tommustokkurinn fer að verða staðalbúnaður í hverjum jeppa er hægt að dunda sér við að mæla froðu á kvöldin
    og Skúli ég læri ekki á neinar sérþarfir í kringum þetta sull ef þið getið ekki drukkið þetta þá þá þá þá getið þið bara sett í glösin sjálf/ir
    SanMiguel-kveðjur
    Lella





    22.05.2005 at 16:21 #522940
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Manna heilust Lella mín bara opna drekka og njóta = visky+Heineken
    Engar verkfæratöskur með til að mæla froðu hita magn eða gráður
    Kv Klakinn





    22.05.2005 at 22:40 #522942
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    Lella, þú hefur bara greinilega ekki kynnst töfrum mjaðarins. Það er einfaldlega ekkert betra en að súpa fyrsta sopann af vel sörveruðum Guinness með 21 mm froðu. Mundu bara að hafa fyrsta sopann stóran, best þannig :-)
    Þakka þér fyrir að sanna mál mitt Hrafnkell og þú hefur svo rétt fyrir þér með skenkhæfileika landans. Regular draft er eina leiðin til að drekka Guinness að MÍNU mati, þ.e. við 6°C. Extra cold útgáfan er bara fyrir lagerþyrsta englendinga 😉
    Guinness ferð á Hvannadalshjúk gæti heldur betur slegið í gegn… Man einhver eftir Porche á Skjaldbreið ???
    kv
    ABinn
    p.s. Hrafnkell, hefur þú prófað Guinness í dós? Hélt að hann yrði algjört piss en kemur á óvart. Honum á að sturta beint ofan í glasið eins hratt og hægt er en það er kúla inn í dósinni sem tryggir að hann freyði. Algjör snilld :-)





    22.05.2005 at 22:54 #522944
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Bara hafa hann kaldann og hrista hann úr dósinni í glasið. Kemur ótrúlega á óvart hvað hann er góður þannig. Læt stundum eftir mér að kaupa kassa af Guinness í dós bara til að njóta, enda er maður ekki með þessa menningu hér á landsbyggðinni.

    [b:2q5uag39]Borgarfjarðarmóri[/b:2q5uag39] sem líkar að þurfa aðeins að hafa fyrir hlutunum og njóta þeirra enn meira fyrir vikið.





    23.05.2005 at 00:54 #522946
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Þetta er að verða meira skaftið hvernig væri tjakkurin allur ????
    Klakinn





    23.05.2005 at 07:51 #522948
    Profile photo of Bergþór Júlíusson
    Bergþór Júlíusson
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 761

    Þess má geta að það var haldinn fundur hjá guinnesfélaginu ekki fyrir svo löngu, þá voru þeir kallaðir áframfélagið en það lagðist einhvað illa í menn þetta nafn og einnig stungu þeir upp á því hvort ekki væri hægt að nota tommustokkinnn í einhvað annað en að mæla hvað þeir færu langt þegar þeir væru á fjöllum. Tillaga um að skenkja guinnes í hvert skipti sem merkum árangri var náð var samþyggt og þar með nafnið líka, þannig geta þeir afsakað það að tommustokkur er með í ferð.





    23.05.2005 at 10:02 #522950
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég held að Beggi sé bara að skálda núna. Það eru haldnir vikulegir fundir í Guinnessfélaginu, stöku sinnum eru haldnir aukafundir, t.d. var einn á laugardagskvöldið í Jökulheimum.

    Ég man ekki til þess að tommustokkar hafi nokkurntíman verið ræddir á fundum félagsins, þó háþróaðri mælitæki eins og kastklukkur og skífumál hafi borið á góma. Það hefur aldrei komið til tals að breyta nafni félagsins.

    -Einar





    28.06.2005 at 23:37 #522952
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Það hefur allt verið svo líflaust hér á spjallinu undanfarið þannig að ég ákvað að prufa að endurvekja þennan þráð sem var nokkuð líflegur á tímabili.
    Kveðja Lella





    29.06.2005 at 10:57 #522954
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Mér finnst nú eiginlega merkilegt að eigandi skaftsins hefur ekki enþá sótt það – sérstaklega þar sem að þetta er kyngimagnað skaft sem getur komið af stað umræðum og hvaðeina….

    Spurning hvort ég fer að halda uppboð á því……

    benni





    29.06.2005 at 11:28 #522956
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Benni, hvers vegna læturður Lellu ekki bara fá skaftið það mundi deyfa söknuðinn af álkarlinum.

    kv. vals.





    29.06.2005 at 11:49 #522958
    Profile photo of Helena Sigurbergsdóttir
    Helena Sigurbergsdóttir
    Member
    • Umræður: 115
    • Svör: 2416

    Nei Vals, þetta var mjög sérstakur álkarl og skaftið getur ekki bætt upp söknuð hans.
    Kveðja Lella





    29.06.2005 at 23:11 #522960
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Og guinnes og Hvannadalshnjúkur og Heimsveldið og grátandi Írar Maltviskey uppboð tommustokkar og önnur mælitæki bar topplaus bílfreyja,

    Er hægt að tengja meira inn á þennann þráð???????

    Hins vegar var aldrei sagt frá ferðinni sjalfri hvar svo þetta glundur drukkið eða var það drukkið????

    Hvar er koniakið er Pajero enþá bilaður ???????

    Eru menn og konur að búa til börn inni á jökli og hvað kallast slíkt athæfi??????????

    Er heimsveldið komið til byggða ? var Einar með ????

    Af hverju sækir maðurinn ekki þetta skaft???????

    Hver tók álkallinn??????

    Er það rétt hjá Ofsa að jeppamenn séu alment svo leiðinlegir að þeir verði að hafa vhf í bílunum því enginn nenni að ferðast með þeim.

    Ekki lýgur Ofsinn ?????????????????

    Er ekki komið nóg af spurningum ?????????????

    Klakinn





    29.06.2005 at 23:46 #522962
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Já hér er margs að gæta. Guinnessbarinn á Hnjúknum hefur enn ekki verið opnaður formlega, en það mun ekki fara leynt þegar þar að kemur. Leiðtogi Guinnessfélagsins mun vera kominn undir feld.

    En þetta er rétt hjá Klakanum að játning Ofsans í útvarpsviðtali, þess efnis að ástæða VHF væðingarinnar sé aðallega af því jeppamenn séu svo leiðinlegir að enginn vill ferðast með þeim, ja hún var nokkuð athyglisverð. Þetta skýrir hvers vegna stöðugt verður erfiðara að finna kóara, þrátt fyrir loforð um frábæra skemmtun á fjöllum. Svona er nú nútíma tækni stórkostleg.

    Skaft af drullutjakki er nauðsynlegt í hverjum jeppa og til margra hluta nytsamlegt. Getur hreinlega bjargað manni til byggða ef út í það er farið.

    Kv – Skúli





    30.06.2005 at 13:47 #522964
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    já og ef þú kemst ekki til byggða þá gerir það þér kleift að hlaupa um fatalaus þangað til þú ert allur….

    Hvar skyldi maður nú geta nálgast viðtalið við virðulegan Ofsa ?

    kv
    Agnar





    30.06.2005 at 13:54 #522966
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    [url=http://servefir.ruv.is/dagskra/streaming/popup/ras2/?file=4230584/7:1fojl2uk]hér[/url:1fojl2uk]

    eða

    http://servefir.ruv.is/dagskra/streamin … =4230584/7

    -haffi





    10.01.2006 at 16:11 #522968
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Benni, hvernig var það, hvað varð svo um þetta áhrifamikla skaft?
    Kv – Skúli





    10.01.2006 at 16:28 #522970
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Heyrðu skaftið komst á endanum í hendur rétts eiganda og er vonandi farið að þjóna sínum upprunalega tilgangi að nýju.

    Reyndar stakk ég upp á að það yrði rammað inn og klúbbnum gefið það sem uppsprettu mikilla umræðna. Enda skaftið væntanlega af sama grunni og naglinn góði í súpunni….

    Benni





    10.01.2006 at 16:46 #522972
    Profile photo of Óskar Andri Víðisson
    Óskar Andri Víðisson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 778

    á nú að fara að færa þessa umræðu aftur upp á skaftið….
    =)





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 61 through 80 (of 82 total)
← 1 … 3 4 5 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.